Loftgæði á Íslandi þau bestu í Evrópu

Hvergi í Evrópu eru loft­gæði jafn góð og á Íslandi. Verst eru þau á Ítalíu. Þetta sýna nýjar rann­sóknir byggðar á gögnum úr gervi­tunglum. Um 98 pró­sent Evr­ópu­búa anda að sér spilltu lofti sem er yfir þeim við­miðum sem Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin setur.

Loftgæði á Íslandi þau bestu í Evrópu
Svifryk Tórínó á Ítalíu er ein þeirra borga þar sem svifryk mælist oft mikið í and­rúms­loft­inu. Fjöllin eru fal­leg en borgin liggur í dal og þar safn­ast mengun frá umferð og iðn­aði fyrir. Mynd: AFP

Við Íslend­ingar vitum það. En nú veit Evrópa það öll: Loftgæði eru hvergi betri í álf­unni en á Íslandi. Þetta má lesa úr nið­ur­stöðum rann­sókna sem þýski rík­is­fjöl­mið­ill­inn  Deutsche Welle (DW) og sam­tök blaða­manna sem ein­beita sér að gagna­úr­vinnslu unnu í sam­ein­ingu, m.a. út frá gögnum úr gervi­tunglum.

Frétta­punkt­ur­inn sem DW leggur áherslu á er sá að um 98 pró­sent allra Evr­ópu­búa bjuggu í fyrra á svæðum þar sem svifryk er yfir við­mið­un­ar­mörkum Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO). Í rann­sókn­inni var sjónum beint að fínum ögnum í and­rúms­loft­inu, hinu alræmda svifryki, sem sýnt hefur verið fram á að valdi sjúk­dómum í önd­un­ar­færum og æða­kerfi og stytti lífslíkur fólks.

„Margt fólk veik­ist vegna lélegra loft­gæða,“ segir Mark Nieuwenhuijsen, alþjóð­legu lýð­heilsu­stofn­un­ar­innar ISGlobal, við DW. „Og við vitum að með því að bæta loft­gæði þá drögum við úr veik­indum.“

Á toppnumSvifryk á Íslandi fór,sam­kvæmt gögnum DW, ekki yfir við­mið­un­ar­mörk WHO árið 2022

Hið fína ryk, sem á m.a. upp­runa sinn í allra handa iðn­aði, sliti á götum og úr útblæstri, telst orðið heilsu­spill­andi ef það fer yfir 5 míkrógrömm í hverjum rúmmetra and­rúms­lofts.

Landslag hefur mikil áhrif á útbreiðslu svifryks því það safn­ast saman í dældum og dölum þegar engir vindar blása því á haf út. Þannig var ástandið í Evrópu verst í mið­hluta álf­unnar, sér­stak­lega í Po-dalnum á Ítalíu sem og í stór­borgum á borð við Aþenu, Bar­selóna og París.

Betra loft í Evrópu en víða

Rannsókn DW var birt í enskri útgáfu á vef blaðs­ins í gær og sam­kvæmt henni náði árlegt magn svifryks á meng­uð­ustu svæðum Evrópu um 25 míkrógrömmum á rúmmetra.

Þrátt fyrir þessar nið­ur­stöður eru loft­gæði í evr­ópskum borgum almennt mun betri en víða í ver­öld­inni. Í Nýju-Delí á Indlandi og fleiri borgum þar í landi getur hlut­fall svifryks farið í allt að 100 míkrógrömm á rúmmetra.

Engu að síður getur það spillt heilsu fólks að búa við við­var­andi svifryks­mengun líkt og rann­sókn DW sýnir að eigi sér stað á nokkrum svæðum í Evrópu.  

Evr­ópu­sam­bandið hyggur á nýjar reglur um loft­gæði og sam­kvæmt drögum að þeim mega ekki mæl­ast meira en 10 míkrógrömm svifryk­sagna á hvern rúmmetra and­rúms­lofts­ins á árs­grund­velli. Það er tölu­vert yfir þeim við­mið­un­ar­mörkum (6 míkrógrömm á m3) sem WHO hefur sett.

Engu að síður yrðu loft­gæða­reglur þrengdar því í dag eru við­mið­un­ar­mörk innan Evr­ópu­sam­bands­ins 20 míkrógrömm á rúmmetra eða fjórum sinnum meira en við­mið WHO kveða á um. Gagnrýnt hefur verið að Evr­ópu­þingið ætli ekki að ganga lengra og er það sakað um að ein­blína á efna­hags­leg áhrif þrengri við­mið­ana fremur en á heilsu borg­ar­anna.

Ítalía í mengunarskýi

Í byrjun árs var svifryks­mengun á Ítalíu enn meiri en í fyrra. Verst var ástandið í borg­unum Mílanó og Veróna þar sem svifryk­sagn­irnar fóru yfir 75 míkrógrömm á hvern rúmmetra. Landa­fræðin skýrir ástæð­urnar. Þessar borgir eru umkringdar fjöllum og í þeim er mik­ill umferð­ar­þungi og fjöl­breyttur iðn­aður. Þá var vet­ur­inn kaldur og kynd­ing með jarð­efna­elds­neyti tíð­ari en oft áður.

Talið er að þús­undir manna deyi fyrir aldur fram úr sjúk­dómum sem tengj­ast mengun and­rúms­lofts­ins. DW rifjar t.d. upp rann­sókn sem birt var í lækna­tíma­rit­inu Lancet árið 2015 þar sem sýnt var fram á að fækka mætti dauðs­föllum í Mílanó um 10 pró­sent með bættum loft­gæðum.

Loftgæði á Ítalíu hafa ekki batnað síðan þá heldur versnað. Hins vegar, segir í sam­an­tekt DW, hafa loft­gæði batnað í Póllandi – eða öllu heldur skánað. Þau eru ennþá með því versta sem finnst í Evrópu en frá árinu 2018 hafa þau breyst hægt og bít­andi til hins betra. Skýr­ing­una á þessum umskiptum má rekja til ákvarð­ana stjórn­valda um að fækka kola­ofnum sem not­aðir eru til kynd­ingar á heim­ilum fólks. Því verk­efni er hvergi nærri lokið.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár