Kosningabíll geti einfaldað íbúakosningar sveitarfélaga

Til stendur að ein­falda og minnka umfang íbúa­kosn­inga sveit­ar­fé­laga með nýrri reglu­gerð sem nú er til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Fái reglu­gerðin braut­ar­gengi verður heim­ilt að not­ast við hreyf­an­lega kjör­staði, til dæmis kosn­inga­bíl.

Atkvæði greitt
Atkvæði greitt Búast má við því að kjör­kassar í minni og víð­feðm­ari sveit­ar­fé­lögum ger­ist víð­förlir ef svo­kall­aðir kosn­inga­bílar munu ná vin­sældum.

Til stendur að ein­falda og minnka umfang íbúa­kosn­inga sveit­ar­fé­laga og veita þeim meira vald hvað kosn­inga­rétt varðar í ráð­gef­andi íbúa­kosn­ingum með nýrri reglu­gerð inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins sem hefur verið birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Fram kemur í sam­ráðs­gátt að reglu­gerð­inni sé einnig ætla að auka lýð­ræð­is­þátt­töku og sjálf­bærni sveit­ar­fé­laga, það muni efla sveit­ar­stjórn­ar­stigið.

Tilefni reglu­gerð­ar­setn­ing­ar­innar er laga­breyt­inga­frum­varp sem sam­þykkt var á Alþingi í júní síð­ast­liðnum þar sem gerðar voru ýmsar breyt­ingar sem höfðu það að mark­miði að ein­falda og minnka umfang íbúa­kosn­inga sveit­ar­fé­laga. Reglu­gerðin sem nú er til umsagnar fjallar um allar teg­undir íbúa­kosn­inga sveit­ar­fé­laga og tekur mið af nýsam­þykktum laga­breyt­ingum.

Reglu­gerðin mælir fyrir um þær kröfur sem gerðar eru til fram­kvæmdar íbúa­kosn­inga sem eru haldnar til að kjósa í nefnd fyrir hluta sveit­ar­fé­lags, um atkvæða­greiðslur um ein­stök mál­efni sveit­ar­fé­lags og um atkvæða­greiðslur um sam­ein­ingar sveit­ar­fé­laga. Reglu­gerðin gildir þó ekki um atkvæða­greiðslur sem fara fram með raf­rænum hætti.

Hreyfanlegir kjörstaðir leyfðir en engin utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Í fylgi­skjali reglu­gerð­ar­drag­anna segir að fram­kvæmd íbúa­kosn­inga eins og þeim er lýst í drög­unum víki að ýmsu leyti frá fram­kvæmd hefð­bund­inna kosn­inga sem haldnar eru á grund­velli kosn­inga­laga. 

Meðal þess­ara frá­vika má nefna tíma­bil íbúa­kosn­ing­anna en gert er ráð fyrir að slíkar kosn­ingar skuli fara fram á að minnsta kosti tveggja vikna tíma­bili og í mesta lagi fjög­urra vikna tíma­bili. Á því tíma­bili skuli vera að minnsta kosti einn kjör­staður opinn með reglu­legan opn­un­ar­tíma, til dæmis á skrif­stofu sveit­ar­fé­lags­ins. Þó skuli leit­ast við að sam­ræma bæði fjölda kjör­staða og opn­un­ar­tíma við fjölda íbúa og vega­lengdir í sveit­ar­fé­lag­inu.

Vegna þess að kosn­ing­arnar fara fram á fyr­ir­fram­gefnu tíma­bili þá er ekki gert ráð fyrir kjör­fundi eða kosn­inga­degi og þar af leið­andi er ekki heldur gert ráð fyrir utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu hjá sýslu­mönnum eða sendi­ráðum í íbúa­kosn­ingum. 

Reglu­gerðin mun koma til með að leyfa hreyf­an­lega kjör­staði. Í fylgi­skjali drag­anna er svo­kall­aður kosn­inga­bíll nefndur sem dæmi um slíka hreyf­an­lega kjör­staði. Þá stendur auk þess til að leyfa kjós­endum að greiða atkvæði með pósti til þess að auka aðgengi að kosn­ingum.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár