Telja sér óheimilt að veita flóttafólkinu fjárhagsaðstoð

Sveit­ar­fé­lögum er hvorki heim­ilt né skylt að veita flótta­fólki sem vísað hefur verið úr þjón­ustu rík­is­ins fjár­hags­að­stoð. Þetta er nið­ur­staðan í minn­is­blaði sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga tók saman.

Vísað úr þjónustu
Vísað úr þjón­ustu Tugum fólks sem hingað hefur leitað alþjóð­legrar verndar hefur verið vísað úr þjón­ustu rík­is­ins. Sveit­ar­fé­lögin telja sér hvorki heim­ilt né skylt að veita fólk­inu fjár­hags­að­stoð. Mynd: Alma Mjöll

Enginn vafi leikur á því að stjórn­völd gerðu sér grein fyrir því að lög­fest­ing á nýju ákvæði í útlend­inga­lögum, um að heim­ilt sé að vísa fólki úr þjón­ustu rík­is­ins í kjöl­far synj­unar á alþjóð­legri vernd, myndi hafa til­teknar afleið­ingar í för með sér. Því hefði verið nauð­syn­legt að afmarka fyrir fram með hvaða hætti þjón­usta gagn­vart umræddum hópi færi fram, segir í minn­is­blaði sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur tekið saman. 

Í minn­is­blað­inu er eft­ir­far­andi álita­efni lagt til grund­vallar:

„Er sveit­ar­fé­lögum heim­ilt eða skylt að veita útlend­ingi fjár­hags­að­stoð á grund­velli 15. gr. félags­þjón­ustu­laga sem fengið hefur synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd eftir að 30 daga bið­tíma lýkur skv. 8. mgr. 33. gr. útlend­inga­laga nr. 80/2016.“

Nið­ur­staða sam­bands­ins er nei. Sveit­ar­fé­lögum sé hvorki heim­ilt né skylt að veita þeim erlendu rík­is­borg­urum, …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár