Eldur tapaði fyrir RÚV og þarf að greiða hátt í milljón

Formaður Sam­tak­anna 22 tap­aði fyrir RÚV í meið­yrð­ar­máli sem hann höfð­aði gegn stofn­un­inni og einum starfs­manni.

Eldur Smári Kristinsson tapaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Eldur Smári Krist­ins­son tap­aði í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Mynd: Víkingur

Eldur Smári Krist­ins­son tap­aði meið­yrða­máli gegn RÚV í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur sem var kveð­inn upp í dag, og þarf að auki að greiða sam­an­lagt á níunda hund­rað þús­und krónur í máls­kostnað vegna þessa.

Lögmaður Elds Smára boð­aði for­föll og var Eldur ekki við­staddur upp­kvaðn­ingu dóms­ins.

Eldur Smári er for­maður Sam­tak­anna 22 sem hafa verið gagn­rýnd harð­lega af hinsegin sam­fé­lag­inu. Samtökin hafa verið sökuð um hat­ursá­róður gegn trans fólki. Eldur Smári stefndi bæði RÚV og svo Berg­steini Sig­urðs­syni, eins þátta­stjórn­enda Kast­ljóss, vegna spurn­ingar sem hann bar fram í þætt­inum For­ystu­sætið fyrir síð­ustu kosn­ingar. Þá var rætt við Arnar Þór Jónsson, for­mann Lýð­ræð­is­flokks­ins og fyrrum for­seta­fram­bjóð­enda. Eldur var þá odd­viti Frjál­synda flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Ummælin umdeildu voru hluti af spurn­ingu Berg­steins, sem spurði:


„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Eldur Deville 😆 var réttnefni yfir þetta ógeðfellda himpigimpi þó hans nafn í dag sé annað...
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár