Standa við stóru orðin og hætta viðskiptum við Íslandsbanka

Stjórn VR hefur ákveðið að hætta við­skiptum við Íslands­banka og leita til­boða í við­skipti félags­ins og þjón­ustu hjá öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Standa við stóru orðin og hætta viðskiptum við Íslandsbanka
Formaður Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagði í sumar að VR væri með millj­arða í eigna­stýr­ingu og við­skiptum við Íslands­banka og aðra aðila. Mynd: Eyþór Árnason

Tillaga um að slíta við­skiptum við Íslands­banka var sam­þykkt af stjórn VR á fundi á mið­viku­dag, 16. ágúst. Mun félagið leita til­boða í við­skipti sín og þjón­ustu hjá öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum, að því er segir í til­kynn­ingu.

Stjórn VR for­dæmdi í lok júní við­brögð Íslands­banka við þeim brotum sem starfs­menn hans urðu upp­vísir að við útboð á um fjórð­ungs hlut rík­is­ins í bank­anum. Taldi stjórnin brotin með öllu óásætt­an­leg. Í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar kom fram að hún teldi söl­una vera „áfell­is­dóm yfir öllum sem að henni komu“ og stjórn­völd bæru ábyrgð á nið­ur­stöð­unni. Þau hafi ákveðið að einka­væða bank­ann „í trássi við þjóð­ar­vilja.“

Kallaði stjórn VR eftir því að gerðar yrðu breyt­ingar á banka­kerf­inu og skor­uðu á stjórn­völd að falla frá frek­ari áformum um sölu á eign­ar­hlut í Íslands­banka.

„Ef þetta verður nið­ur­staðan að það sé bara nóg að fórna banka­stjór­anum og við­horf stjórnar sé með þeim hætti að hún telji bara hinn eðli­leg­asta hlut að brjóta af sér, þá nátt­úr­lega getum við ekki stundað við­skipti við bank­ann,“ sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR í sam­tali við Vísi við þetta til­efni. Sagði hann VR vera með millj­arða í eign­ar­stýr­ingu og við­skiptum við Íslands­banka og aðra aðila. „Þetta eru miklar fjár­hæðir. Við erum langstærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins og við erum með mjög umfangs­mikla starf­semi og mjög stóra sjóði í stýr­ingu,“ sagði Ragnar.  

Allir stjórn­endur Íslands­banka sem komu að útboð­inu hættu störfum í sumar. Er Atli Rafn Björns­son, sem stýrði fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans í fjögur ár lét af störfum í byrjun júlí sagði banka­stjór­inn Jón Guðni Ómarsson að þar með hefðu allir þeir stjórn­endur sem stýrðu verk­inu og komu að því „vikið úr sínum störfum og þannig axlað ábyrgð“.

Þá gáfu þrír stjórn­ar­menn Íslands­banka, þeirra á meðal for­maður og vara­for­maður, ekki kost á sér í stjórn­ar­kjöri sem fram fór í sumar.  

Í til­kynn­ingu sem stjórn VR sendi frá sér í dag, þar sem ákvörðun um að flytja við­skipti til ann­arrar fjár­mála­stofn­unar, segir að við­brögð Íslands­banka og svör for­svars­manna hans við kröfum félags­ins hafi verið ófull­nægj­andi.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Vonandi er Sparisjóðurinn VR í deigluni.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    " og svör forsvarsmanna hans við kröfum félagsins hafi verið ófullnægjandi."
    Hvaða kröfur voru þetta? Það væri gott fyrir venjulega sparifjáreigendur að vita hvaða kröfur þeir geta gert til bankanna. Eða eru ekki allir viðskiptavinir jafnir?
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Góð ákvörðun og mikilvæg hjá VR-stjórninni, það er ekki í boði að fjármála-sóðar og fjárglæpamenn stjórni Íslandsbanka, þegar almenningur í gegnum ríkissjóð og eftirlaunasjóðina hefur eignarhald á 70% eignarhlut í Íslandsbanka.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár