Yfir 200 síðna „epískt“ myndasögublað á leiðinni

Von er á mynda­sögu­blaði með sögum frá 30 höf­undum þar sem verður fjallað um alls kyns mál­efni. Aron Daði Þórisson og Arnar Hjart­ar­son standa fyrir útgáfu blaðs­ins. „Við erum komin með epíska bók, epískt konsept í hend­urnar en það kostar epíska pen­inga,“ segir Aron Daði.

Yfir 200 síðna „epískt“ myndasögublað á leiðinni
Næsta blað Til­gangur blaðs­ins er að blása lífi í íslenska mynda­sögu­menn­ingu. Mynd: Aron Daði Þórisson og Arnar Hjartarson

Aron Daði Þórisson er verk­efna­stjóri útgáfu mynda­sögu­blaðs sem ber tit­il­inn Mynda­sögur. Í heild­ina verður blaðið yfir 200 blað­síður enda eru þar sögur yfir 30 lista­fólks. „Ég þori ekki alveg að full­yrða, en ég held að þetta sé stærsta mynda­sögu­út­gáfa af þess­ari teg­und sem hefur komið út á Íslandi,“ segir Aron Daði. 

Aron Daði, nemi í nátt­úru- og umhverf­is­fræði, hefur yfir­um­sjón með verk­inu ásamt graf­íska hönn­uð­inum Arnari Hjart­ar­syni. Þeir félagar hafa áður gefið út smærri mynda­sögur sem voru á bil­inu 20–30 síður eftir færri höf­unda. Eftir jákvæð við­brögð við þeim blöðum ákváðu þeir að nú væri kom­inn tími á stærra blað. Til­gang­ur­inn er að blása lífi í íslenska mynda­sögu­menn­ingu sem hefur, að sögn Arons Daða, verið í dvala und­an­farin ár.

Epískt verkefni

„Pælingin með þessu er að sjá hvað við getum náð langt. Þetta er alveg spenn­andi en búið að taka á, ég við­ur­kenni það,“ segir Aron Daði. Áður fyrr gátu Aron Daði og Arnar dekkað prent­kostnað blað­anna með því að selja nokkur ein­tök en nú er sagan önnur. „Við erum komin út í Karolina söfnun til að ná utan um þetta. Við erum komin með epíska bók, epískt konsept í hend­urnar en það kostar epíska pen­inga.“ 

Mynda­sögurBlaðið verður yfir 200 blað­síður með 30 sögum.
„Við erum komin með epíska bók, epískt konsept í hend­urnar en það kostar epíska pen­inga“
Aron Daði Þórisson

Verk­efnið er komið vel á leið og segir Aron Daði alls konar skemmti­legar teng­ingar hafa mynd­ast milli lista­fólks út frá því. „Fólk er að fara út í stærri verk­efni því þau byrj­uðu á litlu verk­efni fyrir okkur. Það er gaman að sjá og í raun­inni mark­miðið með þessu.“

„Margir sem teikna og skapa eru oft svo­lítið í sínu og með sér í því sem þau eru að gera,“ útskýrir Aron Daði. Blaðið Mynda­sögur er því vett­vangur fyrir lista­fólk til að koma sínum verkum á fram­færi. Höfundar kynna svo verkin sín á sam­fé­lags­miðlum. Aron Daði telur að þannig sé hægt að ná til fleira fólks sem er ann­ars fast í sínu mengi. „Hug­myndin er að brjót­ast inn í þessar búbblur, sprengja þessar búbblur og koma þeim inn í eitt stórt freyði­bað.“

Hvað er myndasaga?

Í þeim mynda­sögum sem birt­ast í blað­inu verður fjallað um alls kyns við­fangs­efni, til dæmis sögu hinsegin sam­fé­lags­ins á Íslandi, upp­lifun ömmu eins höf­undar af sam­skiptum við álfa og fantasíur.

„Við fáum gagn­rýni frá fólki sem fílar mynda­sögur hart, því við erum svo­lítið opin fyrir því hvað mynda­saga getur verið. Við erum með lista­verk eftir list­mál­ar­ann Herdill og inni í mál­verk­unum eru miklar frá­sagnir,“ segir Aron Daði, sem bendir á að mynda­saga þurfi ekki endi­lega að vera í hefð­bundnu formi. „Það er búið að vera gaman að fá að sjá hvernig fólk nálg­ast þetta á ólíka vegu.“

Sem stendur er ekki búið að ákveða útgáfu­dag en söfnun Arons Daða og Arnars fyrir blað­inu klár­ast næstu mán­aða­mót.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Fyrir okkur sauðsvartan almúgann; hvað er epískt á ástkæra ylhýra?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu