Þjóðhættir
Þjóðhættir #7342:55

Jóla­skammt­ur­inn, laufa­brauð og mandar­ínuát

Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól! Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Hlustaðu · brot42:55 ·
· Umsjón: Dag­rún Ósk Jóns­dóttir, Sigurlaug Dagsdóttir

Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. 

Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól!

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands. 

Handrit

5.348 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Jólamatur og jólaskammtur

Komið sæl og velkomin í jólaþátt Þjóðhátta. Ég heiti Sigurlaug. Og ég heiti Dagrún. Þátturinn í dag er mér svolítið óvenjulegur og má segja að hann sé með hátíðlegu sniði, svona í anda jólanna. Í þættinum í dag ætlum við að beina sjónum

okkar að jólunum, eða nánar tiltekið vissum en mjög mikilvægum þætti jólanna: jólamatnum. Jólunum hefur verið fagnað með mat og drykk sennilega löngu áður en kristin trú og afmælishátíð Jesú kom til.

En heimildir lýsa því að jól hafi verið drukkin, sem bendir til að fólk hafi gert sér dagamun með drykkju- eða matarveislum á þessari hátíð, sem ber náttúrulega upp á þessum jaðartíma þegar sólin fer aftur að rísa. En í dag fylgir

það þessum tíma að við gerum vel við okkur í mat og drykk og mörkum með því að um hátíð sé að ræða við borð, jafnvel mat sem við borðum ekki á öðrum tímum ársins. Og sumt tengjum við bara við jólin, til dæmis vissar smákökutegundir,

laufabrauð, heimagert rauðkál og aðra matarsiði. Vissan mat teljum við jafnvel ómissandi hluta af því að fara í gegnum þennan dimmasta hluta ársins. Við maulum hann á aðventunni sem hluta af jólastemningunni

og virkjum þar með fleiri skynfæri í undirbúningi og komu jólanna. Hallgerður Gísladóttir þjóðháttafræðingur lýsti jólamatarvenjum Íslendinga með þessum hætti í greininni „Forskot á jólin“ í Heima er best árið 1995.

„Jólin eru að nálgast. Framundan eru mörg og góð tækifæri fyrir matmenn. Jafnvel fyrir daga auglýsingamennsku kaupmanna og veitingamanna voru ýmsar matarholur í desember til að létta mönnum skammdegið og vinnuálag fyrir

utan sjálf jólin, en þar eigum við margar ágætar matarhefðir. Jóla-hangikjötið borða flestir Íslendingar ómælt á jóladag, eins og forfeður þeirra í margar aldir. Enn muna margir eldri borgarar gamla matarskammtinn. Þá

var hverjum og einum skammtað ríflega af hangikjöti ásamt öðru þjóðlegu góðgæti sem alþýðumanna kalla þorramat nú til dags. Sums staðar var skammtað á risastórar flatkökur sem voru sérstaklega búnar til fyrir þetta

tækifæri og voru eins konar brauðdiskur. Á aðfangadagskvöld var reynt að hafa nýmeti, væri þess nokkur kostur. Þeir sem gátu slátruðu kind eða kálfi til jólanna svo hægt væri að elda kjötsúpu

úr nýju kjöti á aðfangadagskvöld. Þetta var áður en farið var að steikja kjöt til hátíðabrigða, en upp að því lagi komust sveitamenn ekki almennt fyrr en eldavélar urðu algengar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þá bættust líka

við jólabakkelsið ýmiss konar smákökur, randalínur, jólakökur og tertur. Áður var jólabrauðið að mestu steikt: kleinur, pönnukökur, lummur og laufabrauð.“

Í dag ætlum við að fá til okkar tvo góða gesti til að spjalla um jólamat þeirra. Það eru þjóðfræðingarnir og matarkúnstirnir Áki Guðni Karlsson og Guðrún Gígja Jónsdóttir. En áður en við heyrum í þeim ætlum við að skyggnast til baka

og heyra í heimildarfólki Þjóðhátta Þjóðminjasafnsins og hvernig þau lýsa sínum jólamat. Fyrst heyrum við karlmanni sem fæddur var 1916 og ólst upp í Svarfaðardal, þar sem hann lýsir sínum jólamat:

„Jólin, um þau er búið að skrafa og skrifa svo mikið að þarflaust ætti að vera að fjölyrða mikið um þau. Jólaær þekktust ekki í minni sveit og ekkert nýmeti var til. Matur var eingöngu hangikjöt

af ýmsum tegundum og brauð. Drykkur var aðeins kaffi og súkkulaði. Áfengi þekktist ekki í Svarfaðardal í mínum uppvexti. Kaffibrauð var af ýmsum tegundum, en of langt mál yrði upp að telja. Jólabakstur

var þá kominn í fullan gang og tólf sortir fyrir utan tertuna var ekki óalgengt. Hverjum manni var skammtaður jólamatur. Hann var skammtaður í tvennu lagi. Á aðfangadagskvöld fékk maður nokkrar laufakökur og feitt

hangikjöt, magál, döndul og fleira þess háttar. Síðar um kvöldið var súkkulaði og sætabrauð. Á jóladag var svo skammtaður aðalmaturinn: stór hangikjötstykki, bringukollar og síðustykki, vel

feit, þó ekki væru þverandarþykk. Þar voru pottbrauðstykki og flatbrauð og smjör. Fleira gat verið þarna með. Þetta átti maður svo að hafa til matar á jóladag og nýársdag, en annars sem aukabita.

Ein spurning hefur mér láðst að svara í þessum jólapistli: Hvenær var hætt að skammta hverjum einstökum heimilismanni? Það veit ég auðvitað ekki, því hefur vafalaust verið haldið lengur áfram á einum bænum en öðrum.“

Ég get bara sagt að síðasti jólaskammtur sem ég fékk var á jólum 1931. Það voru síðustu jólin sem ég var í Svarfaðardal. Næstu jól var ég í Ólafsfirði og þar fékk ég ekki jólaskammt og saknaði hans mikið. Raunar sakna ég hans enn í dag.

Jólabakstur og smákökur

Já, þetta er skemmtilegt með jólaskammtinn, en hér var líka aðeins sagt frá bakstrinum sem jafnan fylgir jólunum og var nú aldeilis ekki auðveldur hér áður fyrr. Lengi vel bjó fólk á Íslandi ekki við bakarofna í híbýlum sínum. Þeir virðast þó hafa þekkst hjá höfðingjum. Þá þekktust slíkar svokallaðar brauðpönnur eða tertupönnur hjá efnaðara fólki, sem urðu svo algengari hjá alþýðunni í kringum 1900, þó þær yrðu aldrei mjög útbreiddar.

Langalgengast var að steikt brauð væri veislumatur á heimilum, þar sem steikt var upp úr tólg. Konur reyndu að notast við hellu eða venjulegan pott við bakstur á kökum, en það var mikið vandaverk. Eftir að ofnar og bökunarvörur urðu algengari var það hluti af undirbúningi jólanna að baka smákökur. Smákökur að danskri fyrirmynd urðu ómissandi hluti af jólahaldinu, svo sem gyðingakökur, hálfmánar, vanilluhringir og piparkökur.

Í dag búum við við þann lúxus að geta keypt okkur smákökur á aðventunni til að maula, en í fyrri tíð var bakstur hluti af því álagi sem aðventan hafði í för með sér fyrir húsmæður, ofan á allt annað. Sumar konur gátu ekki unað því nema bakaðar væru ótal tegundir smákaka fyrir jólin, og sumir halda í þessa hefð enn í dag. Það er hluti af því að gera aðventuna notalega að baka með öðrum. Hér lýsir kona, sem fædd er árið 1908, minningum sínum um jólamat í æsku, en þar koma smákökur aldeilis við sögu ásamt ýmsu fleiru góðgæti.

Jólahald var ólíkt á bæjum, en ég held að allar húsmæður hafi reynt að halda þeim siðum sem þær voru aldar upp við, og svo mun vera í stöku stað. En rétt fyrir jólin var laufabrauð steikt, en þá var móðir mín venjulega búin að baka fínt kaffibrauð í fleiri daga.

Á aðfangadag klukkan sex voru allir komnir í betri fötin og þá var lesinn húslestur. Síðan var kaffi og súkkulaðiveisla, því á þeim tímum var borðað þrívegis á dag og miðaftanskaffi um sexleytið. Hver maður, jafnt börn sem fullorðnir, fékk kúfaðan kökudisk og gat ráðskast með það eftir vild. Nú var kveikt á jólatré. Tvær stúlkur þurftu að fara að mjólka.

Þegar þær komu inn og búið var að skilja var matur borinn inn á sama borð og drukkið hafði verið við áður. Það borð mátti draga sundur og minnka aftur. Kom það sér vel, því jafnvel á stærstu sveitabæjum var pláss takmarkað. Fólk var svo margt. Hver fékk á sinn disk og karlmenn meira en konur, einkum sauða- eða fjármaðurinn.

Maturinn var nokkrar laufabrauðskökur, smjörstykki, hveitibrauðsbiti, reyktur magáll, fleiri en ein sneið af reyktu lundabaki, súrsvið í sneiðum, hvort tveggja, og að lokum voru kertin lögð á diskbarminn. Ætíð var einhver spónamatur, en ég man ekki svo glöggt um það. Nú var enn dansað í kringum tréð dálitla stund. Á jóladagsmorgun var öllum fært kaffi og kúfaður kökudiskur í rúmið.

Það gerðu móðir mín og verkastúlka hennar, hún var kölluð hjálpastúlka. Morgunmatur var venjulega etinn um tíuleytið og þá var hangikjöti skammtað. Við börnin fengum minnst, þó alltaf tvö stykki eða meira. Vinnumennirnir fengu ævinlega bringukolla, vel feita, og tvö stór lærstykki. Ekki var reykt nema úrvalskjöt.

Laufabrauð og hefðir

Margir þekkja hefðina að skera út laufabrauð sem einn þátt í undirbúningi jólanna, en ólíkt er með heimilum hvort þessi hefð er stunduð eða ekki. Laufabrauðið á sér langa sögu. Fyrst er þess minnst í skriflegum heimildum í orðabók Jóns Ólafssonar frá Grunnavík, með skýringum á latínu. Þessi hluti hennar er skrifaður nálægt 1736. Þar er laufabrauð kallað sælgæti Íslendinga.

Sennilega var brauðið fyrst höfðingjabrauð, hnoðað úr hreinu hveiti, þunnt og útskorið með margs konar myndum og soðið yfir eldi í smjöri. Það virðist síðan hafa orðið hátíðarbrauð almennings á 19. öld. Þá var farið að nota ódýrara hráefni, byggmjöl eða rúgmjöl í deigið, og steikja það í tólg. Um tíma virðist þessi hefð helst hafa verið bundin við Norður- og Norðausturland, en síðan virðist hún hafa breiðst út víðar um land með tilkomu húsmæðraskólanna.

Þar sem sumar kennslukonur kenndu nemendum sínum að gera laufabrauð. Hér segir kona fædd árið 1903 í Norður-Þingeyjarsýslu frá jólunum þegar hún var fimm ára.

Hugur minn hvarflar til löngu liðinna ára í sveitinni minni. Hvernig voru jólin mín fyrir 75 árum? Ég átti heima í sveit hjá foreldrum mínum og systkinum. Þá var ég fimm ára, jólin voru alveg að koma.

Ég hlakkaði ósköp til. Móðir mín og systkini höfðu mikið að gera og við systurnar vorum svo ungar. Hvergi mátti vanta laufabrauð á jólum. Mamma gerði eitt til tvö hundruð laufabrauðskökur. Eldri systkini mín gáfu þá…

Þau voru óvíða til. Ég var eirðarlaus, gat lítið hjálpað mömmu og alls staðar fyrir. Það er langt til jóla, mamma spurði…

…mig sí og æ. Mamma sagði mér að vera þæg svo jólin færu ekki fram hjá. Á Þorláksdag var pottur settur á einhólfaðan ofn sem stóð í frambúðarstofu. Hangikjöt soðið, svo angaði líka eplalykt víða um bæinn.

Allt var þetta svo spennandi. Epli sáust ekki í gamla daga nema á jólunum, kannski aðeins stöku sinnum oftar.

Á aðfangadag duttu fáein hríðarkorn niður á loftið. Mamma kallaði: „Mat!“ Hún breiddi hvítan dúk á stofuborðið og diskaði glös og gljáfægð hnífapör. Við vorum komnar í nýja, stykkjótta kjóla og…

…silkiborða í hárið. Ósköp var allt fínt, og bræður mínir í hvítum blússum, svo stilltir og prúðir, aldrei eins og vont. Pabbi var svo fínn í hvítu skyrtunni, seinast klæddist hún. Mamma í ljósablússu, hún var fallegust allra…

…fannst mér. Steik, rúsínugrautur, laufabrauð og síróp. Kveikt á hengilampa, kerti heimagerð í stjaka á borði. Ó, hve allt var hreint og fínt! Ég þorði varla að anda, kyngdi…

…munnvatni því allt fannst mér svo fallegt og allt var eitthvað svo heilagt og öðruvísi en í gær. Já, hér var líka minnst á jólaeplin sem sumir hlustendur kannast kannski við, þó að epli séu nú orðin miklu algengari og hafi í mörgum…

…tilfellum tapað tengingum sínum við jólin. Laufabrauð er enn mikilvægur þáttur í undirbúningi jólanna í sumum fjölskyldum. Hér greinir kona fædd árið 1986 frá mikilvægi þessarar hefðar fyrir henni.

Fjölskylda mín bjó ætíð til laufabrauð fyrir jólin. Ég fæddist í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og nær allar fjölskyldur í sveitinni steiktu laufabrauð. Öll fjölskyldan kom að laufabrauðsgerðinni með einhverjum hætti, annaðhvort…

…með því að fletja út eða steikja og skera. Þar sem við gerum laufabrauð heima er það mjög líkt því sem ég ólst upp við, en mamma og ég höfum aðeins bætt við heilhveiti eða rúgmjöli í uppskriftina, sem…

…þýðir að kökurnar eru aðeins dekkri og stökkari en ég ólst upp við hvítari kökur. Þær voru samt alltaf frekar hefðbundnar og við eltumst ekki við að þær væru næfurþunnar og náhvítar, því okkur þykja betri aðeins dekkri og…

…nógu stökkar til að hægt sé að smyrja þær með smjöri. Okkur eru illa við þessar búðarkeyptu, sem molna við það eitt að líta á þær. Þær hafa að öðru leyti lítið breyst frá því ég var yngri, bara aðeins grófari. Ég…

…hef hugsanlega aðeins vaxandi áhuga á laufabrauðsgerð, sérstaklega þar sem ég er held ég eina manneskjan sem ég þekki undir fertugu sem býr til laufabrauð frá grunni. Mér finnst mikilvægt að halda þessu við. Ég fékk…

…einnig aukinn áhuga á laufabrauðsgerð þegar ég bjó erlendis og bjóst við að þurfa að halda þessari hefð við alveg.

Laufabrauð er alveg ofboðslega góður matur, ódýr og hátíðlegur, og því mjög mikilvægt að viðhalda honum. Ég býst við að steikja laufabrauð alveg fram í rauðan dauðann. Það er skemmtileg samverustund og gaman að halda í hefðirnar.

Að drekka jólabland og hlusta á Bóni M á meðan maður sker laufabrauðsköku er ómissandi fyrir jólin.

Silla, nú ert þú líka úr Þingeyjarsýslu. Gerir þú laufabrauð?

Ég er alin upp við þessa hefð, já, að gera laufabrauð. En ég hef einmitt, eins og svo margir, ekki stundað þetta á eigin heimili, alltaf bara hjá foreldrum mínum. Og núna er bara…

…orðinn langt síðan ég gerði laufabrauð með minni stórfjölskyldu. En í fyrra var ég svo heppin að vera boðin í svona laufabrauðsboð hjá tengdaforeldrum mínum í Kópavogi, og þá hreifust allir…

… saman og gerðu laufabrauð, og mér fannst það mjög gaman, af því að fyrir mér er þetta, hvað má ég segja, ein mikilvægasta hefðin á aðventunni. Og ég sakna hennar alltaf þegar ég geri ekki laufabrauð. Mér finnst þetta alltaf svona pínu eins og eitthvað vanti á aðventunni ef ég geri ekki laufabrauð.

Við vorum mörg í heimili, þannig að þetta var alltaf svolítið svona hátíðisdagur hjá okkur. Við gerðum þetta sko á Þorláksmessu, sem hann ætlaði…

Gluggalaust. Mamma búin að eyða mörgum dögum í að þrífa og gera alltaf svo fínt, og svo var sko farið að steikja á Þorláksmessu. En ástæðan var sú að það vildi enginn missa af laufabrauðsgerðinni. Það urðu allir að vera komnir heim til að taka þátt.

Svo höfum við systur gert laufabrauð með pabba og gerðum lengi, og þá bjuggum við bara til sjálfar, bökum alveg frá grunni laufabrauð og getum þá haft það svona einmitt eins og…

Hún talar svolítið um… Við erum eins og þær mæðgur í tilvitnuninni hér á undan. Við viljum hafa laufabrauð svolítið þykkt og svona bragðmikið, frekar en að það sé mjög hvítt og svona flatt og fíngert.

Það eru mjög sterkar skoðanir svona í kringum mig um hvernig laufabrauð á að vera eða á ekki að vera. Einmitt, já. En gerir þú laufabrauð þar? Nei, og þetta er hefð sem ég hef ekkert kannast við.

Þannig að ég hef einu sinni gert laufabrauð, bara þegar ég var krakki. Þá var það hérna í Reykjavík, sko. Þá fór ég í heimsókn til vinkonu hér í bænum, sem ég veit nú bara ekki alveg hvort á einhverjar ættir þarna norður eða hvað, en þau gerðu laufabrauð.

Og mér fannst það mjúkling.

Heima hjá mér var miklu meira vinna að gera piparkökur. Það var svona þar sem það hétna, en það var kannski ekki alveg svona þessi samverustund, þó að mamma hefði kannski séð það þannig fyrir sér og komið okkur fjórum systkinunum fyrir. Við vorum tilbúin og til í þetta fyrsta korterið, og svo svona eftir það voru piparkökurnar farnar bara að detta ofan í glas…

Urðu svona óvandari með hverri kökunni. Og voruð þið þá með svona eins og ég var að nefna, eða var svona skál með litnum sem maður notaði litinn upp úr? Já, það var heima tilbúið bara. Já, það var svoleiðis.

Og svo var maður með alls konar svona tæki og tól, og vorum með gaffla og skeiðar og tannstöngla til að gera mjög fínlegar skreytingar fyrst, sko. En svo fór þetta yfirleitt út um þúfur í lokin. Ég held að hjá okkur systkinum hefði verið svo reynt að setja eins mikinn glassúr og við gátum á piparkökurnar, sem áður fóru bara að molna í sundur eiginlega áður en…

Já, partíið að fá sem svona sætasta bragðið af þeim, sko.

En mamma var líka með eina mjög skemmtilega hefð, og hún var nú kannski ekki mörg ár. Það var að við gerðum svona stór jólatré, piparkökujólatré sem var hægt að hengja á jólatréð, og máluðum þau.

Og hver og einn fékk svona stóra piparköku til að mála. Og ég man einmitt að það var mikið kappsmál að koma mjög miklum glassúr á þessa stóru piparköku til að geta svo borðað þegar var búið að dansa í kringum jólatréð.

Ég man sem sagt alveg að það var dansað í kringum jólatré fyrstu árin sem ég man eftir mér, meðan öll stóru systkini mín voru enn heima. Þá dönsuðum við í kringum jólatré, sem ég held að hafi verið svona að deyja út eiginlega þegar…

Já, já, við gerðum þetta ekki… En við gerðum svona stóra piparköku og hengdum þær í gluggann, þannig að það voru svona hjörtu og stjörnur sem voru hengdar alltaf í eldhúsgluggann, sko.

Og svo einhvern tímann man ég með Sigfús bróður ákveða að taka sig til og smakka allar gluggapiparkökurnar. Það vakti ekki mikla lukku hjá okkur sem eldri vorum, að hérna væri búið að eyðileggja listaverkin.

Aðventumatur og mandarínur

Þessi litli bróðir alveg valur. Já, en hvaða matur er nauðsynlegur á aðventunni fyrir þér, Dagrún? Sko, ég kannski á ekki mikið af svona aðventumat. Við borðum hérna…

Smákökur svolítið. Mamma gerði alltaf trilljón sortir og núna er hún kannski… Það er svona allir með að velja eina sort eiginlega, og við borðum rosalega mikið af lakkrístoppum, sem maður alltaf… Ég kallaði snjóbolta á mínu heimili.

Og þannig að svona smákökur byrjuðu líka reyndar fyrir nótt á morgun. Mamma og hennar vinkonur gera heimatilbúið konfekt. Það er alltaf mjög gott. Ég er alltaf að bíða við þann lúxus, sko.

Ég fer ennþá heim til foreldra minna um jólin og kannski er það svona mín helsta matarhefð, að þurfa ekki að elda fyrir mig sjálfa. Á Þorláksmessu erum við alltaf með hlaðborð og það sem er mitt uppáhald á þessu hlaðborði er að við tökum rækjur og setjum þær í súrsæta sósu og setjum þetta síðan út á ristað brauð.

Appelsín og ristað brauð með súrsætum rækjum er það besta sem ég veit og ég elska þetta. Þetta er svona mín jólahefð, þetta er svona ómissandi. Já, þetta er það, þótt þér þyki það skrýtið. En heima hjá mér er þetta í matinn, sko, á Þorláksmessu og fermingarveislum. Ég held að ég slái alltaf met á hverri aðventu í mandarínumagninu sem ég borða.

Já, auðvitað það líka. En svo er til dæmis að fá mandarínur núna út af ýmsum ástæðum erlendis, uppskera hefur brugðist, það hafa orðið flóð og ég veit ekki hvað. Þannig að það er nú sér með að finna góðar mandarínur stundum. Og það veldur mér miklum jólakvíða. Þetta bætist ofan á annan kvíða fyrir jólin, það er mandarínukvíði.

Ég skil það reyndar. Það er ekki bara bræðið, heldur líka lyktin sem fylgir mandarínunum. Og svo held ég að ég sé eins og þú, sko: ég safna bara C-vítamínforða og þarf þá ekki að borða meira af þessu.

Já, spurning hvort það sé gott að gera þetta svona, hvort þú mættir dreifa þessu á lengri tíma. En já, ég var einmitt að hugsa um þetta þegar ég var að hugsa um þennan þátt, að við værum að fara að gera hann: Hvað væri ómissandi fyrir mér? Og ég held einmitt að ef það væri eitthvað sem ég mætti alls ekki missa af, þá væru það bara mjög einfaldir hlutir. Það væru piparkökur, krónprinsur og kannski kaffi, jólakaffi. Það er dálítið mikið fyrir mér, sko.

Þetta er eini tíminn sem mér finnst slæmt að drekka ekki kaffi, af því að það er mikið af girnilegum kaffidrykkjum til sölu í búðum. Já, svona grýlum og leppalúðum. Já, ég er meira bara í svartakaffinu, sko, en mér finnst gaman að fá mér svolítið fínar baunir eða fínt kaffi á aðventunni. Þá stundum eitthvað sem þeir sem eru að brenna baunir hér á landi bjóða ekki alltaf upp á, heldur hafa kannski sérmerkt jólakaffi eða eitthvað. Þá finnst mér geggjað að prófa það.

Og borða svolítið mikið af mandarínum og piparkökum.

Jólamatur gesta

En við ætlum nú ekki bara að tala um jólamatinn okkar. Við erum búin að fá til okkar tvo gesti, Áka og Guðrúnu, og ætlum að ræða við þau um þjóðlegan mat. Verið velkomin, Áki og Guðrún. Jæja, fyrsta og mikilvægasta spurningin: Hvað verður í jólamatinn?

Það er óvíst. Við erum ekki búin að ákveða.

Við höfum verið með nautakjöt, við höfum lambakjöt, en alls konar spennandi eitthvað flott sem okkur langar til að prófa. Við eigum bara eftir að taka þessa umræðu.

Við höfum verið með eitthvað svona fínt í forrétt, að gera vel við sig og prófa eitthvað nýtt. Þú vilt víst frekar prófa eitthvað nýtt en að gera allt það sama, og einmitt að prófa eitthvað sem maður myndi ekki gera venjulega og sem maður hefur kannski ekki efni á að borða hversdagslega.

En hreindýr, hérna, ... Við höfum bara fengið sama jólamatinn síðan ég fæddist, sko. Ég er svona öfgamegin kannski í hina áttina, en pabbi minn er þessi kokkur. Þannig að hann hefur verið með hreindýr. Svo sem ekki það skipti máli; þessi hefð yrði örugglega sú sama þó að hann væri það ekki. En við erum alltaf með hreindýr og við borðum bara á jólunum. Við erum mjög mikil matarfjölskylda, mikið að prófa. Pabbi er oft með tilraunaeldhús á okkur, sko.

Það er mjög mikið álag, en hérna, þú ert bara í borðum hreindýrajólum. Við svindlum ekkert yfir árið á því að borða hreindýr, sko, eða svona helst ekki. Veistu hver ástæðan er fyrir því að hreindýr varð fyrir valinu?

Nei, við erum ekki kannski beint með þetta. Þetta er villibráð, þetta er svolítið dýrt. Það er kannski líka þannig að maður á að gera vel við sig á jólunum og svona. En sko, við erum að tala um jólin hér, en áramótin hljóma svolítið eins og ágætis…

…tími til að prófa eitthvað annað, þannig að við höfum svolítið fast með jólin en áramótin eru meira svona að prófa eitthvað annað. Kannski reyndar oft villibráð líka, en hreindýrið er bara eitthvað sem hefur fylgt okkur allan minn aldur.

Sko, það var alltaf, þegar amma var, þá hefur alltaf verið amma eða afi hjá okkur um jólin. Nú á ég bara eina ömmu eftir og hún var hjá okkur síðast. Þá hefur stundum verið með aspasúpu, það var svona hjá okkur.

En svo, þegar árin liðu, þá var það eiginlega of mikið, þannig að við erum eiginlega bara með aðalrétt og svo erum við með desert líka. Við erum með ris à l'amande síðan, og það hefur reyndar líka verið með jólaís, en það er ekki allt sama kvöldið, þannig að það er svona eitthvað sem hefur fylgt okkur líka, dreifist eins og sull.

En Áki, varst þú alinn upp við jólahefðir í kringum jólamat, eða var þetta svona líka á þínu æskuheimili?

Nei, það var ekki beint föst hefð. Það var hjá ömmu í Njarðvíkunum. Þá var eldaður til hins ýtrasta kjúklingur fyrir krakkana, sem var svona bara fylltur kjúklingur, og þetta var svo lúxusmatur á þeim tíma að kjúklingur var frekar dýr matur.

Svo var svona á teini fyllt lambalæri sem afi lét gera sérstaklega, með apríkósum og sveskjum, sem snerist þá yfir kjúklingnum inni í járninu. Með þessu var sveppasósa og grænmetið og brúnkastað kartafla. Þetta þótti mér alltaf rosalega gott.

Ég kom mér oft í vandræði af því að ég borðaði of mikið og fann fyrir því nóttina eftir. En þetta var aðalbesti maturinn.

Og svo á seinna kvöldi voru smákökur og heitt súkkulaði. Þetta var mjög vel útilátið.

En eruð þið skötufólk? Borðið þið skötu á Þorláksmessu?

Já. Og er það eitthvað sem þið hafið alltaf gert, eða eitthvað sem þið hafið tekið upp á síðar á ævinni? Ég viðurkenni, ég var meira í saltfisknum þegar ég var yngri, en súperæknirinn er orðinn fullorðin skötukona í dag og mér finnst alveg geggjað að fara akkúrat á Þorláksmessu og taka það.

Ég var mjög spæld fyrir tveimur árum. Þá var ég með COVID um jólin og fann ekkert bragð. Pabbi var að reyna að sannfæra mig: „Þú ert að horfa og njóta á eitthvað.“

Ég bara tók gos og setti í svona stjörnuljós-skálina og horfði á hana og borðaði hana. Það var mjög erfitt fyrir mig, mikinn matgæðing að finna ekkert bragð. Það var eiginlega bara hræðilegt fyrir mig, og líka, maður finnur ekki bara skötuþefinn, held ég.

Eini maturinn sem kemst frá henni hjá öllu, sko. Það var hjá frænda mínum; þá hittist fjölskyldan þar stundum heima hjá þeim. Þau fórnuðu húsinu í það, en svo fluttu þau, þannig að það voru breyttar reglur og það mátti ekki vera þar.

En þá hefur verið að fara annað einstaka sinnum þegar ég hef kannski verið að vinna á Þorláksmessu og kem heim. Ég bý fyrir austan, þannig að ég hef komið úr vinnunni í jólafríið heima. Þá hefur pabbi verið með skötu fyrir mig heima og eldað hana úti.

Bakstur og jólasiðir

En er eitthvað svona sérstakt fyrir ykkur á aðventunni, eitthvað sem þið borðið meira af á aðventunni en á öðrum tímum árs?

Ég er svolítið bakari. Mér finnst mjög gaman að baka smákökur og sérstaklega koma með í vinnuna og bjóða einhverjum í kaffi. Það er kannski orðið minna af því, maður er alltaf að bjóða fólki í kaffi en það er enginn að detta kannski beint í kaffi hérna í bænum. Þannig að ég reyni að gera allavega tvær sortir.

Ekki svona þessi sem gerir fimmtán sortir eða hvað, en ég er með ákveðnar sem ég geri alltaf. Þannig að við vorum með piparkökuhús þegar ég var yngri.

Mér finnst það mikilvægt að jólin séu maturinn. Það er svona persónulega þá snýst þetta svolítið, þótt ég sakni þess mjög, einmitt þetta smákökuvesen, þannig að ég reyni að gera einhverjar smákökur, jafnvel þó að enginn hefði áhuga á að borða það lengur.

En hvaða smákökur gerið þið? Hvað er svona ofan á ef þið þurfið að velja? Ég geri súkkulaðibitakökur með kókos sem eru mjög vinsælar, svolítið stórar, og svo er ég með hérna nokkrar sortir, klassík.

Svona köllum það englatoppa. Það er svona með kókos og það var byssmör alltaf í þeim, en núna má ekki borða byssmör, þetta rauða í honum er eitthvað eitur, þannig að ég hef ekki séð byssmör alla vega.

Svona appelsínukökur eða svona sultukökur. Amma gerði þannig, þannig að ég ætla svona hálfmána í gamla daga.

Já, þetta er svona helsta.

Ég hef aldrei skorið laufabrauð. Ég er búin að hugsa mikið um það og ég öfunda alla sem eru með þannig hefð í sinni fjölskyldu. Ég er búin að spyrja foreldra mína út í þetta, af hverju það sé ekki laufabrauð. Ég er mikil stemmiskona þegar kemur að mat og svona hefðum, mér finnst stemningin kjarni málsins, en það hefur bara ekki tíðkast í okkar fjölskyldu.

Pabbi kannast við það hjá sinni fjölskyldu, en það var ekki verið eins og hjá mömmu, þeim megin.

Þannig að ég á örugglega eftir að henda í svona laufabrauðsviðburð fyrir mína kjarnafjölskyldu.

Já, nei, eða hjá fjölskyldu pabba tíðkast það að hittast á jólabrauðsgerð, sem ég man eftir frá því ég var krakki. Ég prófaði þetta næstum því, og þú ert að ætla ógurlega mikið með snið, sko. Er þetta gott að vita?

En gerðuð þið það þá frá grunni eða flöttuð út? Já, það var alveg heill dagur sem fór í þetta, sko. Við bara fundum svo heillandi samveru, og síðan fólk er að deila, allir hittast, voru að skera kannski eina, tvær eða meira. En hérna, þessi samvera um aðdragandann.

En er eitthvað svona, eruð þið svona fólk sem gerir heimatilbúið rauðkál eða eitthvað svona sem ykkur finnst ómissandi að gera sjálf fyrir utan smákökurnar?

Nei, nei, það er ekkert svona eitthvað sérstakt. Svo er hann, ekkert svona að gera frá grunni kannski. Bróðirinn núna, en ég er búin að vera að stússast í súrkáli, sem er mjög skemmtilegt og auðvelt að gera.

Þarna, spurningin þarna, breytt bróðabreidd til.

Jú, við gerum rauðkál, eða pabbi gerir rauðkál, og ég finn að hann er kokkur. Hann fer ekki mikið eftir uppskrift. Hann er mjög mikið, þú veist, hann dreymir uppskriftir og hugsar í brögðum. Þannig að ég er svona ritarinn og fylgi eftir hvað hann gerir, þannig að ég geti gert það seinna. Hann er búinn að fara með mér í gegnum jólarauðkálið, þannig að ég ætti að geta gert það, en hann gerir það fyrir fjölskylduna og við gefum líka svolítið mikið af því.

Jóladrykkir eru malt og appelsín, já, algjörlega. Er þetta meira fyrir sko hérna, af sér, og jólalið í bláu dósunum?

Það eru sterkar skoðanir á þessu oft.

Það er bara sem staðar tíðkast, það er mjög mikilvægt, bara virkilega, sko.

En ert þú með sterka skoðun á því hvernig á að blanda og hvernig á að hella?

Það er alltaf að á undan.

En er þetta 50/50 eða hvað? Hvernig er þetta, Baukur? Ég sit alltaf nefnilega aðeins meira malt en appelsín, mér finnst gott að hafa svona dökktöldur, svona já, mikið maltbragð. En þið, ég held ég haldi bara…

Já, ég var alveg nýr fyrir það. Og svo bólgnaði brúsinn alltaf yfir jólin af því að hann gerjaðist svo mikið, en þetta var mjög gott. Ég man það líka.

En þetta var neitt bara um jólin, en þetta var eitthvað maður þekkir ekkert á öðrum tímum.

Hangikjöt og áramótamatur

Sko, annan í jólum hefur oft verið með einhverja villibráð. Ekkert ef þú ert veröld og þú ert hreindýr á aðfangadag. Jóladagurinn hjá okkur er alltaf hangikjöt, eins og svona gengur og gerist, að þú ert með heyrða að þessu, margir með það.

Jóladagurinn hefur verið aðeins svona frjálslegri, þannig séð, og svona auðvitað slatta afgöngum á milli. En það er svona kannski helst aðfangadagur sem er svona fastur í ákveðnum hefðum, ekkert mikið að breyta.

Já, við höfum stundum verið með jólaboð, eða það kom fyrir. Stundum höfum við keypt þá jólaskinku, svona sænska, sem er svona hálftilbúin eiginlega, en ekki síðustu ár. Þannig að síðustu ár hefur þetta verið meira svona afgangar á jóladag og svona fram eftir.

Nóg að borða. Bíddu, á brennu?

En áramótin?

Þú varst að segja að það væri svona aðeins meira lúxus, þið væruð aðeins afslappaðri. Þegar það er sko á aðfangadag, er þetta varla? Það hefur verið alltaf amma og afi og ég og mamma og pabbi, þannig að þetta hefur verið svona, ég grípst með eldri borgarjól varla hjá mér og…

Að bróðir minn er eldri og er nú í rauninni á aðfangadag bara með sína fjölskyldu, þannig að hérna um áramótin koma allir, sem sé mín kjarnafjölskylda, í sveitina og eru með áramótamát, fjör sem svona litast alltaf svolítið af aldri krakkanna til að hafa sem mest gaman. Eiga hérna frænku sem er mikið fyrir skreytingar og fjör og svo ýmislegt, þannig að það er oft mikið stuð.

En við erum varla með eitthvað sem flestum finnst gott. Það eru ekki allir í jafn lifandi villibráð eða slíku, þannig að við höfum verið með stundum önd og naut, jafnvel eftir hvað fólki finnst gott. Svo erum við eina sem er til þeim að spara fyrir um heiðlæti heima litla, þannig að…

Við vorum alltaf í Reykjavík með systur mömmu, sem á frekar stóra fjölskyldu líka, og þá voru sko pabbi og maður frænku minnar, þeir sáu um matinn. Við vorum að tala um svona tuttugu manns, eitthvað, svoleiðis, bara mikið fjör. Þá voru forréttir og alls konar líka, í rauninni eftir hverjir voru að koma. En núna í seinni tíð er þetta meira í sveitinni og svona krakkavænna áramót, hef ég getað borðað þannig.

Maturinn sem jólahefð

En er jólamaturinn það mikilvægasta við jólin og aðventuna og allt þetta?

Sko, það kemur mjög mikil matarfjölskyldu, þannig að mér finnst bæði þemu og hefðir alveg stór partur af því sem ég elst upp við og er að viðhalda svolítið. Ýminda sé ég væri kannski þá þjóðfræðingurinn.

Í minni fjölskyldu að viðhalda hefðum líka, en samveran er oftast einhver góður matur eða eitthvað með í minni fjölskyldu, allavega svona oftast. Ég myndi alveg segja já, það skiptir máli og er stór partur af minni fjölskyldu. Já, fyrir mér er það alveg klárlega aðalatriðið, sko, maturinn.

Já, það er ljóst af spjallinu við þau Áka og Guðrúnu og af orðum heimildafólksins sem við höfum hlustað á hér á undan að matur og sú skynræna upplifun sem honum fylgir er hluti af því að skapa aðdraganda og hátíðina sem við köllum jól. Ef matur skapar hluta af umgjörð jólanna og býr til stemningu í dimmasta skammdeginu, hvort sem er í nútíð eða fortíð, skapar hann tilfinningu fyrir því að nú sé hátíð eða eitthvað sérstakt að eiga sér stað.

Við viljum að lokum þakka öllum hlustendum okkar nær og fjær fyrir hlustunina á þessu ári og segjum: Gleðileg jól. Það er…

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar