Svona er best að lesa á umbúðir matvæla til að meta hollustu þeirra

Grænmeti, ávextir, heil­korn og kald­pressuð ólífu­olía eru allt mat­væli sem eiga heima í mat­væla­körfu þeirra sem vilja borða hollt. Rautt kjöt og mikið unnin mat­væli eru hins vegar ekki á list­anum. Steinar B. Aðal­björns­son nær­ing­ar­fræð­ingur miðlar ein­földum reglum um hvernig best sé að lesa á umbúðir mat­væla til að meta holl­ustu þeirra.

Svona er best að lesa á umbúðir matvæla til að meta hollustu þeirra
Hollusta Steinar segir mik­il­vægt að borða nóg af græn­meti og ávöxtum. Hvoru tveggja inni­haldi trefjar og vítamín. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Allt græn­meti á heima í körf­unni, því dekkra því betra. Það kemur mörgum á óvart að það er alltaf betra að velja dökkt græn­meti. En ljóst græn­meti er auð­vitað hollt líka og á sann­ar­lega heima í mat­ar­körf­unni,“ segir Steinar B. Aðal­björns­son, nær­ing­ar­fræð­ingur og sér­fræð­ingur hjá Krabba­meins­fé­lag­inu. 

Krabba­meins­fé­lagið býður upp á svo­kall­aðar mat­vöru­búð­ar­ferðir þar sem nær­ing­ar­fræð­ingur leiðir lít­inn hóp í gegnum mat­vöru­búð. Til­gang­ur­inn er að veita almenn­ingi inn­sýn inn í ein­faldar leiðir sem hægt er að nota þegar verslað er, leiðir sem stuðla að því að betri og holl­ari matur lendir ofan í inn­kaupa­körf­unni, matur sem er að inni­haldi í sam­ræmi við sann­reyndar nið­ur­stöður rann­sókna á lík­am­legum áhrifum nær­ing­ar­efna.

Ekki drekka kolvetnin

Heim­ildin slóst í för með Steinari í versl­un­ar­ferð. Strax við inn­gang versl­un­ar­innar blasti við ávaxta- og græn­met­is­deildin sem Steinari fannst til fyr­ir­myndar og nefndi að margar versl­anir gerðu þetta til að ýta fólki í átt að …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Af hverju hafa sumar verslanir grænmetið fremst? Hef lesið að bak við það sé sálfræði. Kenningin er þannig: viðskiptavinurinn byrjar á því að setja hollt í körfuna, er með hreina samvisku gagnvart heilsuna og heldur ánægður áfram inn í búðina. Þar mætir honum óhollustan. En fyrst hann er jú búinn að kaupa grænmeti má sleppa sér leyfa sér aðeins ...
    Sjálfum finnst mér fásinna að setja fyrst viðkvæma grænmetið í körfuna og hlaða svo allt hitt ofan á.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár