Hratt viðbragð ferðaþjónustunnar skýri minnsta atvinnuleysi síðan 2018

Atvinnu­leysi lækkar lít­il­lega milli mán­aða sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun og er nú 2,8 pró­sent. Enn er spenna á vinnu­mark­aði og í hag­kerf­inu, þrátt fyrir að dregið hafi úr þensl­unni að sögn hag­fræð­ings hjá ASÍ.

Hagfræðingur
Hag­fræð­ingur Steinunn Braga­dóttir er hag­fræð­ingur á hag­fræði- og grein­ing­ar­sviði ASÍ. Hún segir að þörf fyrir starfs­fólk sé mest í ferða­þjón­ustu og bygg­inga­geir­anum.

„Það er spenna á vinnu­mark­aði og það er spenna í hag­kerf­inu sem hefur þó sýnt sig að er að draga úr,“ segir Steinunn Braga­dóttir, hag­fræð­ingur á hag­fræði- og grein­ing­ar­sviði Alþýðu­sam­bands Íslands, spurð að því hvort að lítið atvinnu­leysi hafi áhrif á marg­um­tal­aða spennu í hag­kerf­inu. Að hennar sögn hefur engu að síður dregið úr þenslu í hag­kerf­inu, það sýni þró­unin á hús­næð­is­mark­aði og tölur um korta­veltu heim­il­anna.

Atvinnu­leysi í júlí mæld­ist 2,8 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar og lækk­aði lít­il­lega á milli mán­aða eða um 0,1 pró­sentu­stig. Í jan­úar á þessu ári sem og í febr­úar mæld­ist atvinnu­leysi hér á landi 3,7 pró­sent en hefur lækkað í hverjum mán­uði síðan þá. Atvinnu­leysi hefur ekki mælst jafn lítið síðan árið 2018 en í des­em­ber það ár mæld­ist atvinnu­leysi 2,5 pró­sent. 

Minna atvinnuleysi á fyrri uppgangstíma

Þrátt fyrir að atvinnu­leysi hafi ekki mælst jafn lítið í ríf­lega fjögur og hálft ár segir Steinunn að það þurfi ekki að þýða að það sé óvenju lágt. Það segir hún vegna þess hve mik­ill upp­gangur hefur verið í ferða­þjón­ust­unni og bendir á að á árunum 2017 og 2018 hafi atvinnu­leysið á þessum tíma árs verið enn minna. „Þetta getur auð­vitað ekki talist hátt atvinnu­leysi en kannski miðað við tím­ann þá er þetta hærra en við höfum verið að venj­ast og miðað við hvað heyrum af tölum úr ferða­þjón­ust­unni,“ segir Steinunn.

En þýðir það þá að hægt sé að gera ráð fyrir að atvinnu­leysi muni halda áfram að minnka? „Það er auð­vitað erfitt að segja til um hversu lengi getur dregið úr atvinnu­leys­inu,“ segir Steinunn. „Það er gott að hafa það í huga að það eru rétt um tvö ár síðan atvinnu­leysi var yfir tíu pró­sent. Það tekur auð­vitað tíma fyrir hag­kerfið að jafna sig á áföllum eins og voru. Við höfum líka að sama skapi verið frekar fljót að jafna okkur þannig séð á þessu mikla atvinnu­leysi. Atvinnu­leysi jókst mjög hratt hér þegar far­ald­ur­inn skall á og meira en í lönd­unum í kringum okkur og það dró hratt úr því og það hefur með greinar tengdar ferða­þjón­ustu að gera, hvað þær eru fljótar að taka við sér. Atvinnu­lífið eins og í lönd­unum í kringum okkur er fjöl­breytt­ara og sveifl­urnar ekki alveg jafn ýktar og þær eru hér.“

Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar segir að stofn­unin geri ekki ráð fyrir mik­illi breyt­ingu í ágúst, atvinnu­leysi gæti mælst 2,7 til 2,9 pró­sent.

Stór hluti verið lengi án atvinnu

Spurð að því hvort það sé þá ferða­þjón­ust­unni að þakka hve lítið atvinnu­leysi mælist nú segir Steinunn að mesta aukn­ingin í störfum hafi verið í þeim geira, þar sé mesta þörfin sem og í bygg­inga­geir­anum. Þar af leið­andi sé það þeim geirum að ein­hverju leyti að þakka hve lítið atvinnu­leysi mælist nú um stundir, „en það er kannski líka að ein­hverju leyti það sem veldur spennu á vinnu­mark­aði.“

Hún nefnir að einnig sé mik­il­vægt að skoða sam­setn­ingu þess hóps sem er í atvinnu­leit. Tæplega helm­ingur atvinnu­lausra hafi verið það í meira en hálft ár og rúmur fimmt­ungur atvinnu­lausra hefur verið í atvinnu­leit í meira en ár. 

„Þetta er eitt­hvað sem er mik­il­vægt að hafa augun á því við vitum alveg að reynslan hefur sýnt að því lengri tími sem líður frá því að við­kom­andi er virkur á vinnu­mark­aði þá þarf hann á meiri þjón­ustu að halda til að finna starf og það eru meiri líkur á var­an­legri örorku og annað. Það er eitt­hvað sem er mik­il­vægt fyrir okkur að fylgj­ast með,“ segir Steinunn.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár