Réttindalaust flóttafólk fær skjól hjá Rauða krossinum

Enn ein vend­ingin hefur orðið í deilu sveit­ar­fé­laga og ríkis um hver eða yfir höfuð hvort eigi að veita útlend­ingum sem fengið hafa end­an­lega synjun á umsókn um alþjóð­lega vernd aðstoð. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur falið Rauða kross­inum að veita fólk­inu, sem ekki á rétt á aðstoð á grund­velli nýrra laga um útlend­inga, gist­ingu og fæði.

Réttindalaust flóttafólk fær skjól hjá Rauða krossinum
Á flótta Tugum fólks hefur verið synjað um vernd hér á landi síð­ustu vikur og á þetta fólk þá 30 dögum síðar ekki rétt á þjón­ustu hins opin­bera sam­kvæmt nýjum útlend­inga­lögum. Mynd: Samsett

Fólk sem fengið hefur end­an­lega synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd hér á landi, og á ekki rétt á aðstoð á grund­velli nýrra útlend­inga­laga, getur leitað til Rauða kross­ins eftir neyð­ar­að­stoð. Kveðið er á um þetta í nýju sam­komu­lagi við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið sem er til­komið „þar sem óvíst er hvort dval­ar­sveit­ar­fé­lag í hverju til­viki fyrir sig hafi yfir að ráða úrræði til að hýsa umrædda ein­stak­linga, sem ekki eiga í önnur hús að venda,“ líkt og segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins. Ráðu­neytið hefur enn­fremur gert breyt­ingar á reglu­gerð þar sem skýrt er hvað komi til end­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna aðstoðar sveit­ar­fé­laga við fólkið.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu við Rauða kross­inn getur fólk í þess­ari stöðu nú fengið gist­ingu og fæði í sam­ræmi við það sem almennt tíðkast í gisti­skýlum fyrir heim­il­is­laust fólk.

Um tíma­bundið verk­efni er að ræða, segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni að við höfum tryggt að ekk­ert af fólk­inu þarf að sofa úti. Enda viljum við það ekki í okkar sam­fé­lagi.“
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son,
félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hefur þegar sent til­mæli til félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna vegna breyt­ing­anna. Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur sömu­leiðis verið upp­lýst.

„Ráðu­neytið væntir góðrar sam­vinnu við sveit­ar­fé­lögin við að tryggja umræddum ein­stak­lingum gist­ingu og fæði í sam­ræmi við fram­an­greint,“ stendur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Í nóv­em­ber í fyrra skil­aði Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga inn umsögn um fram­lagt frum­varp þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Jóns Gunn­ars­sonar, um breyt­ingar á lögum um útlend­inga. Þar sagði að sam­bandið teldi að sú boð­aða breyt­ing á útlend­inga­lögum að fella niður alla grunn­þjón­ustu til flótta­fólks 30 dögum eftir að end­an­leg ákvörðun á stjórn­sýslu­stigi um umsókn hans til verndar liggur fyr­ir, myndi fjölga heim­il­is­lausum á Íslandi. Það myndi hafa í för með sér aukn­ingu á álagi á félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og auk­inn kostnað fyrir þau. „Óhjá­kvæmi­legur fylgi­fiskur slíkrar neyðar hlýtur ávallt að vera aukin hætta á því að hlut­að­eig­andi ein­stak­lingar verði ber­skjald­aðri fyrir hvers kyns mis­neyt­ingu, man­sali og ofbeld­i.“

Frum­varpið var sam­þykkt í atkvæða­greiðslu 15. mars síð­ast­lið­inn og lögin tóku gildi 1. júlí. Alls 38 þing­menn greiddu atkvæði með þeim. Þrettán atkvæði komu frá Sjálf­stæð­is­flokki, tólf frá Framsókn, sex frá Vinstri grænum, sex frá Flokki fólks­ins og eitt frá Mið­flokki. Enginn þing­maður þess­ara fimm flokka greiddi atkvæði gegn sam­þykkt þess en ein­hverjir voru fjar­ver­andi. 

Afleið­ingar þessa komu svo fram í sumar, skömmu eftir að lögin höfðu tekið gildi og upp­lýst var í fréttum að búið væri að synja yfir 50 ein­stak­lingum um vernd frá 1. Júlí og að þeim væri ætlað að fara úr landi innan mán­aðar. Að þeim tíma liðnum missa þeir alla þjón­ustu og hús­næði.

Langvarandi pattstaða

Þetta virt­ist koma flatt upp á marga og fljót­lega var ljóst að ráð­herrar innan rík­is­stjórn­ar­innar voru hvorki sam­stíga né sam­mála um hvort og þá hver ætti að veita rétt­inda­lausu flótta­fólki aðstoð. Sveit­ar­fé­lögin sögðu verk­efnið vera á ábyrgð rík­is­ins.

Algjör patt­staða var í mál­inu um nokkra hríð.

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði að það væri ekki verið að vísa fólk­inu á göt­una heldur úr landi. Ef það færi ekki eftir þeim fyr­ir­mælum þyrfti ein­fald­lega að búa til nýtt úrræði fyrir hóp­inn. Sveit­ar­fé­lögum bæri ekki að veita fólk­inu aðstoð og rík­inu ekki heldur.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að deilt væri um túlkun lag­anna og leit­aði til Laga­stofn­unar Háskóla Íslands sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að dval­ar­sveit­ar­fé­lag mætti ekki synja ein­stak­lingi um fjár­hags­að­stoð af þeirri einu ástæðu að rétt­indi hans sem umsækj­anda um alþjóð­lega vernd hafi fallið niður.

Sveit­ar­fé­lögin fengu líka lög­fræði­á­lit og komust að and­stæðri nið­ur­stöðu – að þeim væri, sam­kvæmt nýju útlend­inga­lög­unum, ekki skylt að veita aðstoð­ina heldur væri þeim það bein­línis óheim­ilt.

Guð­mundur Ingi hefur frá upp­hafi sagt að sinna þurfi þessum hópi og hefur einnig sagt að sér hugn­ist ekki lok­aðar búðir fyrir flótta­fólk líkt og Sjálf­stæð­is­menn hafa nokkrir viðrað hug­myndir um.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni að við höfum tryggt að ekk­ert af fólk­inu þarf að sofa úti,” sagði hann við RÚV í dag eftir að til­kynnt hafði verið um sam­komu­lagið við Rauða kross­inn. „Enda viljum við það ekki í okkar sam­fé­lagi. Og við erum að tryggja þetta með samn­ingi við Rauða kross­inn sem felur þá í sér að fólk fær lág­marks­þjón­ustu í sam­ræmi við það sem ger­ist í gisti­skýlum. Það er að segja húsa­skjól og mat.“

Gert er ráð fyrir að sveit­ar­fé­lög geti vísað fólki til Rauða kross­ins í lok vik­unnar.

Segja ákvörðunina einhliða og vonbrigði

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga sendi frá sér til­kynn­ingu seinni part­inn í dag þar sem þau lýstu yfir von­brigðum við aðgerð ráð­herra sem þau segja „ein­hliða“. Þau segja full­trúa sam­bands­ins hafa verið kall­aða á fund ráð­herra í morgun þar sem þeim hafi verið til­kynnt um áformin. Þá þegar hafi verið búið að taka ákvörð­un­ina. Sam­bandið segir í til­kynn­ingu sinni að ráð­herra hafi vitað af algjörri and­stöðu sveit­ar­fé­lag­anna við þessa ráð­stöfun.

Afstaða stjórnar sam­bands­ins liggi skýrt fyrir en á síð­asta stjórn­ar­fundi bók­aði stjórn eft­ir­far­andi:

„Stjórn sam­bands­ins ítrekar þá afstöðu sem sam­bandið hefur talað fyrir und­an­farnar vikur um að sveit­ar­fé­lögum sé hvorki heim­ilt né skylt að veita þeim erlendu rík­is­borg­urum fjár­hags­að­stoð, sem vísað hefur verið úr þjón­ustu rík­is­ins í kjöl­far synj­unar á umsókn við­kom­andi um alþjóð­lega vernd, skv. útlend­inga­lögum.“

Sam­bandið mun nú fara yfir stöð­una og skoða við­brögð við þeirri stöðu sem upp er komin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár