Heimurinn er ekki að klofna í tvennt

Nýtt kalt stríð á milli tveggja risa­blokka er ekki að bresta á. Fyrir því eru bæði ein­faldar og flóknar ástæður. Meðal ann­ars þær að opin og frjáls sam­fé­lög heilla millj­arða manna, einkum yngra fólk.

Heimurinn er ekki að klofna í tvennt
Ekki á leið í kalt stríð Póli­tískar breyt­ingar krefj­ast þess að sam­eig­in­legir hags­munir við­kom­andi svæðis ráði ferð­inni frekar en rök hnatt­rænna stór­velda­á­taka, ann­ars vegar undir stjórn Xi Jiping og Kína og hins­vegar undir stjórn Joe Biden og Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP

Stærsta saga síð­ustu þrjá­tíu ára er um millj­arða manna sem losn­uðu úr hryll­ingi örbirgðar. Stór hluti þessa fólks býr í Asíu, sem er líka heim­ili nær 60% mann­kyns, og þriðj­ungur þeirra býr í Kína sem lyfti mesta Grettistak­inu.

Annar veru­leiki fylgir með. Hann er sá að sífellt þyngri straumar flytja nú áhrif og völd í heim­inum frá vestri til aust­urs og frá norðri til suð­urs. Jafnvel nú þegar hart kreppir að í kín­versku efna­hags­lífi er 70% af hag­vexti heims­ins í Asíu. Efna­hags­bylt­ingar í suðri og austri og gíf­ur­leg mann­fjölgun utan Vest­ur­landa hafa breytt öllum hlut­föllum. Heim­ur­inn er gjör­breyttur frá því sem hann var við lok kalda stríðs­ins. 

Tvær blokkir?

Síðustu miss­eri hafa margir spáð nýju köldu stríði. Öðrum megin yrðu þá Vest­ur­lönd og banda­menn þeirra undir for­ystu og leið­sögn Banda­ríkj­anna.

Hins vegar stæði hið nýja heims­veldi Kína með Rússland sér við hlið og að auki fjölda …

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt blessuðum kapítalismanum að þakka, sama hvort hann er til hægri eða vinstri, hann krefst bara peningaræðis. Mammon sér um sína.
    -1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Alltaf þess virði að lesa það sem Jón Ormur skrifar.
    2
  • Arni Jonsson skrifaði
    Flott grein hjá Jóni Ormi. Það er eftirspurn eftir fleiri svona yfirveguðum greinum
    2
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Frábært að fá þetta sjónarhorn, sem sjaldan heyrist hér á landi. Greinin vekur margar spurninar, sem henni er eflaust ætlað að gera: Hvernig lítur nýtt valdakerfi í miðausturlöndum út? Munu áhrif Bandaríkjanna þar minnka? Munu einræði skjóta upp kollinum í fleiri ríkjum á næstunni? Hvað um þróunina í Afríku og Rússlandi?
    1
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Góð grein hjá Jóni Ormi!
    2
  • ÆK
    Ævar Kjartansson skrifaði
    Gott að heyra frá Jóni Ormi, hans yfirsýn og yfirvegun.
    2
  • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
    Snjöll hugleiðing !
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár