Borgar 276 þúsund krónum meira fyrir leikskólapláss í Kópavogi en Reykjavík á ári

Helen Rut Ást­þórs­dóttir er meðal þeirra for­eldra sem gagn­rýna nýja gjald­skrá leik­skóla í Kópavogi. Leik­skóla­vist barns sem er sex tíma á dag í leik­skól­anum kostar 10.462 krónur en fyrir barn sem er í átta tíma á dag þarf að greiða 49.474 krónur. Kópa­vogs­bær sendi frá sér aug­lýs­ingu til nýbak­aðra for­eldra að þeir geti fengið sér vinnu á leik­skóla og þannig fari barnið þeirra í for­gang auk þess sem þeir fengju afslátt af gjöld­unum.

Borgar 276 þúsund krónum meira fyrir leikskólapláss í Kópavogi en Reykjavík á ári
Leik­skóla­barn Munað getur tugum þús­unda á kostn­aði við að senda barn í leik­skóla sam­kvæmt nýrri gjald­skrá Kópavogs, þrátt fyrir að munur á lengd dag­vistar séu aðeins tveir eða þrír tímar. Mynd: Facebook / Leikskólinn Jörfi

Ákvörðun Kópa­vogs­bæjar um ný leik­skóla­gjöld hefur verið í brennid­epli síð­ustu daga. Nú munu for­eldrar barna sem eru í leik­skóla sex tíma eða minna á dag ekki borga neitt dag­gjald. Hins vegar mun dag­gjald þeirra barna sem dvelja meira en sex tíma á dag hækka tölu­vert. Leik­skóla­vist barns sem er í sex tíma á dag í leik­skól­anum kostar nú 10.462 krónur, en fyrir barn sem er í átta tíma á dag þarf að greiða 49.474 krónur. Þrátt fyrir verð­hækk­un­ina hyggst Kópa­vogs­bær skerða þjón­ustu þar sem leik­skólar eiga að loka milli jóla- og nýárs, í vetr­ar­fr­íum og Dymbil­vik­unni. 

Helen Rut Ást­þórs­dóttir er meðal for­eldra leik­skóla­barna í Kópavogi sem gagn­rýna ákvörð­un­ina. Sjálf á Helen Rut fjóra syni, þrír eru í grunn­skóla en sá yngsti er enn á leik­skóla. Þegar Heim­ildin náði tali af Helen Rut hafði hún nýlokið við að skrifa bréf sem senda á til Kópa­vogs­bæjar vegna máls­ins. „Ég hef fengið fullt af per­sónu­legum skila­boðum frá for­eldrum, það eru ekki allir sem vilja tjá sig opin­ber­lega, og þetta er bara aukið flækju­stig fyrir marga. Fólk sér fyrir sér aukin útgjöld og þetta er erfitt fyrir mörg heim­ili. For­eldrar eru ekki sáttir enda geta ekki allir minnkað við sig vinnu eða borgað þessu háu leik­skóla­gjöld.“

Öll stytting jákvæð 

Um þessar mundir eru tvö pró­sent allra leik­skóla­barna í Kópavogi í sex tíma dag­vistun. Á vef­síðu Kópa­vogs­bæjar þar sem nýja gjald­skráin er til­kynnt segir: „Öll stytt­ing hefur jákvæð áhrif á leik­skóla­starfið, minnkar álag, styrkir fag­legt starf og auð­veldar mönnun. Styttri dval­ar­tími hefur jákvæð áhrif á börnin sem og skipu­lag og starf­semi leik­skóla.“

Í við­tali við Andra Stein Hilm­ars­son, bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem birt­ist á Vísi þann 3. ágúst segir: „Það verður bara gaman að sjá hversu margir sjá sér kleift að gera breyt­ingar og stytt­ingar á leik­skóla­dvöl barns­ins síns.“ 

Sumarfrí foreldra dekka þetta ekki

Helen Rut lýsir reynslu sinni af leik­skóla­kerf­inu í Kópavogi almennt sem jákvæðri en allir hennar synir hafa verið í leik­skóla þar. Hún seg­ist þó hafa fundið fyrir auk­inni mann­ekklu fyrir heims­far­aldur, á meðan honum stóð og eftir hann. Stytting vinnu­vik­unnar spilar þar líka inn í en það eru fjórar klukku­stundir á hvert stöðu­gildi. Helen Rut seg­ist hafa stokkið til og sótt strák­ana fyrr ef mann­skap vantar á leik­skól­ana án þess að það hafi verið neitt vanda­mál. 

Hins vegar hefur ný ákvörðun Kópa­vogs­bæjar um skerta þjón­ustu það í för með sér að for­eldrar og for­sjár­fólk er krafið um ansi marga frí­daga. „Samkvæmt þessum nýju reglu­gerðum ætla þeir að hafa lokað á milli jóla- og nýárs, í Dymbil­vik­unni og vetr­ar­fr­íum. Þarna ertu með auka 11 daga, plús starfs­daga og sum­ar­fríið. Ein­stak­lingur á venju­legum vinnu­mark­aði á bara 25 daga sum­ar­frí. En fyrir þetta þarft þú þarft 37 daga í frí til að dekka þetta allt.“

„Þér er boðið að sækja um vistun fyrir barnið þitt þessa daga í þeim skólum sem koma til með að vera opnir. Fólk sem á börn veit alveg að þú ferð ekki bara með börn í ókunn­ugar aðstæður þó það verði einn starfs­maður þarna af leik­skóla barns­ins. Þetta er van­hugsað og bara hugsað útfrá því að þeir ætli að leysa sín mannauðs­vanda­mál með þvi að for­eldrar minnki við sig í vinnu.“

Inná vef­síðu Kópa­vogs­bæjar stendur að: „styttri dval­ar­tími hafi sömu­leiðis jákvæð áhrif á börn með tillliti til vellíð­unar og skapar aukin tæki­færi til sam­veru fjöl­skyld­unnar.“ Helen Rut spáir því að mæður muni frekar taka á sig minna hlut­fall í vinnu til að koma í veg fyrir að borga leik­skóla­gjöldin. „Þarna er bara verið að ýta konum aftur inn á heim­ilin sem er ekki gott.“ 

Hún bætir við: „Þrátt fyrir að for­eldrar hafi sveigj­an­leika í starfi að þá er það ekki minna vinnu­hlut­fall, þú verður alltaf að klára vinnu­skyld­una þína. Er þá lausn að fara að vinna á kvöldin heima? Það gengur til dæmis ekki fyrir mig, ég er með fjögur börn heima.“

Nýlega sendi Kópa­vogs­bær frá sér aug­lýs­ingu mark­aðs­setta fyrir for­eldra sem eru að ljúka fæð­ing­ar­or­lofi og vantar leik­skóla­pláss.

Aug­lýs­ing til for­eldraBærinn reynir að skapa hvata fyrir for­eldra til að vinna á leik­skólum.

Um aug­lýs­ing­una segir Helen Rut: „Mér finnst þetta til dæmis ekki rétt­læt­an­leg aug­lýs­ing fyrir aðra sem eru í þess­ari stöðu og langar ekki að vinna á leik­skóla. Það er fullt af fólki sem er búið að mennta sig á öðrum sviðum og vill starfa á þeim en það hefur færri pláss á milli sín.“

Aðspurð hvort að þetta hafi áhrif á vilja hennar til að búa í Kópa­vogsbæ segir hún svo ekki vera. „Það er svo­lítið flókið að þurfa að flytja með sex manna fjöl­skyldu úr bæj­ar­fé­lag­inu. En vissu­lega er ég ekki mann­eskja sem segi fólki að flytja hingað því það er svo æðis­legt að búa í Kópavogi. Nú er það orðið lang dýr­ast. Ég borga 276 þús­und meira hér á ári heldur en í Reykja­vík með eitt barn.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðröður Jónsson skrifaði
    Þetta fyrir komulag eykur ójöfnuð. Viljum við þannig samfélag?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár