Sjö þúsund heimili fengu 1,1 milljarð í vaxtabætur sem allt stefndi í að myndu ekki fá þær

Íslensk stjórn­völd hafa skipt um hús­næð­is­stuðn­ings­kerfi á und­an­förnum ára­tug. Stuðn­ing­ur­inn hefur verið færður úr kerfi sem miðlar honum fyrst og síð­ast til lægri tekju­hópa yfir í kerfi sem lætur hann að uppi­stöðu renna til þriggja efstu tekju­hópanna. Breyting sem gerð var undir lok síð­asta árs skil­aði sér að mestu til milli­tekju­fólks.

Sjö þúsund heimili fengu 1,1 milljarð í vaxtabætur sem allt stefndi í að myndu ekki fá þær
Breyt­ing­ar­til­laga Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var fyrsti flutn­ings­maður breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið sem gerði það að verkum að vaxta­bætur voru hækk­aðar. Með­flutn­ings­fólk hans kom úr stjórn­ar­and­stöð­unni. Mynd: Hari

Ákvörðun Alþingis um að hækka eigna­skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta um 50 pró­sent frá 1. jan­úar síð­ast­liðnum gerði það að verkum að 6.912 heim­ili fengu vaxta­bætur í ár sem hefðu ann­ars ekki fengið þær. 

Þungi hins aukna stuðn­ings rann til milli­tekju­fólks sem á hús­næði en þau 20 pró­sent heim­ila sem eru með hæstu tekj­urnar fengu ein­ungis 3,3 pró­sent hans. Þá skil­aði stuðn­ing­ur­inn sér mest til yngri hús­næð­is­eig­enda. „Ald­urs­hóp­ur­inn 26 til 35 ára fékk 46,7 pró­sent af auknum stuðn­ingi og alls fengu fyrstu þrír ald­urs­hóp­arnir 78,7 pró­sent af honum.

Með­al­á­bati þeirra sem fengu vaxta­bætur vegna hækk­unar neðri marka eigna­skerð­ing­ar­marka nam 106 þús­und krónum og með­al­á­bati þeirra sem nutu hækk­unar vegna efri marka eigna­skerð­ingar nam 95 þús­und krónum. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna breyt­ing­anna er áætl­aður 1.154 millj­ónir króna. 

Þetta kemur fram í end­ur­skoð­uðu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um málið. 

Svarið birt­ist …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár