Án lyfja og hefur áhyggjur af unga fólkinu

Rakel Stein­berg Sölva­dóttir er lyfja­laus, eins og fjöl­mörg önnur sem taka ADHD-lyfið Elvanse Adult sem hefur verið meira og minna ófá­an­legt hér­lendis síðan í júlí. Rakel hefur minni áhyggjur af sjálfri sér heldur en ungu fólki með ADHD sem er þessa dag­ana að fara af stað í nám í háskólum og fram­halds­skólum lands­ins.

Án lyfja og hefur áhyggjur af unga fólkinu
Kvíði hjá unga fólk­inu „Ég hef heyrt af ein­stak­lingum sem eru í fram­halds- og háskóla­námi sem eru bara komnir með massa kvíða yfir því að vera ekki að fá lyfin,“ segir Rakel. Mynd: Heiða Helgadóttir

ADHD-lyfið Elvanse Adult sem átti að koma til lands­ins í vor hefur enn ekki borist og er ekki útlit fyrir að það ger­ist fyrr en í lok sept­em­ber eða byrjun októ­ber. Sam­heita­lyf rauk út á um tveimur vikum í ágúst.

Davíð Ingason, mark­aðs­stjóri Vistor – fyr­ir­tæk­is­ins sem flytur Elvanse inn, segir ástandið ergi­legt og að starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins spyrj­ist fyrir um stöð­una hjá sínum birgja í Þýska­landi dag­lega. Hann von­ast til þess að lyfið verði komið hingað til lands eftir mánuð. „Við myndum einskis óska frekar en að eiga þetta,“ segir Davíð.

ADHD-fólk sem tekur Elvanse Adult er því almennt lyfja­laust og er Rakel Stein­berg Sölva­dóttir ein af þeim.

„Ég mun alveg lifa þetta af, þetta verður óþægi­legt en mun ekki hafa ein­hver dramat­ísk áhrif á mig sem full­orð­inn ein­stak­ling,“ segir Rakel. „Það sem ég hef meiri áhyggjur af er unga kyn­slóðin.“

„Svakalegt álag“

…

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    Heitir fyrirtækið ekki Vistor frekar en Visitor? (afsakið smámunasemina). En þetta er afleitt ástand :(
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár