Hæstu vextir íbúðalána orðnir ellefu prósent og fleiri velja lífeyrissjóði

Líf­eyr­is­sjóðir njóta nú sífellt meiri vin­sælda hjá þeim sem eru að taka íbúða­lán. Ástæðan er ein­föld: kjörin eru mun betri en hjá bönk­unum. Einn stærsti íbúða­lán­veit­and­inn innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins mun þó hækka óverð­tryggða breyti­lega vexti skarpt um næstu mán­að­ar­mót.

Hæstu vextir íbúðalána orðnir ellefu prósent og fleiri velja lífeyrissjóði
Banka­stjóri Jón Guðni Ómarsson stýrir Íslands­banka. Sá banki býður nú upp á hæstu óverð­tryggðu breyti­legu vext­ina á íbúða­lánum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Heimili lands­ins eru í auknum mæli að færa íbúð­ar­lána­við­skipti sín frá bönkum og yfir til líf­eyr­is­sjóða. Ný veitt íbúða­lán líf­eyr­is­sjóða í júní og júlí voru sam­tals um 14 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar var heild­ar­um­fang nýrra útlána þeirra á árunum 2021 og 2022 23 millj­arðar króna. Júní­mán­uður var besti útlána­mán­uður líf­eyr­is­sjóða frá því í febr­úar 2020 og júlí var litlu síðri. 

Ástæða þessa er meðal ann­ars sú að hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins er hægt að fá skap­legri kjör á óverð­tryggðum íbúða­lánum en þau sem bank­arnir bjóða upp á. Sem stendur er hægt að taka óverð­tryggt lán á breyti­legum vöxtum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna á 8,85 pró­sent vöxtum. Sjóð­ur­inn til­kynnti hins vegar um mynd­ar­lega hækkun vaxta frá og með næstu mán­aða­mótum, en þá fara óverð­tryggðir breyti­legir vextir í 9,77 pró­sent. Það er hækkun upp á 0,92 pró­sentu­stig, eða vel umfram síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands sem var 0,5 pró­sentu­stig.

Stóru bank­arnir þrír hækk­uðu allir vexti á sams konar lánum í lok síð­ustu helgi. Þeir eru nú á bil­inu 10,75 til ell­efu pró­sent. Hæstir hjá Íslands­banka en lægstir hjá Lands­bank­anum. 

Þessar miklu hækk­anir á vöxtum hafa leitt af sér stökk­breytta greiðslu­byrði hjá þeim sem eru með breyti­lega óverð­tryggða vexti. Dæmi eru um að hún hafi tvö­fald­ast frá því að vext­irnir voru í lág­marki árið 2021, en þá voru breyti­legir íbúða­lána­vextir stóru bank­anna á bil­inu 3,3 til 3,43 pró­sent. 

Skýr merki eru um að margir lán­tak­endur eru að flýja þessa greiðslu­byrði og að færa sig yfir í verð­tryggð lán. Í júlí tóku heim­ili lands­ins slík lán hjá bönkum með veði í íbúð fyrir 15,7 millj­arða króna, sem er lang­hæsta krónu­tala sem bank­arnir þrír hafa lánað í verð­tryggð íbúða­lán í einum mán­uði. Alls jókst umfang slíkra lána milli júní og júlí­mán­aðar um 118 pró­sent.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Lífeyrissjóðirnir lengja í henginarólinni. Það er allt og sumt.
    0
  • Gunnlaugur Sigurðsson skrifaði
    Afhverju fara ekki Íslenskir ráðamenn til Færeyja og læra hvernig á að reka land.
    2
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Eru Færeyingar ekki tengdir Danmörku og fá stuðning til góðra verka þaðan?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár