Eldur tapaði fyrir RÚV og þarf að greiða hátt í milljón

Formaður Samtak­anna 22 tapaði fyrir RÚV í meið­yrð­ar­máli sem hann höfðaði gegn stofnuninni og einum starfs­manni.

Eldur Smári Kristinsson tapaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Eldur Smári Krist­ins­son tap­aði í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Mynd: Víkingur

Eldur Smári Kristinsson tapaði meiðyrða­máli gegn RÚV í Héraðs­dómi Reykja­víkur sem var kveðinn upp í dag, og þarf að auki að greiða samanlagt á níunda hundrað þúsund krónur í máls­kostnað vegna þessa.

Lögmaður Elds Smára boðaði forföll og var Eldur ekki viðstaddur uppkvaðningu dómsins.

Eldur Smári er formaður Samtak­anna 22 sem hafa verið gagnrýnd harðlega af hinsegin samfélaginu. Samtökin hafa verið sökuð um hatursáróður gegn trans fólki. Eldur Smári stefndi bæði RÚV og svo Bergsteini Sigurðs­syni, eins þátta­stjórnenda Kastljóss, vegna spurningar sem hann bar fram í þættinum Forystu­sætið fyrir síðustu kosningar. Þá var rætt við Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðis­flokksins og fyrrum forseta­fram­bjóðenda. Eldur var þá oddviti Frjálsynda flokksins í Norðvestur­kjördæmi. Ummælin umdeildu voru hluti af spurningu Bergsteins, sem spurði:


„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið til þjónustu. Oddviti flokksins í Norðaustur­kjördæmi, Eldur Smári Kristinsson, hann er formaður Samtak­anna 22, samtaka sem hafa …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Eldur Deville 😆 var réttnefni yfir þetta ógeðfellda himpigimpi þó hans nafn í dag sé annað...
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár