Jón Ormur Halldórsson

Hvers vegna eru öll þessi stríð í Afríku?
Jón Ormur Halldórsson
Pistill

Jón Ormur Halldórsson

Hvers vegna eru öll þessi stríð í Afríku?

Við­var­andi ófriður ríkir í nær tutt­ugu löndum Afríku. Millj­ónir hafa dáið þar í stríðum það sem af er öld­inni. Enginn veit þó hvað margar. Í fyrra féllu fleiri í Tígray­hér­aði Eþíópíu en í stríð­inu í Úkraínu. Stríðin vekja yfir­leitt ekki mikla athygli utan álf­unnar. Það mun þó lík­lega breyt­ast. Áhyggjur af síauknum straumi flótta­manna frá hálf­hrundum en um leið sífellt mann­fleiri ríkjum Afríku munu senni­lega þröngva stríðum álf­unnar inn í vit­und Evr­ópu­manna.

Mest lesið undanfarið ár