Þjóðhættir
Þjóðhættir #6819:16

Fjár­réttir á Íslandi fyrr og nú

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Hlustaðu · brot19:16 ·
· Umsjón: Dag­rún Ósk Jóns­dóttir, Sigurlaug Dagsdóttir

Síðast liðið sumar fengu þær Guðrún Júlíana Sigurðardóttir og Anna Karen Amin Kolbeins nemendur í þjóðfræði styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að rannsaka réttir í samtímanum og sögu rétta í gegnum aldirnar. Verkefnið ber heitið Fjárréttir fyrr og nú. Verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum: Þjóðfræðistofu, Sauðfjársetrið á Ströndum og bandaríska þjóðfræðinginn Rosa Thornley.

Anna Karen og Guðrún segja frá rannsókninni og hverju þær komust að. Anna Karen rannsakaði réttarbyggingarnar sjálfar en í gangi er skrásetning á staðsetningu rétta og réttarminja um allt land en einnig kafaði hún í fjölbreyttar heimildir um réttir fyrr og nú sem segja sögu þessarrar hausthátíðar á Íslandi frá tímum landnáms Íslands. 

Guðrún Júlíana tók viðtöl við átta eintaklinga sem öll hafa farið í réttir og grennslaðist fyrir um hvaða merkingu þessi dagur hefði. Þar kom t.d. í ljós að matur, gott nesti og góðir drykkir voru viss einkenni þessa dags en ólíkt var hvort að fólk upplifði hann sem hátíðlegan eða sem vinnu. Niðurstöður rannsóknarinnar kynntu þær á málþingi á Sauðfjársetrinu þann 12. október en einnig var sett upp sýning þar sem greinir frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar.

Handrit

2.326 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Skrásetning réttanna

Komið þið sæl og velkomin í Þjóðhætti. Ég heiti Sigurlaug og ég heiti Dagrún. Með okkur í dag eru Guðrún Júlíana og Anna Karen, þjóðfræðinemar. Velkomnar, gaman að segja ykkur frá þessu. Við erum stödd hérna, ekki á okkar heppnasta stað, því við erum á Þróunarsetrinu, þar sem rannsóknasetur Háskóla Íslands í þjóðfræði er. Er þetta ekki Hólmavík? Og ætlum að spyrja þær Önnu og Guðrúnu út í nýsköpunarsjóðsverkefni sem þær unnu í sumar. Get ég sagt ykkur aðeins frá þessu verkefni? Hvað snerist þetta um?

Okkar vinna var í rauninni að skrásetja þessar réttir og finna byggingarár, hvenær þær voru notaðar, hvenær var hætt, alls konar sögur, byggingarefni, lögun og bara allt sem við fundum á jörðinni um þær réttir. Svo tókum viðtöl við fólk.

Já, við tókum viðtöl við átta manns núna og ætlum að taka við fleiri í framhaldinu, eða það verður framhald. Jón stefnir á það og hérna, já, við höfum bara samband við fólk út um allt land, en þetta eru aðallega viðmælendur frá Ströndum af því þau voru mjög móttækileg og til í að koma í viðtal. Margir, sko, en margir feimnir sem þekktu okkur ekki.

Já. Hvað kom svo fram í þessum viðtölum? Hvað er þetta fyrirbæri, réttir? Já, sko, í viðtölunum byrjuðu allir á því að segja að þeir vissu nú ekkert og þetta væri nú bara svo hversdagslegt.

Og þeim fannst eiginlega ótrúlegt hvað mér fannst áhugavert að vita um réttirnar.

Matur og minningar úr réttunum

En já, þetta voru mjög skemmtileg viðtöl og það var mikið talað um minningar. Ef ég hugsa um viðtölin þá var matur stóri rauði þráðurinn í öllu. Það töluðu allir um mat og margir töluðu sérstaklega um Kókakóla. Þetta var bara eins og auglýsing fyrir Kókakóla. En já, þetta voru mjög skemmtileg viðtöl. Mjög gott að geta tekið viðtöl við fólk.

Var fólk þá að drekka Kók í réttunum?

Var það auðvitað af því það voru hátíðir? Tókuð þið eftir því að fólk væri að gera sér einhvern svona dagamun? Var fólk að hafa eitthvað gott í kaffinu eða gott í kvöldmat?

Já, algjörlega. Það var svona smurt nesti og sparinesti mjög algengt í viðtölunum. Fólk talaði um veisluna í skottinu, því þá var bara skottið opið á réttardaginn og þar voru alls konar kræsingar, bakkelsi, smurt nesti og hangikjöt. Alls konar, sko.

Og svo talaði fólk líka um réttarkaffi. Stundum eru kvenfélögin með það, spáðu í því. Við töluðum um það. Og svo var líka talað um að það væri mjög algengt að vera með kjötsúpu eftir réttir, hvort sem það var á öllum bæjum í sýslunni eða eins og á Selfossi, þar sem er réttarkaffi eftir réttirnar. Þannig að matur var langalgengastur.

Það var líka svolítið áhugavert í einu viðtalinu að í leitunum var hefð fyrir því að taka sviðakjamma með og borða þá á einhverjum tímapunkti. Þegar því var hætt voru smalarnir yfirleitt bara: „Bíddu, hver eru kjammarnir?“ Þannig að þeir voru að borða sviðakjamma uppi á einhverri heiði, uppi á einhverju fjalli, á meðan þeir voru að leita. Okkur fannst það mjög svona, já. Það sem var líka fyndið við það var að við spurðum viðmælandann: „Ertu með sviðakjamma?“ „Nei, nei, nei.“ Og bara: „Auðvitað, þetta er ekkert merkilegt.“ Svo þegar við spurðum aðra, þá bara: „Já, reyndar, það var alltaf sviðakjampi.“ Ég bara: „Ókei.“

Það byrjaði oft ekkert með þessu: „Ég veit ekkert hvað ég get svo sem sagt þér.“ Þau voru svolítið feimin fyrst, en þegar maður fór svona aðeins að koma þeim í gírinn var ótrúlega mikið af skemmtilegum sögum sem maður fékk að heyra, alls konar. Það þurfti bara aðeins að opna sig, og það áttu þau.

Kannski líka meira á því að þau höfðu mikið af hlutum að segja, sko. Þetta er áhugavert að blanda.

Réttir, byggingarefni og saga

Þetta er það, þú veist, spurningakönnunin, og ég skrifaði greinina út frá þessari spurningakönnun frá Þjóðháttasetrinu árið 2016. Á meðan tók annar karlinn bara gagnasöfnunina eiginlega alveg. Og hvað er að koma í ljós þegar arkitektúrinn er skoðaður? Er þetta réttirnar sem fólk er að nota í dag? Eru þær sérstaklega frá einhverju tímabili? Eru þær sérstaklega úr einhverju efni eða eru þær bara mjög ólíkar eftir svæðum?

Þetta er mjög ólíkt eftir svæðum. Við sjáum að vinsælustu réttirnar í hrauni eru til dæmis úr hraungrýti, og þær sem eru við strandlengjuna eru oft við fjöruborðið og hlaðnar úr grjóti sem þú getur fundið í fjörunni. Þær sem eru uppi á álendunni eða eitthvað eru yfirleitt við á eða upp við einhvern svona klettavegg sem er náttúrulegur réttarveggur. Og þær eru mjög ólíkar. Margar réttir eru á mjög litlu landsvæði. Ég fann oft sex réttarstæði á mjög, mjög litlu svæði, þannig að þær voru mjög ólíkar en samt höfðu allar sama tilgang.

En skemmtilegt hvað margar af þessum réttum eru ennþá notaðar í dag, og þær eru mjög gamlar. Síðan sérðu nokkrar nýréttir sem eru talsvert öðruvísi í laginu og svona. Þú sérð ennþá hringlaga réttir, og þær eru fyrtar. Það er svona eiginlega eina…

En í dag, var það kannski meira bara það sem þeir eru að gera þennan dag, eða var talað eitthvað um réttirnar sjálfar, svona umgjörðina?

Já, við spurðum í viðtölunum hvaða réttir fólki fyndust bestar, bæði í sambandi við byggingarefni og lögun. Fólk var alveg með skoðanir, sko, og margir sögðu að sýnrétt væri náttúrlega best.

En fólk hafði alveg skoðanir. Ég tók viðtal við kennara í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og hann fór svolítið út í hvað væri best fyrir kindurnar. Fólki þætti best að vera með steyptar, af því að við viljum ekki að þær sjái í gegn. Þá vilja þær fara úr dilknum. Bæði fyrir kindurnar og fólkið er best að vera með steyptar. En fyrir hringrétt er best líka, þegar hlaupið er hring, að þær fari ekki út í horn. Fólk er alveg með skoðanir á þessu, sko.

En var eitthvað í þessu ferli, bara að taka við og safna gögnum, sem kom ykkur á óvart?

Kannski bara einmitt hvað mikið var af þessu hjá öllum, eða mjög mörgum. Það kom á óvart.

Já, mér fannst það koma mér alveg á óvart hvað þær voru margar og miklu fleiri, því við byrjuðum með gagnagrunn frá Rósu, sem voru alveg þó nokkrar skráðar réttir, og hvað ég fann mörg hundruð fleiri réttir. Það voru minjar frá Minjastofnun, inn á nafnupunktum, sem virtust hafa verið að lýsa einhverri rétt út frá einhverjum staðháttum eða örnefnum, sem maður finnur og sér ekkert lengur. Og hvað þessi réttarmenning er í rauninni gömul, af því að það er lagabálkur í Grágás frá 12. öld. Þetta er um afréttarlönd og annað, og bara heill bálkur um sauðfé. Mér fannst gaman að sjá hvað þetta var í rauninni miklu eldra heldur en okkur dettur í hug.

Réttir sem vinna og samkoma

En réttarmenningin hefur kannski náð að taka breytingum og var á 19. öld orðin meira svona samkoma, svona vettvangur, heldur en endilega bara vinna. En svo er þetta að breytast aðeins núna aftur í bara þetta vinnuferli sem við sáum í viðtölunum.

Já, algjörlega. Allir sem ég tók viðtal við, eða allavega flestir, töluðu um að þetta væri miklu meiri vinnudagur heldur en einhver stemning, sko, og að það væri ekki tími til að hafa gaman í rauninni. Þið eruð bara að vinna, þetta þarf bara að klárast. En já, það bjóst ég alveg við fleirum að einhver væri að drekka og syngja og hafa gaman, en það var bara mjög, mjög lítið, sko.

Er allt í þessu bundið við ákveðin svæði, eða er þetta kannski alls staðar svona, að þetta er orðið meiri svona vinnudagur en svona stuð? Mér fannst ég sjá mikla tengingu á milli stóðrétta. Ef það var stóðrétt líka, þá fannst mér ég sjá meira af svona drykkjuskap og þess háttar, alla vega á greinunum sem ég las.

Já, en svo í viðtölunum þá tóku við hérna svo margir frá Hólmavík, og hér er alveg þekkt að erfið stemning, sko. Þannig hafði það kannski litað smá viðtölin, en ef ég hefði kannski tekið viðtal við fleiri sem fara í Auðkúlurétt, maður sá svo oft að það var drukkið í Auðkúlurétt. Ég sá það í spurningakönnuninni frá 2016.

Já, ef ég hefði tekið viðtal þar, þá hefði heildaryfirlitið varla breyst. Mesta mikið í Norðurlandi eystra og sérstaklega í Skagafirði og annað, þá fannst mér ég sjá fleiri dæmi um að það hafi verið drykkja og stundum slagsmál, en það hefur náttúrlega alveg komið.

En það var líka gaman, sko, að við fórum í Skarðsrétt núna á þessu ári og þar hafði aldrei verið drukkið. Síðan var þarna hann Finnur, sem á Galdurbrúghús, hann var að bjóða fólki upp á bjór. Þannig að það er kannski svona ný hefð að skapast. Það var ekki endilega mikil drykkja, en það var samt boðið upp á nokkra örlitla bjóra fyrir vinnuna sem fór.

Þarna var brugghúsið allavega að koma með bara svona bala og bjóða fólki upp á bjór.

Persónuleg reynsla af réttum

En þið fóruð í Skarðsrétt núna. Hafið þið mikið farið í réttir? Er þetta eitthvað svona sem þið hafið tekið þátt í gegnum tíðina?

Ég nefnilega ekki, sko. Ég fór þegar ég var bara lítil og mér fannst ekkert varið í það, og hef aldrei verið neitt mikið fyrir búskapinn, sko, á meðan systkin mín eru bæði mjög mikið til í þetta. En ég var aldrei til í þetta, mér fannst þetta ekki skemmtilegt.

Það er líka kannski stundum bara svolítið gagnlegt sjónarhorn að koma þessu svolítið blankó. Ég var bara búin að fara einu sinni áður í Skarðsrétt 2015, af því að tengdafjölskyldan mín á ættir að rekja og á skyldmenni sem eru með rollur hérna í sauðfjárrækt. Þar var mín fyrsta minning sú að fólk var gefið saman í miðri réttinni, þannig að kom Hilmar allsherjarkvæði og var að gefa fólk saman inn í miðri réttinni.

Þannig að það var mín fyrsta upplifun af réttum, sem var mjög fallegt, svona falleg tengsl við réttarmenninguna. En svo hef ég ekkert gert að þessu. Bara alin upp í Reykjavík, en er núna búin að fara í tvær réttir eftir að þetta verkefni byrjaði. Og það var ótrúlega tilfinningaþrungið. Þetta hafði allt öðruvísi þýðingu fyrir mig, og sérstaklega í Skarðsrétt; fólkið kom með kindurnar niður af fjallinu á heiðinni og þetta var svo ótrúlega fallegt. Ég held að ég muni alltaf fara í réttina núna eftir þetta.

Já, en hvernig fannst ykkur að vera í réttinni og fylgjast með, kannski svona með þjóðfræðinginn á nöðunum?

Já, mér fannst það hérna bara mjög gaman. Ég fór ekki í Skarðsrétt, ég fór bara hérna í Skeljaukurétt, man ég. Það var kannski aðeins minni stemning þar, það var líka grenjandi rigning. En já, já, það var ógeðslega gaman, sko. Ég tók eftir eftir á að ég fór í fötum svona eins og ég væri að reyna að fitta inn. Ég var alveg í sextugssex pollagallanum og lopapeysunni og fólk var alltaf að spyrja mig hvort ég væri að fara að draga. Það er greinilega einhver svona klæðaburður þarna.

En hérna, nei, það var mjög gaman, sko, með þjóðfræðigleraugun. Þú fórst til búninga?

Ég fór í búning. Ég held að lopapeysan sé líka svona staðalbúnaðurinn.

Samhliða því að hafa farið með fjölskyldunni í Skarðsrétt og ég setti þjóðfræðigleraugun á mig, þá tók ég eftir því að þessi nestismenning var mjög mikil. Þú varst bara með skottið opið og það voru allir að koma saman.

Fá sér kaffi og brúsa og fá sér smurt. Ég sá ekki eina einustu manneskju sem var ekki með bros á vör. Og þú sást kalla sem voru aldrei nálægt réttinni, þegar þeir voru að horfa á vinnuvélar og standa á talinn vinnuvélarnar. Krakkarnir voru hoppandi og skoppandi.

Svo voru sumir að draga en sumir að fylgjast með, en það voru allir glaðir. Þetta var rosalega fallegt, þótt...

Þetta sé kannski svona vinnumenning sem er svolítið að sækja sig veðrið aftur, þá er þetta samt líka gleðilegt að einhverju leyti og tilefni til að borða betra nesti.

Niðurstöður og framhald verkefnisins

En hvað, nú eruð þið væntanlega að kynna eitthvað verkefni eða svoleiðis. Og hvað ætlið þið svo að gera? Ætlið þið að búa til einhverjar greinar? Við vorum ekki komnar lengra með það.

Svo kynntum við líka niðurstöðurnar okkar á málþingi hérna í Sauðfjársetrinu og við erum báðar með erindi. Ekkert ákveðið eftir það, sko. Og hvað vorum við að tala um á þessu málþingi?

Ég varð alltaf að fara í viðtölin og greinina smá, en aðallega viðtölin og svona rauða þráðinn sem sést í gegnum viðtölin. Eiginlega bara það sem ég var að gera í sumar. Ég er að tala meira um svona...

...sögu og upprunaréttina og er að fara svolítið meira í byggingarnar, en tek líka smá hefðir út frá því sem ég sá í gömlum greinum í tímaritum, svo já, bara alla þessa heimildasöfnun.

Einnig lá áhugavert líka hvernig þetta teygir sig yfir tímann, sko, að önnur er kannski meira að skoða þetta í fortíðinni og hin hvernig þetta birtist í samtímanum í dag.

Þetta eru svona líkindi. Hún er svolítið samtímaþjóðfræðingur á meðan ég er aðeins meira í því að... Það var fullkomið þegar Jón var að segja okkur frá verkefninu í byrjun sumars og hann var að segja akkúrat hvaða hluti við værum að fara að gera og við horfðum á hvar...

...þeirra. Og bara: „Ég vil gera þetta.“ „Já, ég vil gera þetta.“ Bara, jæja, fullkomin verkaskipti.

En þú ert nú búinn að þurfa að díla við mikið af svona verkefnum frá mér í námskeiðinu. Ég held: „Má ég skrifa um réttir? Já, má ég gera þetta verkefni um réttir?“ Já, þannig að það er búið að vera mjög skemmtileg nýting á minni vitneskju allan...

...tímann til þess að nýta í þjóðfræðináminu. Bara nær að tengja þetta við ótrúlegustu þjóðfræðihugtök.

Algjörlega. Þið getið alveg séð fyrir ykkur að halda eitthvað áfram á réttar slóðum.

Já, ég verð alveg spennt að taka fleiri viðtöl núna, sko. Jón og Eiríkur voru að reyna að segja að þetta gæti verið flott bíóverkefni.

Algjörlega, þar er það ekki?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar

    Loka auglýsingu