Fólk getur ekki með rökréttum hætti ímyndað sér hvernig er að eignast barn

Banda­ríski heim­spek­ing­ur­inn L.A. Paul hefur fjallað um heim­speki „umbreyt­andi reynslu“ í verkum sínum. Eitt helsta dæmið sem hún ræðir er ákvarð­ana­takan á bak við barn­eignir. Hún segir að sú ákvörðun geti ekki byggt á mati fólks á því hvernig for­eldrar það heldur að það verði þar sem börn breyti sál fólks.

Fólk getur ekki með rökréttum hætti ímyndað sér hvernig er að eignast barn
Að þorfa að kafa inn í hið óþekkta Banda­ríski heim­spek­ing­ur­inn L.A Paul segir að ákvarð­ana­takan um að eign­ast barn eða ekki snú­ist um að þora að taka áhætt­una á því að breyta sálu sinni. Hún kallar upp­lif­una að eign­ast barn „umbreyt­andi reynslu“. Mynd: Kristen Chavez

Hvernig verð ég sem for­eldri?

Þetta er kannski ein af stærstu spurn­ingum lífs­ins, sem margir spyrja sig að þegar þeir standa frammi fyrir því hvort þeir vilji og ætli að eign­ast börn. Í nútíma­sam­fé­lagi er þetta miklu frekar val hjá fólki en í gegnum tíð­ina í sög­unni. Þess vegna vegur fólk og metur þessa ákvörðun miklu meira núna en áður. Ef svarið við spurn­ing­unni um hvernig fólk verður sem for­eldri er „gott“ þá leiðir það mögu­lega til þess að það velur að eign­ast barn en ef svarið er „slæmt“ þá ákveður fólk kannski að sleppa því. 

Umbreyt­andi reynslaÍ bók­inni ræðir L.A Paul um umbreyt­andi reynslu eins og barn­eignir og hvernig ekki er hægt að taka slíkar ákvarð­anir með rök­réttum hætti með sams konar hætti og til dæmis hvort maður velur að fjár­festa í nýjum bíl.

Barneignir sem þekkingarfræðileg umbreyting

…

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Thordardottir skrifaði
    skv. þessum skrifum gerir Paul: í fyrsta lagi ráð fyrir því að það sé til sál (hvernig sem hún nú skilgreinir hana heimspekilega). Í öðru lagi virðist hún ekki taka með í reikninginn að ríkjandi menning á hverjum stað setur huganum (eða sálinni??) skorður, af því að hún setur ekki ákvarðanir fólks í samhengi við samspil einstaklings og umhverfis (menningar og gilda) . Hún virðist gera ráð fyrir að hugur manna starfi í frjálsu tómarúmi án menningarbundinna hafta. En það gerir skrif hennar samt forvitnileg út frá ýmsum sjónarhornum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár