Veðsetning íslenskra hlutabréfa aldrei verið hlutfallslega minni

Miklar lækk­anir á virði hluta­bréfa stórra félaga og miklu hærri vextir, sem gera lán­töku mun dýr­ari, hafa gert það að verkum að sífellt færri fjár­festar halda á veð­settum hluta­bréfum.

Veðsetning íslenskra hlutabréfa aldrei verið hlutfallslega minni
Brimrót Alls hefur úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem stýrt er af Magnúsi Harð­ar­syni, lækkað um rúm­lega 15 pró­sent á einu ári. Það félag sem hefur lækkað mest í virði á síð­ustu mán­uðum er Alvotech, sem er stýrt af Róberti Wessman. Mynd: Nasdaq Iceland

Mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa sem ganga kaupum og sölum á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði var 161,1 millj­arður króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Það hefur ekki verið minna síðan í júní 2020 eða í þrjú ár. í milli­tíð­inni hefur félögum á mark­aði fjölgað umtals­vert, sem ætti undir eðli­legum kring­um­stæðum að auka mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa. Má þar nefna skrán­ingu Íslands­banka, Síld­ar­vinnsl­unnar og Alvotech en sam­eig­in­legt mark­aðsvirði þeirra er yfir 810 millj­arðar króna. Þar fyrir utan hafa Nova, Play, Amaroq Minerals, Ölgerðin og Hamp­iðjan bæst í hóp skráðra fyr­ir­tækja. Þessar skrán­ingar hafa hækkað heild­ar­mark­aðsvirði skráðra félaga veru­lega

Um mitt þetta ár voru ein­ungis 8,15 pró­sent allra hluta­bréfa í Kaup­höll­inni veð­sett. Það er lægsta hlut­fall veð­settra hluta­bréfa síðan að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur á árunum eftir banka­hrunið. Þegar hlut­fall veð­setn­ingar var sem mest, í lok árs 2019 og byrjun árs 2020, var það næstum 16 pró­sent. Þá voru, líkt og áður sagði, …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Alltaf koma Lífeyrisjóðirnir og kaupa upp hvaða drasl sem er. Þessvegna ætti SA alls ekki að koma neitt að stjórn Lífeyrissjóða. Enda sjáum við að Lífeyrissjóðirnir eru reknir eins og vogunarsjóðir og það er hlutur sem getur ekki endað vel, það verður stór skellur þegar launafólk kemst að því að eftirlaunasjóðirnir eru gufaðir upp til "peninga himna".
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár