Þjóðverjar skera niður skrifræðið

Þýsk stjórn­völd kynna nýjan aðgerða­pakka til að skera niður og auka skil­virkni. Dregið verður úr sjálf­bærni­skýrslum og staf­ræn stjórn­sýsla inn­leidd.

Þjóðverjar skera niður skrifræðið
Kanslari og varakansl­ari Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands (t.h.), og Lars Kling­beil, fjár­mála­ráð­herra og varakansl­ari Þýska­lands, ræða saman fyrir viku­legan fund þýsku rík­is­stjórn­ar­innar í dag í kansl­ara­höll­inni í Berlín. Mynd: AFP

Rík­is­stjórn Þýska­lands sam­þykkti í dag aðgerða­pakka sem ætlað er að draga úr skrifræði í landi sem er alræmt fyrir íþyngj­andi verk­lags­reglur og papp­írs­vinnu.

Áætl­un­inni er ætlað að draga úr skrif­finnsku fyrir bæði fyr­ir­tæki og ein­stak­linga. Hún felur í sér minni kröfur um skýrslu­gjöf, aukna staf­ræna væð­ingu og ein­fald­aðar reglur um heilsu og öryggi.

Stafræna ráðu­neytið sagði í yfir­lýs­ingu að rík­is­stjórn Friedrichs Merz kansl­ara hefði þegar kynnt til sög­unnar íviln­un­ar­að­gerðir að and­virði þriggja millj­arða evra (450 millj­arða króna) frá því hún tók við völdum í maí.

Nýja pakk­anum er ætlað að styrkja þessar aðgerðir með 50 aðgerða­punktum, svo sem hrað­ari skipu­lags­ferlum og ein­fald­aðri vinnu­lög­gjöf.

Í frum­varp­inu er einnig lofað að draga úr skýrslu­gjöf um sjálf­bærni, flýta fyrir þróun far­síma­nets Þýska­lands og upp­bygg­ingu ljós­leið­ara, sem og inn­leiða staf­ræna fast­eigna­samn­inga.

Til við­bótar við þessa 50 punkta eru átta aðgerðir sem ráðu­neytið sagði að hægt væri að inn­leiða strax og myndu spara 100 millj­ónir evra.

„Rík­is­stjórnin hefur nú áþreif­an­lega áætlun um að draga úr skrifræði til langs tíma,“ sagði Karsten Wildberger, staf­rænn ráð­herra.

„Þetta er árangur sem Þýska­land hefur ekki séð í mörg ár,“ sagði hann.

Í sept­em­ber hvöttu sam­tök atvinnu­lífs­ins rík­is­stjórn­ina á neyð­ar­fundi með Merz til að draga úr skrifræði sem lið í aðgerðum til að end­ur­lífga erfitt efna­hags­líf.

Viðbrögð atvinnu­lífs­ins við pakk­anum voru blendin.

Joerg Dittrich, for­seti Sambands þýskra iðn­að­ar­manna (ZDH), sagði að rík­is­stjórnin hefði sýnt að hún „tæki bar­átt­una gegn skrifræði alvar­lega“.

En Thilo Brodt­mann, fram­kvæmda­stjóri sam­taka verk­fræði­iðn­að­ar­ins VDMA, sagði að áætl­an­irnar „stæð­ust ekki vænt­ingar“.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár