„Dinglumdangl og dútl“ á Alþingi í dag

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Jóhann Páll Jóhanns­son, beindi spjótum sínum að stjórn­völdum á Alþingi í dag og upp­skar hlátra­sköll frá með­limum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svar­aði athuga­semdum Jóhanns Páls og ræddi lög­gjöf í kringum inn­leið­ingu EES-gerða.

„Dinglumdangl og dútl“ á Alþingi í dag
Jóhann Páll Jóhanns­son Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýndi aðgerða­leysi við þrá­látri verð­bólgu í dag á Alþingi. Mynd: Hari

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýndi aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í kjöl­far þess að verð­bólga heldur áfram að hækka.

„Frú for­seti, ég ætl­aði nú að halda ræðu um allt annað,“ sagði Jóhann Páll er hann hóf mál sitt. „En svo tók ég stuttan morg­un­lúr með dóttur minni og vakn­aði upp við að það er átta pró­sent verð­bólga í land­inu. Hún er á upp­leið, annan mán­uð­inn í röð.“ Er þing­maður var að ljúka setn­ingu sinni heyrð­ist hlátur úr hlið­ar­sal þings­ins. 

Jóhann Páll hélt áfram. „Átta pró­senta verð­bólga og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í hlát­ur­skasti hérna í hlið­ar­sölum.“ Hlátra­sköllin urðu hærri. „Það er ekk­ert á dag­skrá hérna nema ein­hver þing­manna­mál sem allir hérna inni vita að verða ekki að lögum. Kemur ekk­ert frá rík­is­stjórn­inni, það er bara hlegið og trallað og það er bara dingl­umdangl og dútl.“

„Mann­rétt­inda­stofnun,“ heyr­ist þá kallað úr salnum. 

„Mann­rétt­inda­stofnun mun ekki laga verð­bólg­una,“ svar­aði Jóhann Páll. „Hún er ágæt og hún hefði átt að koma fyrir löngu en, hvar eru aðgerð­irnar? Og hvar er for­ystan? Á ekk­ert að sýna for­ystu hérna? Bara kynna nýja bók sína í útlöndum,“ sagði þing­maður og skaut þá á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem var erlendis að kynna skáld­sögu sem hún skrif­aði með Ragnari Jónassyni og ber heitið Reykja­vík.  

„Fólkið í land­inu er að spyrja sig, hvar er rík­is­stjórnin? Og hvar eru alvöru aðgerðir til að sporna gegn verð­bólgu og verja fólkið í land­inu gegn verð­bólgu?“ Hann hélt áfram og sagði verð­bólgu­vænt­ingar vera á upp­leið. 

„Kemur ekk­ert frá rík­is­stjórn­inni, það er bara hlegið og trallað og það er bara dingl­umdangl og dútl“
Jóhann Páll Jóhanns­son

Bítið á Bylgjunni er þjóðin 

Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svar­aði gagn­rýni Jóhanns Páls í pontu. Hún var gestur þátt­ar­ins Bítið á Bylgj­unni í morgun til að ræða íslenskt reglu­verk er varðar inn­leið­ingu EES-reglu­gerða sem þing­maður vill koma í veg fyrir að verði enn meira íþyngj­andi en þær eru nú. 

Diljá Mist Ein­ars­dóttirRæddi reglu­verk við inn­leið­ingu EES-gerða á Alþingi í dag.

„Mér heyr­ist að á meðan að hátt­virtur þing­maður Jóhann Páll Jóhanns­son var að leggja sig, að þá hafi ég verið vöknuð eldsnemma til að ræða við Bítið,“ sagði Diljá Mist. 

„Þar með­tók ég áskorun,“ hélt þing­maður áfram, „um að við stopp­uðum ekki við það að rýna nýjar reglur, heldur réð­umst hér í að vinda ofan af lög­gjöf þar sem hefur verið gengið of langt við inn­leið­ingu. Bítið á Bylgj­unni er fyrir mér miklu meira þjóðin eða fólkið heldur en margir stjórn­mála­menn sem segj­ast mjög gjarnan tala fyrir þann hóp.“

Fleiri þing­menn lýstu yfir áhyggjum af efna­hags­málum. Elva Dögg Sig­urð­ar­dóttir, þing­maður Við­reisnar, sagð­ist áður hafa rætt það í pontu að ungt fólk hefði áhyggjur af kostn­aði búð­ar­ferða og vaxta­hækk­unum. „Við ræðum stundum um þetta eins og það sé óhjá­kvæmi­legt við það að búa á Íslandi, að það að búa hér sé ávísun á háa vexti og svim­andi hátt mat­ar­verð. En svo er ekki,“ sagði Elva Dögg. 

Hún vís­aði í hag­kerfi Fær­ey­inga þar sem hús­næð­is­lán eru tölu­vert lægri en á Íslandi og hag­vöxtur mik­ill. „Fær­ey­ingar eru með danska krónu og því danska vexti. Danir eru með sína krónu tengda við evru og því spyr ég: Af hverju erum við ekki að nýta okkur þessar leiðir? Af hverju eru ekki allir þing­menn að ræða þá stað­reynd að nágrannar okkar geta boðið heim­ilum lands­ins upp á miklu lægri vexti?“

„Af hverju eru ekki allir þing­menn að ræða þá stað­reynd að nágrannar okkar geta boðið heim­ilum lands­ins upp á miklu lægri vexti?“
Elva Dögg Sig­urð­ar­dóttir

Elva Dögg ítrek­aði að Viðreisn vildi bregð­ast við núver­andi efna­hags­á­standi á Íslandi með þjóð­ar­kosn­ingu um áfram­hald­andi samn­inga­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. „Ef þjóðin segir svo já þá gætum við á end­anum tekið upp evru og rússi­ban­areið vaxta og verð­bólgu væri þá ekki við­var­andi ástand hér.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár