Tveir áratugir „meðfærilegs lýðræðis“ skýri stuðning við aðgerðir Pútíns

Félags­legt rými Rúss­lands var frekar eins­leitt eftir fall Sov­ét­ríkj­anna og því voru kjós­endur fremur óstöð­ugur hópur sem auð­velt var að hafa áhrif á, segir land­flótta pró­fessor í stjórn­mála­fræði. Stjórn­völd nýttu sér þetta, fyrst með mildum aðferðum en síðar hafi tökin verið hert.

Mikill stuðn­ingur fólks í Rúss­landi við for­set­ann Vladimír Pútín og stríðs­rekstur rúss­neskra yfir­valda í Úkraínu skýrist að miklu leyti af því því að stuðn­ingur fólks er passívur (e. passive supp­ort) en ekki virkur. Þetta segir Susanna Pshizova, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Mannheim Centre for European Social Research, í sam­tali við Heim­ild­ina. Pshizova hélt fyr­ir­lestur í Háskóla Íslands á mánu­dag um valda­kerfi Pútíns í Rúss­landi og þær aðferðir sem stjórn­völd hafa beitt til að tryggja sér stuðn­ing almenn­ings. Hún lýsir stjórn­ar­fari þar í landi með hug­tak­inu „með­færi­legt lýð­ræði“ (e. mana­ga­ble democracy). Slíkt stjórn­ar­far hafi tíðkast á fyrri hluta valda­tíðar Pútíns en frá árinu 2012 hafi stjórn­völd hert tökin og beitt rit­skoðun og skoð­ana­kúgun í auknum mæli. Að mati Pshizovu er Rúss­landi í dag ein­ræð­is­ríki.

Fram kom á fyr­ir­lestri Pshizovu að fyrsta hálfa árið á meðan stríðið geis­aði hafi stuðn­ingur fólks við stríðs­rekst­ur­inn mælst um eða undir 80 pró­sentum. „Fylgið breytt­ist …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár