Ármann Þorvaldsson aftur orðinn forstjóri Kviku – Marinó hættur

For­stjóri Kviku banka er hættur störfum. Í til­kynn­ingu er sagt að það sé af hans frum­kvæði. Við tekur sá sem gegndi for­stjóra­starf­inu á undan for­stjór­anum sem var að hætta.

Ármann Þorvaldsson aftur orðinn forstjóri Kviku – Marinó hættur

Marinó Örn Tryggva­son, sem verið hefur for­stjóri Kviku banka síð­ustu fjögur ár, er hættur störfum hjá bank­anum. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að við­ræður um starfs­lokin hafi verið að frum­kvæði Marinós.

Stjórn Kviku banka hefur ráðið Ármann Þor­valds­son í hans stað, en Ármann var for­stjóri bank­ans áður en Marinó tók við starf­inu árið 2019. Hann var auk þess aðstoð­ar­for­stjóri frá þeim til og til loka árs 2019. 

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Marinó að Kvika banki standi „á ákveðnum tíma­mótum þar sem fjár­fest­ingar und­an­far­inna ára í innri vexti, svo sem útvíkkun á fjár­tækni­starf­semi, eru farnar að skila sér. Þá hefur Kvika aukið sam­keppni á inn­lendum fjár­mála­mark­aði sem skilar miklum ávinn­ingi til sam­fé­lags­ins. Framundan eru mikil tæki­færi fyrir frek­ari vöxt og upp­bygg­ingu bank­ans á þessum grunni. Á und­an­förnum vikum hef ég hugsað um það hvort ég telji rétt að ég leiði félagið í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu. Nið­ur­staða mín var að ég óskaði eftir því að ljúka störfum og tel það skyn­sam­lega nið­ur­stöðu bæði fyrir mig og félagið.

Mig langar til þess að þakka stjórn og starfs­mönnum fyrir gott sam­starf á und­an­förnum árum. Hjá félag­inu starfar stór hópur öfl­ugs starfs­fólks og ég mun sakna sam­starfs­fé­lag­anna en á sama tíma verður spenn­andi að fylgj­ast með þeim ná áfram­hald­andi árangri.“

Ármann segir á sama stað að það sé honum mikið til­hlökk­un­ar­efni að taka við for­stjóra­starf­inu. „Mér er nýtt starf ekki alveg ókunn­ugt, en Kvika hefur mikið breyst frá því ég hélt um stjórn­ar­taumana og ég er mjög spenntur að leiða þetta öfl­uga félag og það frá­bæra fólk sem þar starfar.“

Reyndu að sameinast Íslandsbanka

Í byrjun febr­úar var greint frá því að stjórn Kviku hefði óskað eftir sam­ein­ing­ar­við­ræðum við stjórn Íslands­banka. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sagði að stjórn fyrr­nefnda bank­ans teldi að sam­runi félag­anna myndi skapa fjár­hags­lega sterkt fjár­mála­fyr­ir­tæki með dreifðan tekju­grunn. „Í sam­ein­uðu félagi væri mögu­legt að veita við­skipta­vinum aukna þjón­ustu og leiða til meiri sam­keppni á fjár­mála­mark­aði, meðal ann­ars með fjár­tækni­lausnum, auk þess sem sam­einað félag yrði áhuga­verður fjár­fest­inga­kostur.“

Þar sagði enn­fremur að ekki þætti ástæða til að ákveða á þeirri stundu hvor bank­anna yrði yfir­töku­fé­lagið eða hvort og að hvaða marki dótt­ur­fé­lög bank­anna myndu sam­ein­ast en það færi eftir heild­ar­mati á við­skipta­legum, skatta­legum og sam­keppn­is­legum sjón­ar­miðum sem myndu eiga sér stað ef form­legar við­ræður myndu hefj­ast.

Í byrjun maí var svo send önnur til­kynn­ing þar sem sagði að við­ræð­urnar stæðu enn yfir og að stjórnir beggja banka teldu að „veru­legur ávinn­ingur geti falist í sam­run­anum fyrir bæði hlut­hafa og við­skipta­vini beggja félaga.“

Verk­efnið væri þó umfangs­mikið og unnið væri að því, með aðkomu ráð­gjafa, að meta sam­legð af sam­run­anum og meta stöðu sam­ein­aðs félags á mark­aði. „Á öðrum árs­fjórð­ungi munu fjár­hags­legir ráð­gjafar skila grein­ingum sínum á mögu­legum sam­runa og í kjöl­far þess munu félögin taka ákvarð­anir um næstu skref í ferl­inu.“

Slitið eftir að Íslandsbanki játaði lögbrot

Þann 29. júní til­kynnti Kvika banki svo um að hann hefði slitið sam­runa­við­ræðum við Íslands­banka. Í til­kynn­ingu sagði að þetta hefði gerst í ljósi „atburða síð­ustu daga og þess að fyr­ir­séð er að boðað verði til hlut­hafa­fundar hjá Íslands­banka og mögu­legs stjórn­ar­kjörs, telur stjórn Kviku ekki for­sendur til þess að halda samn­inga­við­ræðum áfram. Þó er ljóst að ávinn­ingur af sam­runa félag­anna gæti orðið veru­legur og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja við­ræður að nýju ef for­sendur skap­ast.“

Þar var vísað til þess að Íslands­banki skrif­aði helgi áður undir sátt við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands þar sem bank­inn ját­aði á sig marg­háttuð lög­brot í tengslum við sölu á 22,5 pró­sent hlut í honum í mars í fyrra. Vegna þess­ara lög­brota sam­þykkti Íslands­banki að greiða næstum 1,2 millj­arða króna sekt til rík­is­sjóðs, sem er rúm­lega þrettán sinnum meira en fjár­mála­fyr­ir­tæki hefur áður greitt í sekt hér­lendis. Málið kost­aði Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, og nokkra aðra stjórn­endur og stjórn­ar­menn störf sín.

Erfitt hjá eignastýringu og í fjárfestingastarfsemi

Kvika banki birti hálfs­árs­upp­gjör sitt í lið­inni viku. Þar kom fram að hagn­aður bank­ans hefði verið 1,9 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Mestu mun­aði um að hreinar vaxta­tekjur námu 4.347 millj­ónum króna og juk­ust um 27 pró­sent miðað við sama tíma­bil árið áður. Þá aukn­ingu má skýra með útlána­vexti og hækk­andi vaxta­stigi sem eykur vaxta­tekjur af skulda­bréfa­eignum. 

Hreinar þókn­ana­tekjur Kviku banka dróg­ust hins vegar saman frá því sem þær voru á fyrri hluta síð­asta árs. Í til­kynn­ingu vegna upp­gjörs­ins var haft eftir Marinó, nú fyrr­ver­andi for­stjóra bank­ans, að eigna­stýr­ing og fjár­fest­inga­starf­semi hafi lit­ast tals­vert af erf­iðum aðstæðum á verð­bréfa­mörk­uðum. 

Samhliða birt­ingu upp­gjörs­ins var til­kynnt að Kvika banki hefði hækkað afkomu­spá sína fyrir árið um 200 millj­ónir króna. 

Virði hluta­bréfa í Kviku banka hefur lækkað um 7,3 pró­sent frá ára­mótum og um 19,2 pró­sent á síð­ast­liðnu ári. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Virði Kvikubanka hefur rýrnað um 20% (tæplega) sem er augljóst ástæðan fyrir brotthvarfi Marinós, en það er áhugavert hver er sóttur til að lagfæra/kippa í lag þessari neikvæðu stöðu Kvikubanka, jebs bankastjórnin sækir Þorvald Ármannsson fjármálasóða af gamla skólanum, maður sem var á allra vörum í HRUN-ÞJÓFNAÐINUM 2008 sem var útibússtjóri Kaupþings-banka í Luxemborg.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár