Met sett í nýtingu á séreignarsparnaði til að borga niður íbúðalán

Upphæðin sem lands­menn hafa ráð­stafað, skatt­frjálst, af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn í íbúða­lán fer að nálg­ast 150 millj­arða króna. Gögn sýna að 77 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem hið opin­bera gefur eftir í tekjur vegna þessa lendi hjá þremur efstu tekju­hóp­unum. Leiðin er gagn­rýnd úr öllum áttum og á að renna sitt skeið í lok næsta árs.

Met sett í nýtingu á séreignarsparnaði til að borga niður íbúðalán
Segir stopp Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur sagt að staðið verði við að hús­næð­is­stuðn­ingur í formi skatt­frjálsrar nýt­ingar á sér­eign­ar­sparn­aði í nið­ur­greiðslu íbúða­lána verði hætt eftir næsta ár. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslensk heim­ili greiddu alls 15,9 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á íbúða­lán á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2023. Í ágúst­mán­uði einum saman námu inn­greiðsl­urnar 3,4 millj­örðum króna, sem er það lang­mesta sem greitt hefur verið inn á íbúða­lán með þessum hætti í stökum mán­uði frá því að úrræðið var sett á lagg­irnar árið 2014. Fyrra metið, sett í mars á þessu ári, var 2,4 millj­arðar króna. Alls hafa lands­menn ráð­stafað um 146 millj­örðum króna inn á íbúða­lán sín með þessum hætti frá því að úrræðið tók gildi síðla árs 2014. 

Þetta má lesa úr tölum sem Seðla­banki Íslands birti nýverið. 

Þeir sem nýta sér sér­­­­­­­­­eign­­­­­ar­líf­eyr­is­­­­­sparnað til að greiða niður íbúða­lán sitt sam­­­­­kvæmt úrræðum sem stjórn­­­­­völd hafa inn­­­­­­­­­leitt á und­an­­­­­förnum árum …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár