Gistinætur á fyrri helmingi árs 15 prósentum fleiri en metárið 2018

Árið í ár er á góðri leið með að slá met yfir fjölda skráðra gistin­átta. Það sem af er ári eru skráðar gistinætur rúmri hálfri milljón fleiri en á sama tíma metárið 2018. Skráðar gistinætur í júní hafa aldrei verið fleiri.

Ferðaþjónusta
Ferða­þjón­usta Mikill gangur er í ferða­þjón­ust­unni um þessar mundir. Það sést glögg­lega þegar tölur fyrir skráðar gistinætur hér á landi eru skoð­aðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skráðar gistinætur í júní voru 1.170.600 og hafa aldrei verið fleiri í þeim mán­uði. Þetta er 17 pró­sent aukn­ing frá því í fyrra þegar gistinætur voru 1.012.300 tals­ins sem á þeim tíma var met. Þetta sýna nýjar tölur frá Hagstofu Íslands.

Árið í fyrra fór hægar af stað í ferða­þjón­ust­unni heldur en fyrir far­aldur. Fjöldi gistin­átta fór þó hratt fjölg­andi þegar líða tók á árið og líkt og áður segir var júní í fyrra met­mán­uður. Metið sem þá var sett hefur nú verið slegið. Þegar árið var liðið var 2022 ein­ungis hárs­breidd á eftir metár­inu 2018 þegar horft er til fjölda gistin­átta. Einungis tvö þús­und gistinætur skilja árin tvö að en þær námu rúmum átta og hálfri milljón á hvoru ári fyrir sig.

Sé rýnt í tölur Hag­stof­unnar sést að upp­safn­aður fjöldi gistin­átta á fyrri helm­ingi árs­ins var mestur árið 2018, þar til nú. Fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018 voru skráðar gistinætur á Íslandi rúm­lega þrjár og hálf milljón en á þessu ári nemur fjöldi þeirra tæpri 4,1 milljón.

Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgar um 16 prósent

Gistinætur erlendra ferða­manna í síð­asta mán­uði voru 77 pró­sent af heild­inni eða rúm­lega 903 þús­und. Það er 16 pró­senta aukn­ing frá því í fyrra þegar þær voru tæp­lega 778 þús­und. Gistin­óttum Íslend­inga fjölgar einnig tals­vert milli ára eða um 14 pró­sent. Í júní síð­ast­liðnum voru þær rúm­lega 267 þús­und sam­an­borið við rúm­lega 234 þús­und í fyrra.

„Gistinætur á hót­elum og gisti­heim­ilum voru um 703.000 og um 468.000 á öðrum teg­undum skráðra gisti­staða (íbúða­gist­ing, orlofs­hús, tjald­svæði o.s.frv.). Áætlaður fjöldi gistin­átta erlendra ferða­manna í heimagist­ingu utan hefð­bund­innar gistin­átta­skrán­ingar í júní var um 200.000,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

Rétt er að geta þess að allar tölur fyrir árið í ár nema gistin­átta­tölur hót­ela eru bráða­birgða­tölur. Fram kemur á vef Hag­stof­unnar að áætlun fyrir aðrar teg­undir gisti­staða sé um þessar mundir háð meiri óvissu en vana­lega „fyrir til­stilli örra breyt­inga á fram­boði og nýt­ingu og því er rétt að taka þeim tölum með sér­stökum fyr­ir­vara þar til end­an­legar tölur liggja fyrir.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár