„Hún tók hvolpinn af mér bara út af fordómum“

Ásta María H. Jensen hefur sent kvörtun til siða­nefndar Hunda­rækt­ar­fé­lags Íslands eftir að hunda­rækt­andi sem hún keypti hvolp af mætti heim til hennar og tók hvolp­inn til baka. Uppgefin ástæða var að Ásta væri með alvar­legan geð­sjúk­dóm og lít­ill hvolpur væri því ekki öruggur hjá henni. Fyrir á hún tvo hunda. Níu ár eru síðan Ásta fór síð­ast í geð­rof og þurfti að leggj­ast inn á geð­deild.

„Hún tók hvolpinn af mér bara út af fordómum“
Með hund­unum Ásta með hund­unum sínum þeim Prins og Röskvu. Hvolp­ur­inn sem var tek­inn af henni er af papillon-teg­und­inni eins og Prins. Mynd: Heida Helgadottir

„Fyrstu nótt­ina eftir þetta gat ég ekk­ert sofið. Ég get ekki vaknað á morgn­ana án þess að þetta sé í hausnum á mér. Sem betur fer dreymir mig þetta ekki,“ segir Ásta María H. Jensen um áfallið sem hún varð fyrir þann 19. sept­em­ber. 

Hún vakn­aði þá til að taka á móti kon­unni sem hún hafði keypt hrein­rækt­aðan hvolp af þremur vikum áður. Ásta hafði verið í miklu sam­bandi við kon­una eftir kaupin, sent henni mynd­bönd og fréttir af hvolp­inum, papillon-hvolp­inum Kríu. Einn dag­inn hafði konan sam­band og sótt­ist eftir að koma í heim­sókn, sem Ásta sagði sjálf­sagt en var­aði hana við því að hún hefði verið í lýta­að­gerð og væri því með glóð­ar­augu á báðum. Konan sagð­ist koma fyrir hádegi og var mætt klukkan hálf tíu.

„Ég leit hræði­lega út. Var ógreidd og með glóð­ar­augu. Ég sé svo eftir að hafa ekki bara sagt að ég tæki …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vordís Baldursdóttir skrifaði
    Ljótt ef satt reynist að fólk sé að fara eftir gróusögum í stað þess að ræða við fólkið sjálft, eitt símtal og spyrja hvað verður um dýrið ef þú lendir á spítala. Allir geta lent á spítala í lengri eða styttri tíma, óvænt eða fyrirfram ákveðið og þurfa þá að fá einhvern til að sjá um dýrin sín á meðan. Mun líklegra að manneskja sem hefur lent í því að þurfa að fara óvænt á sjúkrahús hafi einhvern undirbúin að taka við dýrunum ef þarf heldur en sá sem hefur ekki lent í því áður.
    15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár