Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Auður vinnur nú doktorsrannsókn sína um hvernig við getum breytt sambandi okkar við mat og neysluvenjum okkar í átt að aukinni sjálfbærni. Auður segir frá þverfaglegu rannsóknarverkefni sem hún tekur þátt í þar sem hún hefur meðal annars tekið viðtöl við fólk sem hefur breytt um matarræði og þá um leið neysluvenjum sínum með stórkostlegum hætti, til dæmis með því að verða grænkerar. Þá segir hún einnig frá öðrum hluta verkefnisins, tilraunaeldhúsi sem fór fram á Hallormsstað þar sem fólki var boðið upp á að prufa sig áfram með hráefni úr náttúrunni og skapa eitthvað nýtt og spennandi.
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Handrit
4.745 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan
Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Leiðin inn í þjóðfræði
Komið þið sæl og velkomin í nýjan þátt af Þjóðháttum. Ég heiti Sigurlaug. Og ég heiti Dagrún. Hjá okkur í dag er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Velkomin, Auður.
Takk fyrir. Viltu kannski byrja á að segja okkur aðeins frá því að þú ákvaðst þjóðfræði?
Já, það er nú svolítið síðan ég ákvað það. Þannig er að ég tók BA-gráðu í mannfræði, og áður en ég gerði það þá var ég að leiðast inn á listabrautina.
En ég man að ég var rosalega ung og vitlaus og ég gerði mér grein fyrir, og ég hugsaði: „Ég hef ekkert að segja, ég veit ekki neitt. Af hverju ætti ég að verða listakona?“ Mig langaði að vita meira aðeins um heiminn.
Þetta er svona stutta sagan af því hvernig ég endaði í mannfræði. En svo endaði ég í þjóðfræði af því að það var bara aðeins betri stemning í þjóðfræðideildinni, skemmtilegri partí, eða eftir því sem mér heyrðist alla vega.
Og svo hafði Valdimar haft eitthvað veður af því að ég væri í þessum pælingum, og það var svona hann endanlega kannski sem kippti mér inn í þjóðfræðina í meistaranámið, sem sagt.
Já, það var bara í COVID og ég var ólétt og ég var svona, vissi ekkert orðin.
Eða ekki kannski ung og vitlaus, en þá, en svona smá stefnuleysi gangi aftur. Og þá hitti ég Valdimar á kaffihúsi og hann kom með þessa pælingu að vera með í þessu þverfaglega verkefni með mér.
Mér fannst það líka góð hugmynd að fá að vera með í svona stóru rannsóknarverkefni.
Sögurnar sem þú vilt frá þessu? Þú ert að rannsaka sjálfbærni í matarháttum?
Já, mitt verkefni var hluti af stóru þverfaglegu rannsóknarverkefni sem var stýrt frá matvæla- og næringarfræðideild af Þórhalli Inga þar, og Bryndís Eva var líka mikið með því, og fleiri. Það bar heitið „Sjálfbært heilsusamlegt mataræði – vísindi sem vegvísir í átt að sjálfbærri framtíð“. Og það tók mig tvö ár að læra.
Og í því verkefni var fólk, já, mannfræðingar og næringarfræðingar, matvælafræðingar og svona fólk sem reiknar út umhverfisspor matvæla.
Og Listaháskólinn var líka með, hönnunardeildin þar, og líka hagfræðingur, eða ég sést úr umhverfi, svo iðlindafræðideild og fleiri. Og svo einn þjóðfræðingur, eða ég sést við Valdimar þá, hann sem leiðbeinandi minn.
Og finnst þér, eftir að hafa tekið þátt í svona þverfræðilegu og faglegu verkefni, hvað er það sem þjóðfræðin getur svona haft fram að færa í svona verkefni?
Sko, ég kannski segi stuttlega: Markmið verkefnisins var sem sagt að rannsaka frá ólíkum hliðum, á ólíkum stöðum í matarvirðiskeðjunni, hvernig væri hægt að stuðla að sjálfbærari og heilsusamlegri matarháttum, bæði þá neyslu og framleiðslu, hér í íslensku samhengi.
Það var og svona að þetta var svona mikið grunnrannsóknir líka, bara að komast að því hvar þyrfti að gera frekari rannsóknir og svona, hvar gæti nýsköpun komið að gagni og svo framvegis.
En þetta var mjög viðfemt, svona, já, mjög þverfaglegt, og ég lærði rosalega mikið sjálf um sjálfbært heilsusamlegt mataræði.
En líka bara hvernig aðrar vísindagreinar starfa. Og það tók mig smá tíma að átta mig á hvert mitt hlutverk væri í þessu stóra verkefni, að ég þurfti líka að vera að hugsa um mitt eigið fag, stuðla að einhvers konar framþróun innan míns fags og vera með báðar fætur þar einhvern veginn, en samt líka að vinna að einhverju svona stærra markmiði með.
Þjóðfræði í þverfaglegu verkefni
Þá innan samhengis sem kannski veit ekki alltaf hvað þjóðfræði gengur út á, þannig að mjög mikið í byrjun fór bara í að pæla í því og miðla því bæði til almennings og samstarfsfólks: hvað ég væri að gera. Það var auðvitað tryggt því að ég vissi ekkert alveg sjálf, sem er líka eitthvað sem við sem störfum við eigindlegar aðferðir og þjóðfræði og víðar, við sitjum aðeins þægilegar í óvissunni.
Við vitum hvernig veruleikinn er síbreytilegur og flæðandi og yfirleitt ekki neitt orsakasamhengi, og við erum bara svona: „Allt í lagi, skil.“ En maður þarf þá einhvern veginn að miðla þekkingunni þannig að þeir sem eru vanari að geta náð tölulega utan um veruleikann skilji hvað ég meina, að þau sjái eitthvað virði í því sem við höfum fram að færa, sem er einmitt meira að fara á dýptina í gegnum frásagnir fólks og upplifun fólks af því, til dæmis að breyta mataræði sínu.
Og svo, ég komi aftur að mínum þætti í rannsókninni, þá sneri hann að því að skoða upplifun fólks sem nú þegar hefur stigið einhver skref í átt að sjálfbærara og heilsusamlegra mataræði. Til dæmis fólk sem er vegan, en líka aðrir hópar, grænmetisætur og svona vistkerar, heitir það flexitarían, eða fólk sem hefur þá minnkað kjötneyslu töluvert eða alveg tekið út dýraafurðir, en líka þau sem eru að reyna að borða lífrænt ræktað eða vistvænt ræktað. Og hvað, já, svona slow food, já, það væri kannski hægt að segja svona á ensku alternative mataræði.
En í rauninni skipti bara máli fyrir mig þessir breytingarferlar og ekkert annað, því að vegan mataræði er ekkert alltaf heilsusamlegt og ekki alltaf sjálfbært heldur. En það kom mér ótrúlega á óvart hvað það var gagnlegt að fara í svona djúpviðtöl við veganfólkið og það gaf innsýn sem nýttist í stærra samhengi. Það er kannski líka, ef við komum aftur að þjóðfræðinni, því við erum alltaf að reyna að fara á dýptina, í smáatriðin, en samt alltaf með stærra samhengi, bæði sögulegt og í rúmi og tíma, alltaf að reyna svona að tengja þetta.
Ég er búin að fara út og suður.
Þú segir einmitt að það hafi verið mjög áhugavert að tala við fólk sem hefur breytt mataræði sínu á þann hátt að verða vegan. Hvað kom svona í ljós í þeim viðtölum? Það voru allt í allt 18 viðtöl við kalla og konur, allt frá rúmlega tvítugu upp í sextíu plús.
Reynsla vegan fólks
Og það sem kom mér kannski mest á óvart, því ég er nú ekki vegan sjálf og var svona meðvituð um allar þessar fyrirfram mótuðu hugmyndir um vegan fólk, var að þetta gaf einhvern veginn aðra mynd sem ég reyni síðan að miðla áfram í greinum og erindum. Það var bara hvernig þetta var svona fyrir mörg: það skipti eiginlega ekki máli af hverju þau urðu vegan í upphafi, en síðan enduðu þau öll á að íhuga bæði umhverfisvinkilinn og dýraverndunarvinkilinn og upplifa bætta heilsu.
Það kom til dæmis ótrúlega á óvart með karlmennina sem voru kannski komnir á miðjan aldur. Allavega þrír af þeim; þeir eru úr ekkert þar stórum hópi, ég held að það hafi verið sex.
Karlar og tólf konur, því að ég er nú til í að fleiri konur almennt séu vegan. Þrír af þeim urðu vegan fyrir áhrif dætra sinna, sem höfðu þá breytt mataræðinu sínu, sem hafði þá áhrif á heimilið allt. Og þeir urðu allir á endanum vegan. Einn sagði að það hefði bara haft svo trúlega góð áhrif á heilsuna og svo hefði hann farið að skoða sjálfbærnihliðina og dýraverndarhliðina.
Annar talaði um að maður hefði gert þetta svona til að styðja dóttur sína, af því að hún þurfti að gera það af heilsuástæðum mest, og hún vildi svona reyna að langa að vera bara venjuleg heima, ekki alltaf á sérfæði. Og hann upplifði líka svona ótrúlega víðtækar breytingar. Hann starfaði áður sem kjötæta, en þetta var svona dæmi um fólk sem sá aldrei sjálft fyrir sér að verða vegan.
Einn kom úr fiskþorpi, eða nei, sjávarþorpi, og annar var uppalinn á bóndabæ. Þetta var svona alveg akkúrat einhvern veginn öfugt við staðalmyndina.
Loftslagshamfarir, að það að borða er svona okkar nánasta tenging við náttúruna og gæti verið, ef það hefur svo mikið potensíal, já, að einhvern veginn nýta þá staðreynd. En á móti skapar ríkjandi fæðukerfi, iðnvædda fæðukerfið, svo mikla fjarlægð frá uppruna matarins.
Þetta var svona eitthvað sem ég nýtti úr veganviðtölunum, af því að þar er það svo skýrt einhvern veginn hvernig þau upplifa mjög líkamlegar breytingar samhliða svona siðferðislegri endurskoðun. Og svo verður þetta allt saman að finna á endanum og þau bara sjá ekki lengur kjöt sem mat. Þau eru bara búin að endurskilgreina mat.
En málið er auðvitað líka að þeir veganar sem ég tala við eru veganar því það er mataræði sem hentar þeim. Og við vitum alveg að veganfræði hentar alls ekki öllum. En ég þarf líka alltaf að nefna það: augljóslega veit ég að mjög margir hætta að vera vegan því það hentar þeim ekki heilsufarslega. En fyrir þau sem það hentar halda þau því áfram, og þá verða svona mjög víðtækar breytingar líka á því hvernig þau fara að læra um þessar neikvæðari hliðar fæðukerfisins.
Já, það var einhver annar þráður sem ég ætlaði að fylgja.
En er þá kannski eitthvað við það hvernig þetta fólk upplifir og gerir bara í sínum hversdegi, hvernig það breytir sínu mataræði, eitthvað sem við getum öll lært af eða nýtt okkur mögulega?
Að endurhugsa samband við náttúruna
Það var sá þráður, já, já. Hvernig við nýtum þessa innsýn inn í reynslu fólks sem hefur alveg tekið út dýraafurðir, en það eru ekki allir farnir að gera það. Það er ekki góð strategía heldur, sérstaklega hérna á Íslandi, þar sem fæðukerfið byggist bara á dýralandbúnaði, eða að mestu leyti.
En það þarf að fara einhvern veginn milli. En það er þessi endurskoðun í gegnum það sem þú ert að innbyrða, þegar það verður einhvern veginn meðvitaðri athöfn. Að borða er á sama tíma líkamleg og menningarleg athöfn, og það eru mjög mikil tækifæri þar til að nota það að borða sem tæki til að endurskoða til dæmis samband okkar við náttúruna. Það gerðist hjá mörgum sem urðu vegan, að þau fóru svona að endurskilgreina líka sig sjálf.
Í náttúrunni og upplifa sig núna sem meiri hluta af náttúrunni, en ekki staðsetja sig sem manneskjur ofar dýrum. Já, það verður svona einhver heildræn umbylting í því hvernig þau hugsa og staðsetja sjálf sig.
Þannig að ég fór að hugsa: Ókei, er hægt að víkka þetta aðeins út og nota bara mat almennt, ekki endilega taka út allar dýraafurðir, en bara hvernig er hægt að gera það aðeins meðvitaðra? Nota mat aðeins meðvitaðri til að endurskoða og kannski endurhugsa samband okkar við náttúruna, sem er það sem þarf að gera til að takast á við loftslagshamfarirnar af mannavöldum.
Og þá, sem sagt, við gerðum svona viðburð, Sjálfbærni í eldhúsinu. Og við fórum nokkur úr verkefninu og héldum svona stutt erindi um morguninn á laugardegi í maí. Við vorum í góðri samvinnu við Hallormsstaðaskóla.
Þau sáu um að auglýsa og heyra í fólkinu sem þau héldu að hefði áhuga á að koma. Það kom svona bara fólk af svæðinu, bæði almennt áhugasamt fólk en líka fólk sem vinnur kannski við eitthvað matartengt eða sjálfbærnitengt, og hlustaði á erindin. Svo var hádegismatur þar sem voru umræður, og svo eftir hádegi var tilraunasessjón.
Þar voru þau í Hallormsstað búin að safna ótrúlega miklu af hráefni af svæðinu, bæði óunnu hráefni sem er afgangs úr einhverjum iðnaði eða einhverri framleiðslu. Já, líka hreindýr. Þau eiga lager af alls konar, og líka frosin ber og þurrkuð ber og jurtir, og líka frá smáframleiðendum á svæðinu.
Það er alls konar, meðal annars framleiðsla sauðfjárafurða og að vera að rækta wasabi-urt og svo líka með sér bjór og eitthvað sterkt áfengi, gin eða, man það ekki alveg. Öllu þessu var bara safnað saman og svo bætt við eggjum og smjöri og einhverju sem þarf til að elda.
Svo vorum við tólf allt í allt, en við vorum sjö eða átta þátttakendur á svæðinu og síðan við úr rannsóknarteyminu. Svo bara fórum við að elda úr þessu og það voru engar uppskriftir eða nein fyrirmæli.
Ég var þarna sem rannsakandi, svona eigindlegur rannsakandi. Þetta var svona þátttökuathugun fyrir mig, þannig að ég var alveg með í að elda líka. Við vorum með loðnu, þannig að ég var að verka loðnu og bjó til svona litlar kökur úr hrognunum. Jón Þór, mitt þjóðfræðingur, var með í þessu og hann bjó til svona tiljaskyrsósu með þessu. Já, við vorum bara öll í einhverri svona tilraunamennsku.
Tilraunir í sjálfbæra eldhúsinu
Svo eftir viðburðinn tók ég viðtöl við þátttakendurna af svæðinu, sem voru þá sjö viðtöl held ég við átta þátttakendur. Það sem var líka skemmtilegt er að í þeim viðtölum kom svo ótrúlega margt svipað upp og í veganviðtölum, svona í sambandi við nýja sýn og nýja tengingu við hráefni og að horfa á mat með aðeins öðruvísi augum.
Mörg í veganmataræðinu tala líka um að veganmataræði sé meira skapandi mataræði, út af því að taka kjötið burt, sem maður upplifir einhvern veginn sem miðju alls í máltíðinni. Þá þarf bara að endurhugsa máltíðina, þannig að veganmataræði fól í sér, fyrir mörg af þeim sem ég tók í viðtal við, svona frelsi til að prófa sig áfram.
Það var svolítið það sama þarna, þó að það hafi verið kjöt og dýraafurðir með, en það var svolítið um frelsi til að prófa sig áfram. Já, og við fórum líka út að tína. Ég gleymdi að segja það áður en við byrjuðum að elda, fórum við út að tína þar sem...
Það var komið þarna í maílok, sem var alveg slatti. Það voru birkilauf og fíflar og kvönn og njóli og eitthvað svona alls konar sem hann myndi ekki venjulega taka með sér inn í eldhúsið, elda með. En þarna var allt leyfilegt. Og þau í viðtölunum töluðu þá um að þetta hefði svona opnað augun fyrir næst fleiri möguleikum, sem er svona svolítið svipuð stef og í veganviðtölunum.
Og svona að fara úr einhverju ákveðnu mynstri og uppgötva eitthvað annað. Og já, tenging við hráefni og líka svolítið svona þarna, á því að við vorum að pæla þar í líkir staðbundinni matarframleiðslu. Þá kom líka inn svona tenging við ömmur okkar, sem gerðu þetta bara sem hluta af þeirra daglega lífi og sem er svolítið þekking sem er að glatast. Þannig á þau líka að spá í því.
Já, á því. Svo líka í vikunúmer tvö, grein númer tvö, sem fyrsta greinin fjallar svolítið með dagasemja var talin áðan, svona hvernig líkamleg, hvernig ég að borða er svona líkamleg og menningarleg athöfn. Það fléttast allt saman og allt í einu er kjöt ekki lengur matur.
Veganismi og félagsleg tengsl
En í grein númer tvö var meira um félagsleg tengsl, af því að við vitum líkamlega að það er erfitt að vera vegan í kjötsamfélagi. Sú grein er svolítið um þeirra sjónarhól, hvernig þau díluðu við það og hvernig þau fóru að því, því náttúrlega, hvernig þau borðuðu er svo nátengt bara grunngildum.
Ef þau voru ekki bara að biðja um öðruvísi mat, þau þurftu líka að útskýra af hverju og eitthvað svona í náinni fjölskyldu. Þá þurfa þau eiginlega að finna út úr þessu. Það er ekki hægt að kvitta á öll félagsleg tengsl, en þá yrði að dreifa gildum í gegnum athöfnina að borða saman, sem er ekki hægt að komast hjá því að borða með fólki.
Og það kom líka svolítið, eða sko, þessi mannlegu tengsl, og þið töluðuð mikið um það, nokkur í viðtölunum eftir Sjálfbærnieldhúsið, hvað væri mikilvægt að tengjast fólki sem er með kannski sama áhuga. Mörg töluðu líka um að þau vissu ekkert af öllu sem væri verið að framleiða á svæðinu.
Og það var líka svona nettó gagn að þau tengdust hvort öðru, og þá felast svo miklir möguleikar í því. Og svo alveg ári seinna heyrði ég í einni sem hafði tekið þátt, að því að hún fékk styrk fyrir svona samfélagslegu verkefni tengdum mat.
Og ég heyrði bara aðeins í henni og þá sagði hún: „Það hefði verið svo mikilvægt fyrir hana að taka þátt í þessu, því hún hefði séð fleiri möguleika og hvað skiptir miklu máli að tengjast í gegnum mat.“
En þetta var þá líka upplifunin í veganviðtölum. Fólk sem er vegan leitar í svona samfélag annarra sem eru þar líka. Þá, já, algjörlega. En svo líka samt þarf það að halda í þau félagslegu tengsl sem eru þegar fyrir hendi: bara nánasta fjölskylda á jólamatnum og fermingarveislurnar og allt þetta. Það geta þau ekki sleppt, þannig að þau þurfa að finna leið til að vera vegan í þeim aðstæðum.
Stundum felur það í sér að fá sér stundum vöfflur, þó það sé mjólk, og sumir svona losa aðeins um mörkin hjá sér. En aðrir gera fjölskyldumeðlimum auðveldara fyrir með því að taka með sér eitthvað. Stundum kom svona móment. Það var ein til dæmis, ég bara man hvað ég var glöð þegar systir mín hringdi í mig fyrir barnabarnið og spurði hvernig hún ætti að búa til veganköku.
Það var svona breakthrough í hennar fjölskyldu þegar fólk byrjar að vera aðeins opnara. En það er auðvitað út af því að þau hafa þá ekki gefist upp, en það er þá væntanlega út af því að þetta mataræði hentar þeim bæði líkamlega og er líka í samræmi við þeirra grunngildi. Þá held ég að verði auðveldara að takast á við.
félagslegu aðstæðurnar, ef þetta er svona alveg mjög djúp sannfæring. En svo mörg áttuðu sig á því að það hefur engan tilgang að predika.
Já, ég gleymdi að segja að þið hafið líka spurningaskrá í gegnum Sarp hjá Þjóðminjasafninu um sjálfbært mataræði, og þar var stór hópur af vegan fólki sem svaraði henni. Það kom líka inn í gögnin mín og það var svipuð niðurstaða þar í sambandi við þetta félagslega, að það væri mikil áskorun. En ein sagði að hún hefði lært að það þjónar…
En þetta eru tvö þemu sem við erum búin að nefna, með líkamlegu áhrifin og svo það félagslega. Svo ertu að taka eitthvað í viðbót, sko? Það væri í rauninni bara þriðja greinin um sjálfbærnieldhúsið.
Og sú grein er einmitt líka svolítið um framlag þjóðfræðinnar í svona verkefni. Óli hans er jafn… hvað ég sagði gáfulegt þar.
Óvissa og tilraunamennska
Það var líka bara ferli. Ég var líka svolítið að bera saman, ef ég man rétt, því ég er búin að vera að vinna í hinum tveimur, síðan þetta óvissuferli sem felst í því þegar kemur saman vísindafólk úr auðvitað ólíkum greinum, mjög ólíkum kannski.
Þá er bara ákveðið ferli óvissu sem getur verið mjög óþægilegt, en maður þarf svolítið bara að sitja í henni og treysta því að á endanum muni einhver sameiginlegur grundvöllur verða til. Og hann er ekki endilega eins og þú kannski sást fyrir þér. Það er líka tilgangurinn, held ég, með svona þverfaglegumörkum, að hefja sig yfir vissu.
Það verður eiginlega bara eitthvað allt annað úr því en það sem við þurfum líka, ef við förum aftur í loftslagskrísuna. Ekkert af því sem við erum búin að vera að gera hingað til hefur gengið; það þarf að gera eitthvað allt annað.
Það var svolítið svipað með sjálfbærnieldhúsið, að það voru sum sem sögðu í viðtalinu: „Ég vissi enga uppskrift. Ég hélt að við myndum vera að horfa á einhvern annan elda,“ og eitthvað svona. En svo var annað fólk sem er greinilega vanara tilraunamennsku, sem var svona reið á vaðið, og svo voru sum aðeins meira hikandi, en þau fylgdu samt.
En svo eftir svona korter, tuttugu mínútur, þá voru bara öll komin í sinn gír, að leyfa sér að gera tilraunir og spjalla saman. Það hafði svona tímabil þar sem enginn veit hvað hann er að gera, hvað hann á að gera, en það er allt í lagi. Svo verður eitthvað úr því á endanum; allavega lærir maður eitthvað. Við ættum kannski öll að vera óhræddari við að gera tilraunir í okkar eldhúsi. Við erum tímann og matinn og…
Ég ætla að gera einn kafla í hryggjarninni út af því að mér finnst bara að við þurfum meiri tíma til að lifa og til að borða. Þannig að hraðinn í samfélaginu er kannski ekki að gera okkur auðvelt að vera sjálfbær.
Nei, alls ekki. Og það er líka svo margt sem stangast á. Margir sem ég talaði við í öllum viðtölum, hvort sem þau voru vegan eða þarna fyrir austan Hafnarfjörð, sögðu: „Ef ég ætlaði að borða staðbundið, þá þarf ég að eiga bíl og keyra á þennan bæ og þennan bæ og þennan bæ.“ Og svo sögðu veganarnir kannski: „Ég vil líka minnka matarsóun, en um daginn kippti einhver óvart túnfisksamloku handa mér, sem hann hélt að væri vegan, og þá bara að henda túnfisksamloku…“
Þegar það verður svona flókið í daglegu lífi, og það er ekkert sjálfsagt eða víst, þá er einhvern veginn alltaf hægt að… já, svo mikið svona þversagnir sem fólkið þarf að díla við, og við öll í daglegu lífi.
Annað, það er líka svona þessi óvissa, en einmitt mig langaði aðeins að skoða betur þetta með tíma. Við þurfum að framleiða minna af hlutum og afurðum, og það er líka eitthvað sem er kannski hægt að gera í gegnum mat: að fá bara fólk til að taka meiri tíma í að pæla hvað það er að setja ofan í sig og hvaða áhrif það hefur á jörðina og aðrar lífverur í kringum það. En hvaðan á sá tími að koma? Það eru allir: „Ég hef ekki tíma til þess. Ég borða ekki mjög sjálfbært né heilsusamlega.“
Gildi sem erfitt er að mæla
Það sést þó ekki núna á lokametrunum í doktorsnáminu, þannig að… en demil, að svo já, eða ókei, framlag mitt í þetta verkefni er þá kannski aðeins sem sumir myndu upplifa sem meira bara svona ekkert svona inntansibúl, ekkert sem er hægt að grípa, ekki sem er hægt að setja í skýrslu. En ég er ósammála því og þess vegna langaði mig líka að prófa þetta sjálfbæra eldhús, sem er bara mjög áþreifanlegur viðburður um mjög bókstaflega áþreifanlegt allt saman, og viðtölin mjög áþreifanlegur vitnisburður um tilgang og hvað getur komið út úr því að gera, að fá fólk saman í kringum mat.
Það á auðvitað við um aðra grunnhluti, bara þegar fólk kemur saman, deilir hugmyndum og þekkingu og reynslu, en þá gerist alltaf eitthvað. En það fer alltaf minnstur peningur í það; allur peningurinn fer í að búa til app, eða það var alltaf mín reynsla þegar ég var að vinna mikið innan tónlistarverkefna, svona femínískum tónlistarverkum. Og einu sinni sagði ég, held ég: „Við ættum bara að setja í umsóknina að við ætlum að gera app.“ Svo segjum við: „Við höfum reynt það og það gekk ekki,“ en svo notum við bara peninginn í að gera allt sem við erum að gera núna. Veist, maður sér það svo skýrt þegar maður vinnur með fólki, hvað hefur mikil áhrif að bara koma fólki saman og það valdeflir hvert annað í kringum eitthvað málefni og öðlast einhverja nýja reynslu sem það síðan tekur áfram.
Og þetta er bara eitt pínulítið dæmi, en þú ert ein sem kom í sjálfbærn… og hélt svo áfram að byggja upp verkefni í sínu samfélagi, og það er ekkert hægt að mæla tölulega hversu marga hún er búin að hafa áhrif á með sínu verkefni. Og sumt er ekki hægt að setja tölur á. Já, ég er líka svolítið að vinna með það, eða mig langar að gera það í þessum þverkvæluverkefnum. Ég er líka í einu svona viðrén-svipuðu verkefni í Þýskalandi.
Og það er svona pressa að ofan, þeir sem eru að manna sér að styrkina, þeir vilja sjá einhvern árangur og afrakstur, og ég veit alveg að þau vilja bara eitthvað sem er hægt að telja og flokka. Það er ýmislegt í heiminum sem er mjög mikils virði en mjög erfitt að telja. Og er þetta ekki líka einmitt, þú veist, það góða púsluspil hjá þessu með einmitt þegar það er ekki hægt að setja það í einhvers konar töflu eða mæla það með tölum eða setja það fram einhvern veginn sem eitthvað vaxandi eða í einhverju vaxandi? Þú ert þakklát eða veist…
Þá flækjast hlutirnir ótrúlega fyrir okkur, sem er svolítið skrýtið, þegar við erum nú flest öll… Og það er kannski okkar hlutverk, gætum mögulega sagt, okkar hlutverk núna sem þjóðfræðingar þegar kemur að sérstaklega loftslagskrísunni og vistkreppunni, að þurfa að endurskoða bara mjög margt í daglegu lífi. Og okkar hlutverk er þá, af því að við erum bara mjög góð í að varpa ljósi á daglegt líf, það er það sem fræðin byggjast á eiginlega, og koma auga á hluti sem öðrum yfirsést, en…
Okkar hlutverk er ekki síður að sýna fram á gildi þess. Það er kannski flóknara. Ég var fyrst í svona þverfaglegu samtali og þá þurfti ég að móta efnið mitt mjög mikið niður í: „Hér var spurning, hér er vagninn, þetta eru niðurstöðurnar.“
Það var erfitt, því ég var mjög mikið miðuð út frá megindlegri, pósitívískri sýn á vísindi. Þannig að maður þarf einhvern veginn að tryggja að vinna innan þess ramma, en samt sýna fram á að það sem maður hefur sé einhvers virði. Þannig að við þurfum bara að halda áfram að gera það. Hvernig gerum við það sem þjóðfræðingar?
Viðtöl og ný þekking
Að sannfæra fólk sem er vant tölum um að þetta, hvorki bót í þessa manneskju hérna á Austfjörðum, norður í Atlantshafi á Íslandi, hafi mjög djúpa, víðtæka merkingu sem við þurfum að spá betur í. Auðvitað, þegar spurt er: „Borðar þú hérna stefnumiðað og heilsusamlegt mataræði?“, svarar fólk því með já eða nei. Þá segir það kannski ekki jafn mikið og: „Af hverju borðar þú?“
Já, einmitt. Það er líka oft áhugavert í sambandi við spurningaskrána, sem er opin, eigindleg spurningaskrá sem þjóðfræðingar hafa verið að senda út hér á landi síðan 1960 eitthvað. Fólk er svo miklu vanara núna að sjá tikkbox og svo koma kannski tvær opnar spurningar í lokin, þar sem það skrifar inn tvær setningar.
Almenningur er líka óvanur að fá að tjá sig með einhverjum öðrum hætti. Það er líka það sem er skemmtilegt við að taka djúpviðtöl, eða hvað sem þú kallar þau, eigindleg djúpviðtöl, þjóðfræðileg viðtöl: að þú þarft að gefa fólki færi á að kafa sjálft í hluti sem það hugsar kannski ekki meðvitað um dagsdaglega.
En svo fer það að hugsa með þetta um það. Ég fæ oft svona: „Ég hef aldrei pælt svona mikið í þessu“, alveg svona segir það á mjög jákvæðan hátt, af því það er líka sjálft að uppgötva eitthvað mögulega og rifja upp eigin reynslu. Þannig verður líka til ný þekking, sem almenningur er með í að búa til um sitt eigið líf og aðstæður.
Og líka af því að ég kenni í matvæla- og næringarfræðideild, í fæðukerfiskúrsi, þá hef ég verið að nota spurningaskrár, bæði þessa sem við sendum út núna, 2022, en svo ná þær alltaf langt aftur.
Þegar ég skoða spurningaskrána, þá bað ég þig svona að kíkja bara á hana, fann til nokkrar frá ólíkum tímum og tók spurningaskrá frá 1977. Einhver svarar henni, sem er kannski komin yfir áttrætt og er þá að tala um matarhætti í upphafi síðustu aldar. Svo spyr ég: „Vissir þú að það væri til svona efni, sem er aðgengilegt öllum?“ Flestir hafa bara ekki hugmynd um það, að hægt væri að nýta þetta betur og líka kannski gera almenning meðvitaðri um hvernig þau geta lagt fram til vísindalegrar þekkingar.
Gamlar matarvenjur og ný merking
Jú, og þá er manni hlárinn mjög steiktur í hausnum. Ég held samt að ég hafi komið svo ágætlega frá mér. En já, stefna ég að því að verða allavega búin á þessu ári, svona frá mér séð með öll skrif, og vonandi vörn snemma á næsta ári, á fyrsta ársfjórðungi.
Þannig að það er gott plan næstu skref að klára þetta.
Spurningaskráin, þeim fannst það ótrúlega skemmtilegt þarna í næringarfræðinni að fara svona langt aftur. Og það voru orð sem þeim fannst svo fyndin: „Frúkostur“ — talaði fólk svona í alvöru?
En ef maður fær svona smá innsýn inn í daglegt líf fyrir hundrað árum, sem getur nýst okkur kannski í dag líka til að einhvern veginn byggja nýja matarhætti sem hafa þá samt einhverja tengingu, af því að við þurfum alltaf að skapa merkingu í kringum það sem við gerum. Annars verður það ekki hluti af daglegu lífi, eins og við vitum sem þjóðfræðingar. Þá er ein leið til að skapa merkingu bara: „Já, langafi minn gerði það alltaf svona.“
Af því að þó að mataræði hafi ekki verið sjálfbært að því leyti, en það voru 90 prósent dýraafurðir, hins vegar var öll skepnan nýtt. Alveg beinin voru soðin og notuð í eitthvað.
Þannig að það eru alls konar hlutir sem er hægt að skoða frá fyrri öldum, þó að við séum alls ekki að fara að gera mataræði okkar eins og það var fyrir hundrað árum. Af því að það var líka líklega ekkert endilega næringarríkt og eitthvað svoleiðis, en meira svona bara velja það sem nýtist í dag.
Takk kærlega fyrir að koma til þess. Takk fyrir það.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir