Á dögunum komst Hannes Hólmsteinn Gissurarson í mikið uppnám þegar hann taldi barnungar stúlkur ætla að stela af sér ferðatösku í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, svo mikið uppnám að hann öskraði á börnin, segja sumir, ég var ekki á staðnum, því miður, en þó tel ég mig hafa heyrt þetta sama kvöld talsverð læti og þau voru ekki í veðrinu, það var klárlega öskur, kannski alla leiðina frá Keflavík, kannski ekki, en skyldi engan undra hafi Hannes öskrað því þetta er engin smá taska, þessi sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur dregið á eftir sér í svo mörg ár, sú taska hefur farið víða, hún hefur verið lánuð í margar ferðir, reynst betri en enginn, borið alla yfirvigt, léttilega, hlæjandi, taska svo stútfull af minningum og hugmyndum og tengslum, ég hef öruggar heimildir fyrir því að þetta tiltekna kvöld hafi í henni verið snyrtilega samanbrotin skyrta og tvö bindi, þarna var líka frelsi, sú tegund frelsis sem vegur ekkert og er þannig mjög hentug í ferðalög á milli landa og hugmynda og vina- og viðskiptasambanda, það er jafnvel hægt að byggja heilan feril á frelsi sem vegur ekkert, og þarna voru auðvitað sokkar og inniskór en einnig Kristján Loftsson sem einu sinni vann Frelsisverðlaun Heimdallar rétt eins og Hannes sjálfur og þau voru þarna líka: Frelsisverðlaun Heimdallar, og líka nokkrar bækur, til dæmis Handbók um hundrað kærleiksríkar leiðir til að drepa hvali en einnig skýrsla Hannesar um hrunið og neðarlega í töskunni, á öruggum stað, voru milljónirnar tíu sem fjármálaráðuneyti Bjarna Ben greiddi Hannesi fyrir að skrifa skýrsluna og mjög neðarlega í töskunni, bara alveg neðst, voru skítugar nærbuxur – en þannig er það með öll ferðalög, sama hvað það er mikið gaman, við komum heim með skítugar nærbuxur og sum okkar, reyndar langflest okkar, förum í gegnum það ferðalag sem líf í íslensku samfélagi er með þessar skítugu nærbuxur í farangrinum alla daga, nærbuxurnar af frekum karli sem þekkir ekkert frelsi annað en það að öskra á lítil börn og ég held að ég fari ekki með rangt mál þegar ég segi að það eilífa öskur sé hinn eiginlegi þjóðsöngur okkar Íslendinga.

Þjóðsöngur Íslendinga
Eilífa öskur „freka karlsins“ er að mati Dags Hjartarsonar hinn eiginlegi þjóðsöngur Íslendinga.
Mest lesið

1
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.

2
Valdimar varar við að leita sökudólgs í Tækniskólamálinu
Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, lýsti vonbrigðum með niðurstöðu Tækniskólamálsins á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að ljóst var að Tækniskólinn kæmi ekki í bæinn. Hann hefur ekki viljað svara spurningum um málið.

3
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
Umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs vegna fyrirhugaðra breytinga á félagaformi Orkuveitunnar var lögð fram á fundi borgarráðs í gær.

4
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
Þrátt fyrir stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan rétt til listsköpunar lýsa skólastjórnendur tónlistarskóla þungum áhyggjum af þróun mála. Aldurstakmörk hafi orðið til þess að vísa þurfti nemendum úr námi og aðrir komist aldrei að. Sífellt sé þrengt að starfsemi tónlistarskóla þar til þeir verði annaðhvort að sameinast eða loka.

5
Viðræður að hefjast um nýjan Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur skipað viðræðuhóp til að semja við Tækniskólann um að skólinn haldist í Reykjavík. Hafnarfjörður hafði áður samið við skólann um lóðir til uppbyggingar en reyndist svo ekki geta afhent þær.

6
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Fjármálaráðuneytið metur tekjutap ef gjaldahækkanir verða takmarkaðar við verðbólgumarkmið Seðlabankans vera 1,6 milljarða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina reiðubúna að takmarka hækkanir við 2,5 prósent ef aðrir leggi sitt af mörkum og kjarasamningar haldi.
Mest lesið í vikunni

1
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.

2
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi.

3
Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands fer í gegnum umdeildar greiningar og viðbrögð við þeim. Þá er einnig rætt um lærdóm hrunsins. „Mér finnst menn hafa tekið á sig of mikla sök“

4
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
Lögreglan hefur rætt við um tíu vitni sem voru á vettvangi þegar banaslys átti sér stað á Krýsuvíkurvegi. Beðið er eftir niðurstöðum úr vettvangsrannsókn.

5
„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
Guðrún Pétursdóttir kynntist starfi Grensáss þegar systir hennar slasaðist. Hún er nú formaður Hollvina Grensáss og fékk Messenger-skilaboð frá ráðherra um að fjármagn hefði verið tryggt fyrir viðbyggingu.

6
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, leggst gegn stólakaupum fyrir borgarfulltrúa sem gert er ráð fyrir í viðauka við fjárfestingaáætlun borgarinnar. Það gæti þó verið þörf á nýjum skjá í sal borgarstjórnar.
Mest lesið í mánuðinum

1
Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvarlegan mænuskaða og Katla Guðnadóttir sem lenti í dularfullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grensásdeild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heimaþjónustu. Barátta hennar hefur þegar skilað fordæmalausri ákvörðun í heilbrigðisráðuneytinu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auðveldara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

2
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
Skógræktar- og ferðaþjónustubóndinn og kennarinn, Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, situr í þriðja sæti hátekjulistans á Vesturlandi. „Þetta kemur mér verulega á óvart. Það eru margir stórlaxar á svæðinu,“ segir hún. Jóhanna vill helst að skattar hennar fari í málefni fatlaðra og betri vegi í Dalabyggð.

3
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.

4
Sagði af sér eftir skilaboð frá félagsmálaráðuneytinu
Félagsmálaráðuneytið sagði formanni endurhæfingarráðs að boða ekki til frekari funda. Hann baðst lausnar í kjölfarið. Ráðuneyti Ölmu Möller og Ingu Sæland hafa ekki náð saman um hlutverk ráðsins, sem átti að tryggja faglega ráðgjöf og samþættingu endurhæfingarmála á milli ráðuneyta.

5
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Ellilífeyrisgreiðslur hafa miðað við of lágt frítekjumark í nær áratug samkvæmt orðalagi laga. Milljarðar eru undir en Tryggingastofnun túlkar lögin út frá lögskýringargögnum. Skrifstofa Alþingis segir lögin ekki uppfylla kröfur og ráðuneytið hyggst skoða hvort þeim þurfi að breyta.

6
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
Þóra Jakobína Olsen Hrafnsdóttir fékk spurningu sem hún gat ekki svarað, fór heim og íhugaði svarið. Í kjölfarið breytti líf hennar um stefnu.



































Athugasemdir (2)