Séreignarleiðin fest í sessi og vilja ýta íbúðasöfnurum í að selja

Rík­is­stjórnin leggur fram hús­næð­i­s­pakka sem miðar að því að auka fram­boð íbúða, gera lána­kerfi og skatta­lega hvata sann­gjarn­ari og draga úr íbúða­söfnun fjár­festa til að skapa stöðugri hús­næð­is­markað.

Séreignarleiðin fest í sessi og vilja ýta íbúðasöfnurum í að selja

Rík­is­stjórnin kynnti í dag röð aðgerða og áætl­ana sem ætlað er að bregð­ast við bæði skorti á íbúðum og spennu á hús­næð­is­mark­aði – svo­kall­að­ann hús­næð­i­s­pakka. Pakkinn felur í sér breyt­ingar á lána­kerfum, skatta­legum hvötum og reglu­verki með það að mark­miði að gera almenn­ingi auð­veld­ara að eign­ast hús­næði og draga úr upp­kaupum fjár­festa á íbúðum.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra og Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, kynnti pakk­ann á blaða­manna­fundi síð­degis í dag. Vel fór á með þeim við kynn­ing­una og hrós­aði Kristrún þeim Daða og Ingu og ráðu­neytum þeirra fyrir góð sam­skipti í vinn­unni við pakk­ann.

Samkvæmt því sem þau kynnti ætlar rík­is­stjórnin ætlar að veita áfram­hald­andi heim­ild til skatt­frjálsrar ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar inn á höf­uð­stól íbúða­lána. Raunar á að gera þá ráð­stöfun var­an­lega var­an­leg. Þannig geta allir íbúða­eig­endur nýtt sér­eign­ar­sparn­að­inn til að greiða niður hús­næð­is­lán sín næstu tíu árin. Svo á að efna til sam­ráðs um leiðir til að auka þátt­töku almenn­ings í sér­eign­ar­sparn­aði. 

Þá boðar rík­is­stjórnin end­ur­bætt hlut­deild­ar­lána­kerfi, með mán­að­ar­legri úthlutun, tryggðri fjár­mögnun og rýmri skil­yrðum, þannig að fleiri geti nýtt sér úrræðið til að kom­ast inn á hús­næð­is­markað.

Draga úr hvötum íbúðasafnara

Áhersla er lögð á að draga úr hvötum til að safna íbúðum í fjár­fest­ing­ar­skyni. Frá 1. jan­úar 2027 verður dregið úr skatt­frelsi sölu­hagn­aðar hjá þeim sem eiga margar íbúðir.

Í dag er slíkur hagn­aður nær alfarið und­an­þeg­inn skatti og aðeins 0,2 pró­sent sölu­hagn­aðar ein­stak­linga af íbúð­ar­hús­næði var skatt­lagður árið 2024, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem stjórn­völd veittu við kynn­ingu pakk­ans. Þá verður afsláttur af fjár­magnstekju­skatti vegna leigu­tekna helm­ing­aður; lækk­aður úr 50 pró­sent í 25. 

Að mati stjórn­valda mun þetta draga úr þenslu á hús­næð­is­mark­aði og gera aðrar fjár­fest­ingar sem stuðla að verð­mæta­sköpun eft­ir­sókn­ar­verð­ari.

Auk þess hyggst rík­is­stjórnin leggja fram svo­nefnt „Airbnb-frum­varp“ sem tak­markar skamm­tíma­leigu við lög­heim­ili og eina aðra fast­eign utan þétt­býlis. Það er þó ekki ný aðgerð, því áður hafa þessi áform verið kynnt af rík­is­stjórn­inni. 

Draga úr vægi verðtryggingar

Rík­is­stjórnin boðar ekki beinar aðgerðir til að bregð­ast við vaxta­dómi Hæsta­réttar, sem úrskurð­aði að loðin ákvæði lána­samn­inga sem gera bönkum kleift að byggja vaxta­á­kvarðnir sínar á hug­lægum þáttum væru ólög­mæt. 

Rík­is­stjórnin seg­ist þó vera í sam­starfi við Seðla­banka Íslands til að eyða þess­ari óvissu, og von­ast er til að ný við­mið verði birt á næstu dögum, sem geti legið til grund­vallar verð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum.

Í kjöl­far vaxta­máls­ins hefur mynd­ast tals­verð óvissa á lána­mark­aði og hafa nokkrar lána­stofn­anir tíma­bundið stöðvað veit­ingu verð­tryggðra íbúða­lána á meðan unnið er að því end­ur­skipu­leggja lána­fram­boð sem sam­ræm­ist lögum. 

Í fram­hald­inu hyggst rík­is­stjórnin draga skipu­lega úr vægi verð­trygg­ingar á Íslandi. Daði Már sagði verð­trygg­ing­una „barn síns tíma“ og að hún drægi úr krafti stýri­vaxta Seðla­bank­ans. 

Nýjar reglur um lág­marks­hraða afborg­ana verða kynntar og taka gildi 1. jan­úar 2027. Stefnt er að því að þessi breyt­ing fari fram með góðum fyr­ir­vara og að önnur, örugg­ari lána­form komi í stað verð­tryggðra lána. „Þetta er eitt skref á veg­ferð­inni,“ sagði Daði en bætti við að sýnin væri skýr. 

Styðja við nýtt fjögur þúsund íbúða hverfi

Rík­is­stjórnin boðar líka tals­verðar breyt­ingar á stjórn­sýslu hús­næð­is­mála. Tug­millj­arða eignir Hús­næð­is­sjóðs verða seldar til að lækka skuldir rík­is­ins og áform eru um laga­breyt­ingar sem fela í sér skrán­ing­ar­skyldu leigu­samn­inga og sam­ein­ingu Skipu­lags­stofn­unar og Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Þá er liður í áætl­unum að hraða upp­bygg­ingu á 4.000 íbúða hverfi í Úlf­arsár­dal. Það verður byggt upp í sér­stöku inn­viða­fé­lagi. Samkvæmt kynn­ing­unni er meg­in­for­senda þess­arar upp­bygg­ingar sú að íbúð­irnar muni að mestu leyti henta ungu fólki og fyrstu kaup­endum. Ríkið ætlar að veita stofn­fram­lög til þess­arar upp­bygg­ingar og hlut­deild­ar­lán eiga svo að nýt­ast þeim sem kaupa þær. 

Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri tók þátt í fund­inum þegar þessar aðgerðir voru kynntar. Hún og Inga þökk­uðu hvor annarri fyrir sam­starfið við vinnslu til­lagn­anna. Inga sagði upbygg­ingu í Úlf­arsár­dal væri fyrsta skref þess sam­komu­lags sem meiri­hlut­inn í borg­inni hefði sam­mælst um, þegar Flokkur fólks­ins gekk til liðs við Sam­fylk­ingu, Sós­í­alista og Vinstri græna í nýjum meiri­hluta í borg­ar­stjórn í febr­úar. 

Hækka stofnframlög

Rík­is­stjórnin hyggst sam­hliða þessu öllu hækka stofn­fram­lög til óhagn­að­ar­drif­inna hús­næð­is­fé­laga, eins og þess sem standa á að nýja hverf­inu í Úlf­arsár­dal, úr 30 pró­sent í 35. Mark­miðið er að tryggja að fram­lögin nýt­ist að fullu til upp­bygg­ingar fleiri almennra íbúða á við­ráð­an­legu verði.

Við­bót­ar­fram­lag rík­is­ins vegna íbúða fyrir náms­menn, öryrkja og félags­í­búða sveit­ar­fé­laga hækkar svo líka úr fjórum pró­sentum í fimm til að hraða upp­bygg­ingu leigu­í­búða sem þjóna tekju­lægri hópum og draga þannig úr hús­næð­is­skorti.

„Þetta er fyrsti hús­næð­i­s­pakki rík­is­stjórnar og það kemur annar í byrjun næsta árs,“ sagði Kristrún og sagði að sá pakki ætti að liðka fyrir bygg­ingu nýrra hverfa og upp­bygg­ingu á lóðum í eigu rík­is­ins. Þá boð­aði hún að ríkið myndi breyta hús­næði í sinni eigu í íbúðir. Slíkt verður kynnt síðar. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    "Ríkisstjórnin boðar ekki beinar aðgerðir til að bregðast við vaxtadómi Hæstaréttar, sem úrskurðaði að loðin ákvæði lánasamninga sem gera bönkum kleift að byggja vaxtaákvarðnir sínar á huglægum þáttum væru ólögmæt."

    Furðulegt að Hæstaréttur þurfi að dæma menn seka um að lána afleiðusaminga þrátt fyrir að afleiðusamningar séu ólögmætir nema þú sért fagfjárfestir.. en á hinn mátann geta bankar gert alla að fagfjárfestum sbr. íslandsbankamálið. Og Virðist sem sérstskur, ríkissaksóknari og lögreglan ásamt ríkisstjórnum og þingmönnum átti sig ekki á hvað skipulögð glæpastarfsemi er... en hún er 90 % fjármálalegs eðlis.. þó svo macho ímynd bíómyndanna sé enn ansi föst í mönnum. Og bankar eru þekktir fyrir að sleppa við refsingar... sbr. Deutche Bank sem hefur gert mörg hundruð samning um fésektir þegar almenningur þarf að sitja af sér dóma fyrir slík mál. Og í þessu máli vantar refsingar... því bankarnir vissu alveg þeir væru með ólögleg lán... og vissu þeir kæmust upp með það. Og blekking nýju ríkisstjórnarinnar er að hún setur engin lög sem taka á svona.... af hverju ekki ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár