Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

Niður tímans í ARS LONGA

List­fræð­ing­ur­inn Mar­grét Elísa­bet Ólafs­dótt­ir rýn­ir í sýn­ing­una Hvað var, hvað er, hvað verð­ur?

Niður tímans í ARS LONGA
ARS LONGA Hvað var, hvað er, hvað verð­ur?
Myndlist

Sýn­ing: hvað var, hvað er, hvað verð­ur?

Niðurstaða:

Sýningin hvað var, hvað er, hvað verður? er í heild vel úthugsuð og þannig úr garði gerð að verkin – sem ekki eru öll talin upp – styðja hvert annað. Niður tímans í ARS LONGA

Sýning: Hvað var, hvað er, hvað verður?

Tímabil: 8. júlí – 13. Ágúst

Opnunartími: 12-17 alla daga nema mánudaga

Gefðu umsögn

Hvað var, hvað er, hvað verður? Yfirskrift sumarsýningar hins ársgamla samtímalistasafns Ars longa á Djúpavogi má skilja sem vísun í sögulegt samhengi og samtal ólíkra kynslóða listamanna sem eiga verk á sýningunni. Þeirra á meðal er Kristján Guðmundsson og eitt þekktasta verk hans, Þríhyrningur í ferningi (197172). Verkið er gert úr mold sem myndar ferhyrndan flöt á gólfi en þríhyrninginn þarf áhorfandinn að skapa í huganum. Titillinn er margræður og býður upp á ólíkar leiðir til túlkunar. Ein þeirra er skírskotun til formfræði og grunnþátta myndlistar eins og þeir hafa verið kenndir á öllum skólastigum frá því um miðja 20. öldina. Verk Kristjáns Guðmundssonar eru hnitmiðuð í framsetningu og einkennast af hárfínni hugsun og þurrum húmor sem hann beinir að myndlistinni og menningunni í víðum skilningi.

Nýjar vörður

Annað verk eftir Kristján, Vörðubrot, frá sama tímabili, varð fréttaefni þegar það var fjarlægt af heilbrigðisyfirvöldum af útisýningu á Skólavörðuholtinu í Reykjavík sumarið 1970. Verkið er gert úr formbökuðu heilhveitibrauði sem er staflað upp líkt og steinum í vörðu og mynda þannig óreglulegan hrauk. Verkið var endurgert í fyrsta skipti fyrir sýninguna í Ars longa en efniviðinn má sjá sem tákn um hringrás lífsins, uppskeru þess sem er sáð og ræktað í moldinni, hnoðað, mótað, bakað og neytt áður en það hverfur aftur til moldar. Sjálf varðan er leiðarvísir í villum og má sjá sem myndhverfingu fyrir listina sjálfa og skírskotun í umbreytingar.

BrauðVerkið Vörðubrot eftir Krisjtán Guðmundsson

Form verksins Vörðubrot, eins og brauðunum er staflað upp í Ars longa, á sér formrænt skyldmenni í verkinu Án titils (1989-2023) eftir Rögnu Róbersdóttur sem er gert úr ferningslaga hrauni sem er raðað upp í formfastan þríhyrning. Efniskennd og leikur að formi tengir verkin saman en þau sækja einnig grundvöll sinn í tvær skyldar stefnur myndlistar sjöunda og áttunda áratugarins sem eru konseptlist og land list.

Á barmi einhvers 

Við hliðina á Þríhyrningi í ferningi  er að finna verk eftir Harald Jónsson, rauðan ferhyrning á vegg sem ber titilinn Gátt (2020/2022). Titillinn vísar í op eða opnun inn í annan heim sem rauði liturinn tengir við ástríður fremur en andlega upplyftingu. Þannig má tengja verkið margræðum Þríhyrningi í ferningi eftir Kristján og verki Sigurðar Guðmundssonar, Galti, a nice girl and a boy (1969) sem er að finna í sama hluta sýningarrýmisins. Verk Sigurðar er gert úr heysátu og kassalaga neonskilti en skiltið er með áletruninni „nice girl and a boy“ sem við hlið heysátunnar skapar hugrenningatengsl við forboðnar og ástríðufullar athafnir í sátunni. Verk Sigurðar er ekki heldur laust við húmor og spennu milli menningarheima, þar sem hugmynd um rómantíska sveitasælu mætir neónskilti borgarinnar og áhrifum bandarískrar bíómenningar.

Heimurinn og ég, eða Samtal við hnött I, III og IIII (2022 og 2023), er titill á þrískiptu, þriggja skjáa myndbandsverki eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur sem á þessari sýningu birtist sem andlegur afkomandi bræðranna Kristjáns og Sigurðar. Hnötturinn er annars vegar uppblásin plastblaðra með áprentuðu landakorti og glær kúla sem kort af heiminum speglast í. Samtal myndbandanna, sem sýna fætur á grænni grasflöt sparka „knetti“ og þennan sama „knött“ svífa til himins, er einstaklega vel heppnað í einfaldleika sínum og látleysi, þar sem tilvistarlegar spurningar eru settar fram í gáskafullum leik. Í þessu verki kemur fyrir enn eitt grunnformið, hringurinn sem einnig birtist í myndbandi eftir Emmu Heiðarsdóttur af skótá með gati og hljóð- og veggverkinu Besta útgáfan af þér – tyggigúmmí asmr (2016) eftir Arnfinn Amazeen, sem lætur lítið yfir sér. Þetta er ljósblár hringur á vegg og heyrnartól þar sem heyra má smjattað á tyggigúmmíi.

Ein spurning hefur horfið úr umræðu um myndlist á Íslandi, og það er spurningin: hvað einkennir íslenska myndlist?

Hvað er?

Ein spurning hefur horfið úr umræðu um myndlist á Íslandi, og það er spurningin: hvað einkennir íslenska myndlist? Um aldamótin síðustu var enn uppi krafa um að þessari spurningu væri hægt að svara, en hún virðist – sem betur fer – vera að mestu horfin úr umræðunni. Engu að síður kom hún upp í hugann þegar gengið var um sýninguna hvað var, hvað er, hvað verður?, því þótt verkin séu eftir ólíka listamenn má finna tengingar á milli þeirra, og kannski ekki síst ákveðinn undirtón eða takt, sem kannski mætti kalla nið tímans. Nið sem streymir milli kynslóða og birtist sem uppsog og endurvinnsla hinna yngri á gjörðunum hinna eldri, bæði meðvitað og ómeðvitað. Þetta eru áhrif áhrifavalda sem hrærast á sama blettinum, í sömu borginni eða borgunum, hvort sem þær heita Reykjavík eða Amsterdam. Þessar kynslóðir sækja sömu barina og opnanir og þekkjast persónulega eða af orðspori. Á milli þeirra er andrúmsloft, hugmyndaleg tengsl og tilflutningur á næmi, sem jafnframt á sér uppsprettu í straumum alþjóðlegrar samtímalistar síðustu áratuga. Þannig snúast viðfangsefnin ekki um landfræðilegan stað heldur stað myndlistarinnar í menningunni. Á þessum stað virðist alltaf vera hægt að finna ný svör við sömu spurningunum um tengsl tvívíðra flata og þrívíddar, forms og lita, skúlptúrs og arkitektúrs, forma og tungumáls, efnis og anda, hugsunar og tilfinninga. Og það virðist alltaf vera hægt að setja fram óvænta niðurstöðu, eitthvað ferskt, eins og spurninganna hafi aldrei verið spurt áður.

Sýningin hvað var, hvað er, hvað verður? er í heild vel úthugsuð og þannig úr garði gerð að verkin – sem ekki eru öll talin upp  styðja hvert annað. Ljósmyndasafn Unnars Arnar J. Auðarsonar Almanak lands: Safnrit um hlutföll (2018), gólfverk Rögnu og myndband Sigurðar Guðjónssonar, Jafnvægi (2013), fjalla til að mynda öll um landslag en ekki eingöngu og á gerólíkan hátt. Annað sem virkar ekki eins vel var uppsetning á verki Níelsar Hafstein, Ryk og rakasugur dauðvona tungumáls (2023), við hliðina á verki Hildigunnar Birgisdóttur, awuia (2022). Verkið Níelsar naut sín ekki, það skyggði á verk Hildigunnar – eða hún á hann  og var auk þess óþarflega predikandi í beinum útskýringum þar sem aðrir listamenn létu sér nægja að gefa í skyn og ýja að merkingu. Þetta var þó smávægilegt og kannski smekksatriði en styrkur sýningarinnar er tvímælalaust samtal kynslóðanna þar sem í ljós koma margslungnir þræðir milli verka sem sum eru söguleg og önnur ný. Slíkt er sjaldgæft að sjá gert með þessum hætti á sýningum hérlendra safna sem verða oftar en ekki að treysta á sundurleita safneign til að setja fram listsögulegt sjónarhorn. Þótt ekki sé nema vegna þessa er sérstakur fengur að sumarsýningu þessa nýja safns á Djúpavogi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
3
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
6
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.
Bjarni segir þetta ár það sterkasta í íslenskri efnahagssögu
8
Fréttir

Bjarni seg­ir þetta ár það sterk­asta í ís­lenskri efna­hags­sögu

„Þetta er sterk­asta ár Ís­lands í efna­hags­sög­unni,“ full­yrti Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og nú­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á Al­þingi. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formað­ur Við­reisn­ar, bað ráð­herra að „girða sig í brók“, skoða stóru mynd­ina og taka ut­an um alla hópa, ekki bara sína eig­in.
Grátrana sást á Vestfjörðum
10
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
7
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
10
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár