Þeir sem eiga innstæður hafa aukið vaxtatekjur um 60 prósent á einu ári

Eigna­tekjur heim­ila hafa aldrei verið hærri krónu­tala en þær voru á öðrum árs­fjórð­ungi 2023. Það borgar sig vel að eiga sparnað á bók í verð­bólgu­á­standi eins og nú ríkir. Næstum helm­ingur allra inn­lána er í eigu þeirra tíu pró­senta sem hafa hæstu tekj­urnar.

Þeir sem eiga innstæður hafa aukið vaxtatekjur um 60 prósent á einu ári
Banka­útibú Það þarf að leita aftur til tím­ans fyrir banka­hrun til að finna álíka hækkun á vaxta­tekjum vegna inn­stæðna, sem geymdar eru í banka, á einu ári.

Eigna­tekjur heim­ila lands­ins voru 81 millj­arður króna á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2023. Það er 31 pró­sent meira en þeir sem þéna tekjur af eignum sínum höfðu í slíkar á sama árs­fjórð­ungi í fyrra. Helsta ástæðan fyrir því var rúm­lega 60 pró­sent aukn­ing á vaxta­tekjum sem skýr­ast af auknu vaxta­stigi, en stýri­vextir Seðla­banka Íslands hækk­uðu úr því að vera 2,75 pró­sent í byrjun ann­ars árs­fjórð­ungs í fyrra og í 8,75 pró­sent í lok sama árs­fjórð­ungs í ár. 

Þetta má lesa út úr tekju­skipt­ing­ar­upp­gjöri heim­ila lands­ins sem Hagstofa Íslands birti í vik­unni. Eigna­tekjur hafa aldrei verið hærri krónu­tala en þær voru á þriggja mán­aða tíma­bil­inu sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní síð­ast­lið­ins. 

 Þeir sem eru með hæstu tekjurnar eiga mest af innlánum

Eigna­tekjur eru, líkt og nafni gefur til kynna, tekjur sem heim­ilin hafa af eignum sínum. Þar er um að ræða vexti, arð, …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Næst­um helm­ing­ur allra inn­lána er í eigu þeirra tíu pró­senta sem hafa hæstu tekj­urn­ar."

    Þetta eru þau sem seðlabankafólk segist vera að hvetja til að "spara" með því að hækka vexti. Þ.e.a.s. fólk sem hefur nægar tekjur til að leggja til hliðar í sparnað og hagnast nú gríðarlega á kostnað þeirra sem hafa ekki getað byggt upp sparnað heldur þurft að fjármagna húsnæðiskaup með lántöku eða eru föst á leigumarkaði með enga útgönguleið þaðan.

    Enginn í seðlabankanum virðist hafa neinar áhyggjur af þeim auknu fjármagnstekjum sem þetta annars upp til hópa ágæta fólk fær nú í bílförmum og getur notað til að fjármagna aukna einkaneyslu sína með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu.

    Nei, samkvæmt kenningum seðlabankans eru það bara auknar launatekjur sem geta valdið verðbólgu en ekki auknar fjármagnstekjur... (takið smá stund til að láta það sökkva inn).
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár