Hefur kostað næstum hálfan milljarð að byggja ekki við Stjórnarráðið

Búið er að tyrfa yfir hol­una á bak við Stjórn­ar­ráð Íslands og fresta fram­kvæmdum á við­bygg­ingu við það, sem staðið hefur til árum saman.

Hefur kostað næstum hálfan milljarð að byggja ekki við Stjórnarráðið

Áfallinn heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fyr­ir­hug­aðrar við­bygg­ingar við Stjórn­ar­ráð Íslands er 468,8 millj­ónir króna á verð­lagi hvers árs. Nýbygg­ingin er ekki risin og mun ekki rísa í nán­ustu fram­tíð. Tilkynnt var um það í fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að bygg­ingu við­bygg­ing­ar­innar yrði frestað til að spara útgjöld og nýverið var bak­lóðin, þar sem fram­kvæmdir höfðu staðið yfir í nokkur ár, tyrfð. 

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um málið kemur fram að stærsti hlutur þess kostn­aðar sem þegar hefur fallið til sé vegna forn­leifa­upp­graftar. Á árunum 2017 til 2021 var hann bók­færður 267,2 millj­ónir króna. Kostn­aður vegna vinnu við und­ir­bún­ing nýbygg­ingar og lóðar er 181 milljón króna og var bók­færður á tíma­bil­inu 2015 til 2022. Þá er áfall­inn kostn­aður frá jan­úar til júní á þessu ári 20,6 millj­ónir króna en hann er kom­inn til vegna nýbygg­ingar og álita­mála vegna bygg­ing­ar­á­forma nágranna.

Aðspurður hvort ákveðið hafi verið að finna for­sæt­is­ráðu­neyt­inu …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SE
    Sv50 ehf. skrifaði
    Sæll Þórður
    Eins og ég er yfirleitt ánægður me þig sem blaðamann varð ég fyrir vonbrigðum með hvernig þú setur þessa fyrirsögn fram. Nóg er af slæmum fréttum þó ekki þurfi að dýpka málin með þessum hætti. Stór hluti af þessum kostnaði er fornleifarannsóknir og því er fullyrðing fyrirhafnarinnar röng. Kveðja Brynjar Harðarson
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár