Barist við „stjórnlausa“ gróðurelda á Tenerife

Um 1.800 hekt­arar lands hið minnsta hafa brunnið á Tenerife síð­ustu klukku­stundir í miklum gróð­ur­eldum sem ótt­ast er að stefni á vin­sæla ferða­manna­staði.

Barist við „stjórnlausa“ gróðurelda á Tenerife
Þjóð­garður brennur Svæðið sem eld­arnir loga nú á er á miðri Tenerife. Lands­lagið ein­kenn­ist af skóg­ar­beltum, giljum og fjöllum er gerir slökkvi­starf erfitt. Mynd: AFP

Gróð­ur­eldar sem nú geisa á Tenerife í Kanarí-eyja­kla­s­anum eru enn sem komið er fyrst og fremst bundnir við frið­uðu fjall­lendi í nágrenni eld­fjalls­ins Teide. Um 250 slökkvi­liðs­menn berj­ast við eldana en hafa ekki náð að hemja útbreiðslu þeirra svo nokkru nemi. Að minnsta kosti 1.800 hekt­arar lands hafa brunnið á aðeins einum sól­ar­hring.

Eldarnir kvikn­uðu í gær í fjall­lendi svæða sem kall­ast Arafo og Candelaria á miðri Tenerife. Þurft hefur að rýma fimm þorp þar í grennd og vegum að þjóð­garð­inum sem eld­arnir loga í verið lokað.  

Yfirvöld telja hættu á að eld­arnir breið­ist út til dval­ar­staða ferða­manna þar sem þeir gætu borist á milli furutrjáa, sem eru mjög eld­fim eftir þurrka. Ef ekki tekst að hefta útbreiðsl­una gætu eld­arnir náð til ferða­manna­staða á borð við Santa Cruz de Tenerife og Puerto de la Cruz.

„Eldarnir eru öfl­ugir og eru á svæði sem er erfitt að athafna sig á,“ sagði svæð­is­stjóri Kanarí-eyja, Fernando Clavijo, á blaða­manna­fundi. „Eldarnir á Tenerife eru stjórn­lausir og útlitið er ekki beint bjart.“

Tveir alþjóða­flug­vellir eru á Tenerife. Þeir starfa enn sam­kvæmt venju.

Hita­bylgja gekk yfir Kanarí-eyjar í síð­ustu viku. Henni fylgdu miklir þurrkar svo elds­matur er mik­ill. Gróð­ur­eldar kvikn­uðu á eyj­unum Gran Canaria og La Palma fyrr í sumar við sömu aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár