Skar upp herör gegn skipulagðri glæpastarfsemi og var myrtur

Umfang eit­ur­lyfja­við­skipta hefur sett mark sitt á Ekvador og morð­tíðni er í hæstu hæðum. For­seta­fram­bjóð­and­inn Ferdin­and Villavicencio hafði heitið því að berj­ast gegn þess­ari þróun en hann hefur nú verið myrtur. Kjör­dagur hagg­ast ekki og kosið verður 20. ágúst.

Hinn myrti
Hinn myrti Ferdin­and Villavicencio sést hér fyrir utan skrif­stofur rík­is­sak­sókn­ara í höf­uð­borg Ekvador, Quito. Rúmlega sól­ar­hring síðar var hann allur. Mynd: AFP

Ferdin­and Villavicencio lofar stuðn­ings­fólki sínu að hann ætli að upp­ræta land­læga spill­ingu í Ekvador og gestir kosn­inga­fund­ar­ins í höf­uð­borg­inni Quito fagna ógur­lega. Villavicencio segir áheyr­endum að hann ætli sér að læsa lands­ins bófa á bak við lás og slá undir dynj­andi lófataki. And­ar­tökum síðar liggur Villavicencio í blóði sínu, myrtur. 

Þriggja daga þjóð­ar­sorgar auk tveggja mán­aðar neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í Ekvador í kjöl­far morðs­ins á for­seta­fram­bjóð­and­anum Villavicencio. Villavicencio var ötull bar­áttu­maður gegn spill­ingu í heima­land­inu og tal­aði opin­skátt um tengsl hins opin­bera og skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi. Ófrið­ar­alda hefur gengið yfir landið að und­an­förnu sem helst má rekja til auk­innar eft­ir­spurnar eftir kóka­íni á heims­vísu, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times, en mikið af því kóka­íni sem endar í Evrópu hefur ferð sína yfir hafið frá Suður-Ameríku í Ekvador.

„Með lagi leyni­morð­ingja og þremur kúlum í höf­uðið var Fernando Villavicencio Valencia, for­seta­fram­bjóð­andi fyrir hreyf­ing­una Construye, myrtur mið­viku­dag­inn 9. ágúst 2023,“ segir í frétt El Universo, en fjöl­mið­ill­inn heldur úti mest lesna dag­blaði Ekvadors. 

Villavicencio var á leið af fund­inum í bíl sinn, umkringdur stuðn­ings­fólki og örygg­is­vörðum þegar skot­hríð hófst, að því er fram kemur í The Guardian. Þar­lendir miðlar segja að um þrjá­tíu skotum hafi verið hleypt af í hama­gang­inum en níu slös­uð­ust og einn sem grun­aður er að hafa átt þátt að morð­til­ræð­inu lést af sárum sínum. Í hópi hinna slös­uðu var einn fram­bjóð­andi til þings­ins en þing­kosn­ingar fara fram sam­hliða for­seta­kosn­ing­unum þann 20. ágúst. Sex eru nú í haldi yfir­valda í Ekvador, grun­aðir um morðið. Sex­menn­ing­arnir eiga það allir sam­eig­in­legt að vera frá Kólumbíu.

Ekki óumdeildur sem þingmaður

Ferdin­and Villavicencio var rétt innan við sex­tugt þegar hann var myrtur. Hann hafði starfað sem blaða­maður, aktí­visti og sem þing­maður. Hann varð áber­andi í heima­land­inu eftir að hann hóf að gagn­rýna Rafael Correa, fyrrum for­seta lands­ins, og stefnu hans. Correa sem sat á valda­stóli á milli 2007 og 2017 er enn mjög áhrifa­mik­ill í Ekvador. Sá fram­bjóð­andi sem nýtur stuðn­ings Correa, Luisa González hefur að und­an­förnu leitt kann­anir fyrir for­seta­kosn­ing­arnar.

Villavicencio skrif­aði tals­vert um meinta spill­ingu innan rík­is­stjórnar Correa og fyrir vikið hlaut hann líf­láts­hót­anir. Hann leit­aði öryggis í frum­byggja­hér­uðum Ekvadors í kjöl­farið og hlaut að lokum póli­tískt hæli í nágranna­rík­inu Perú.

Villavicencio sneri á end­anum aftur til Ekvador og var kjör­inn á þing. Hann var ekki óum­deildur í störfum sínum á þingi en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu hann fyrir að hafa staðið í vegi fyrir því að sitj­andi for­seti, Guill­ermo Lasso, yrði ákærður fyrir emb­ætt­is­af­glöp fyrr á þessu ári. Villavicencio sat á þingi þar til í vor, þegar Lasso leysti þingið upp og boð­aði til kosn­inga.

Tíðni morða í hæstu hæðum

Morðið hefur vakið mikla athygli en Villavicencio er fyrsti for­seta­fram­bjóð­and­inn í sögu Ekvador sem ráð­inn er af dögum. Í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum X segir Lasso for­seti að skipu­lagðri glæp­a­starf­semi sé um að kenna. „Ég er hneyksl­aður og miður mín vegna morðs­ins,“ ritar for­set­inn.

Í umfjöllun New York Times kemur fram að íbúar Ekvador hafi fengið að kynn­ast algjörri umbreyt­ingu á lífs­gæðum sínum milli áranna 2005 og 2015. Millj­ónum íbúa lands­ins var lyft upp úr fátækt á þessum upp­gangs­tíma sem upp var runn­inn þökk sé olíu­iðn­aði lands­ins. Mennta-, heil­brigðis- og önnur félags­leg kerfi nutu góðs af pen­ing­unum sem flæddu inn í landið þökk sé olí­unni.

Á nýliðnum árum hefur eit­ur­lyfja­iðn­að­ur­inn aftur á móti sett strik í reikn­ing­inn. Hálfgerð vargöld ríkir í land­inu og erlendar eit­ur­lyfjaklíkur hafa náð miklum völdum innan Ekvador og tekið höndum saman við inn­lend gengi. Þessari þróun hefur fylgt mikil fjölgun á ofbeld­is­brotum og morð­tíðnin hefur farið mjög hratt upp á við.

Villavicencio vildi segja þess­ari þróun stríð á hendur.

Öryggi borgara kjósendum ofarlega í huga

Raunar var Villavicencio langt í frá eini fram­bjóð­and­inn sem setti lög og reglu á odd­inn í kosn­inga­bar­átt­unni, enda er öryggi í land­inu kjós­endum ofar­lega í huga. Hann skar sig því á engan hátt úr í bar­átt­unni og var raunar ekki ofar­lega á blaði af fram­bjóð­end­unum átta. Í umfjöllun Al Jazeera frá því fyrr í vik­unni var hann til dæmis ekki á meðal fjög­urra efstu fram­bjóð­enda. 

Þar segir að stór hluti lands­manna hafi ekki mikla trú á því að sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna muni koma til með að bjarga land­inu frá efna­hag­skröggum og öllu ofbeld­inu. Fjöldi þeirra sem ætlar sér að skila auðu í kosn­ing­unum er ef til vill marks um það. Samkvæmt nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar sem gefnar voru út á þriðju­dag ætl­uðu 16,8 pró­sent lands­manna að skila auðu. 

Milljónir hafa yfirgefið landið

Þá voru líka taldar mestar líkur á því að fara þyrfti í aðra umferð í kosn­ing­unum en fram­bjóð­endur þurfa að fá meira en helm­ing atkvæða til að ná kjöri. Þó nægja 40 pró­sent atkvæða ef mun­ur­inn á þeim fram­bjóð­anda sem efstur er og þeim sem er í öðru sæti er meiri en 10 pró­sentu­stig. Hvort morði á Villavicencio muni þjappa þjóð­inni betur saman á bak við einn fram­bjóð­anda umfram aðra á svo eftir að koma í ljós. En eitt er víst, kosn­ingar verða haldnar þann 20. ágúst.

Svo er spurn­ing hvort enn fleiri Ekvadorar velji að „kjósa með fót­unum“ í kjöl­far morðs­ins. Á fyrri helm­ingi árs­ins flúðu rúm­lega 800 þús­und íbúar Ekvador á aldr­inum 18 til 45 ára landið, sam­kvæmt opin­berum tölum. Í fyrra nam fjöldi þeirra Ekvadora sem yfir­gaf heima­landið 1,4 millj­ónum.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár