Vilja lengja greiðslufrest lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Fjöldi fyr­ir­tækja ræður ekki við að end­ur­greiða stuðn­ings­lán sem þau fengu vegna greiðslu­falls í heims­far­aldr­inum á þeim tíma sem gert er ráð fyrir. Félag atvinnu­rek­enda hvetur til að greiðslu­tím­inn verði lengdur enda myndi það í ein­hverjum til­vikum firra rík­is­sjóð frekara tjóni.

Vilja lengja greiðslufrest lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Gæti bitnað á rík­is­sjóði Ef ekki verður gef­inn frek­ari frestur til að endu­greiða stuðn­ings­lán gæti það bitnað á rík­is­sjóði, en flest lán­anna eru með fullri ríks­á­byrgð, að mati Félags atvinnu­rek­enda. Ólafur Steph­en­sen er fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent fjár­mála­ráðu­neyt­inu erindi þar sem hvatt er til þess að bönkum og öðrum fjár­mála­stofn­unum verði heim­ilað að dreifa end­ur­greiðslum á stuðn­ings­lánum til lengri tíma. Mörg lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki séu enn ekki búin að ná vopnum sínum að fullu eftir Covid-19 far­ald­ur­inn og eru þar með ekki í stakk búin til að greiða lánin niður.

Félag atvinnu­rek­enda hefur fengið upp­lýs­ingar frá stóru við­skipta­bönk­unum þrem um þau stuðn­ings­lán sem veitt voru fyr­ir­tækjum sem urðu fyrir tekju­falli í heims­far­aldr­inum. Alls veittu bank­arnir 1.159 slík lán. Af þeim voru 979 með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð og 180 með með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð.

Samkvæmt upp­lýs­ingum félags­ins þáðu vel­flest fyr­ir­tækin frest til að greiða þau upp. Fyrst var sá frestur veittur í mars 2021, en þá var veittur tólf mán­aða við­bót­ar­frestur, og svo í jan­úar á þessu árí, þegar veittur var sex mán­aða við­bót­ar­frestur. Í jan­úar þáðu lán­tak­endur 248 stuðn­ings­lána við­bót­ar­frest­inn, um 21 pró­sent þeirra sem lánin fengu. Þegar frest­ur­inn var veittur í mars 2021 þáðu 682 lán­tak­endur hann.

Ríkissjóður þegar orðið fyrir tjóni

Aðeins 373 stuðn­ings­lána sem veitt voru eru upp­greidd sam­kvæmt upp­lýs­ingum Félags atvinnu­rek­enda en þó ber að hafa þann fyr­ir­vara á að í þeirri tölu eru einnig lán sem greidd hafa verið úr rík­is­sjóði vegna greiðslu­falls lán­tak­anda. Nefnt er sem dæmi að hjá Íslands­banka voru þannig 18 slík lán greidd úr rík­is­sjóði.

„Að mati félags­ins myndi það í ein­hverjum til­vikum stuðla að því að firra rík­is­sjóð frekara tjóni vegna greiðslu­falls“

Félag atvinnu­rek­enda hefur því sent fjár­mála­ráðu­neyt­inu erindi þar sem hvatt er til þess að þeim fyr­ir­tækjum sem í erf­ið­leikum eigi með að hefja end­ur­greiðslu verði gef­inn lengri tími enn á ný. Bent er á að rík­is­sjóður hafi þegar orðið fyrir tölu­verðu tjóni vegna gjald­þrota fyr­ir­tækja sem hafi því ekki getað staðið skil á end­ur­greiðslum stuðn­ings­lán­anna. „Að mati félags­ins myndi það í ein­hverjum til­vikum stuðla að því að firra rík­is­sjóð frekara tjóni vegna greiðslu­falls, vegna þess að ýmis fyr­ir­tæki, sem ekki ráða við að end­ur­greiða lánin á næstu tólf mán­uðum, myndu vel ráða við greiðslur sem dreift væri á t.d. 36 mán­uði. FA vill aftur minna á að fjár­mála­stofn­anir þekkja við­skipta­vini sína vel og eru í stakk búnar að meta end­ur­greiðslu­getu og þan­þol fyr­ir­tækja,“ segir í erindi félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár