Gervigreind semur leiktexta fyrir óperu

Óperu­söngv­ar­inn og tón­skáldið Hrólfur Sæmunds­son er á fullu um þessar mundir að semja tón­list við leiktexta gervi­greind­ar­innar ChatGPT 4.

Gervigreind semur leiktexta fyrir óperu
Gervi­greindin ChatGPT 4 Samdi óperu­texta á einni og hálfri mín­útu. Mynd: Karolina Fund

Hrólfur Sæmunds­son, óperu­söngv­ari og tón­skáld, semur um þessar mundir tón­list við óperu­texta skrif­aðan af gervi­greind. „Hug­myndin kvikn­aði eig­in­lega í bún­ings­her­bergi þegar við vorum nokkrir strákar saman í Madama Butt­er­fly núna í vetur í Íslensku óper­unni.“ Í gríni báðu þeir gervi­greind­ina að semja alls konar óperu­texta. Það kom þeim á óvart að text­inn var alls ekki svo slæmur. 

Hrólfur hefur fyrst og fremst verið söngv­ari hingað til, en lang­aði nú að helga sig tón­smíðum og varð að láta sér detta spenn­andi verk­efni í hug. „Eftir þetta, þegar við vorum að leika okkur þarna í bún­ings­her­berg­inu með þessa gervi­greind, þá datt mér í hug hvort þetta væri ekki svo­lítið aktúal og spenn­andi að sjá að hvaða leyti gervi­greind gæti gert þetta.“

Hrólfur Sæmunds­sonSemur tón­list við leiktexta gervi­greindar fyrir óperu­sýn­ingu.

Hrólfur hafði sam­band við vin sinn og heim­spek­ing, Sævar Finn­boga­son. „Sævar hefur stúd­erað áhrif gervi­greindar og kennir kúrs um þetta í háskól­anum.“ Þeir félagar höfðu einnig sam­band við Ramonu Bartsch óperu­leik­stjóra. Saman ákváðu þau að hrinda hug­mynd­inni í fram­kvæmd með styrk frá Tón­skálda­sjóði og frjálsum fram­lögum á Karolina fund. 

Fjallar um áhrifavalda

Til­gang­ur­inn er að sjá hversu langt gervi­greindin, ChatGPT 4, getur gengið í að skapa list. „Í þessu til­felli er það leiktexti fyrir nútíma­óp­eru,“ segir Hrólfur. Þríeykið setti strangar reglur um það hve miklum upp­lýs­ingum Hrólfur mætti mata gervi­greind­ina með þegar hún væri að semja text­ann. Hann fékk hálf­tíma til þess að mata hana með upp­lýs­ingum.

Fyrst bað Hrólfur gervi­greind­ina um fimm ólíka sögu­þræði sem gætu virkað fyrir nútíma­óp­eru. „Svo valdi ég einn og bað hana að gera leiktexta út frá honum og ég hafði hálf­tíma til að hafa áhrif á text­ann með því að biðja hana að gera hann ljóð­rænni, setja meira drama eða bæta við kvar­tetti.“ 

Hrólfur reyndi þó að hafa sem minnst áhrif á sköp­un­ar­ferlið sjálft til þess að öll hug­mynda­vinnan kæmi frá gervi­greind­inni, sem var aðeins eina og hálfa mín­útu að skrifa heila óperu. 

Verkið fjallar um hóp áhrifa­valda og lýsir Hrólfur því þannig að aðal­per­sónan sé milli steins og sleggju með að skilja á milli veru­leik­ans og þess sem er gervi. Þessi hug­smíð gervi­greind­ar­innar er því nokkuð við­eig­andi þar sem hún er sjálf gervi, þrátt fyrir að geta búið til eitt­hvað raun­veru­legt með hjálp Hrólfs. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Hrólfur vinnur með vél­menni og segir hann sam­starfið hafa gengið vel. „Það kom mér á óvart hversu vel sam­inn text­inn var brag­fræði­lega og svo­leiðis.“

„Það kom mér á óvart hversu vel sam­inn text­inn var brag­fræði­lega og svo­leiðis“
Hrólfur Sæmunds­son

Nú veltur óperan hins vegar alfarið á honum sjálfum en Hrólfur vinnur hörðum höndum að því að semja tón­list við texta gervi­greind­ar­innar. „Ég var einmitt að klára fyrsta atriði í fyrsta þætti núna áðan,“ segir unga tón­skáldið glaður í sím­ann. 

Ekki er búið að negla niður sýn­ing­ar­staði fyrir óper­una sem stendur en spenntir les­endur geta hlustað á og séð hana ein­hvern tím­ann á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu