Fylgi ríkisstjórnarinnar undir 40% mánuðum saman

Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur ekki mælst yfir 40% síðan í jan­úar á þessu ári. Miðað við nýj­ustu fylgiskönnun Maskínu myndi rík­is­stjórnin falla ef gengið yrði til kosn­inga í dag.

Fylgi ríkisstjórnarinnar undir 40% mánuðum saman
Fallin Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks myndi falla ef gengið yrði til kosn­inga í dag, miðað við könnun Maskínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þó að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafi bætt við sig fylgi frá því í júní­mán­uði myndi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks falla ef gengið yrði til kosn­inga í dag, miðað við nýja fylgiskönnun Maskínu. 

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast sam­tals með 36,9% fylgi: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 19,3%, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 9,6% og Vinstri græn með 8%. 

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur lands­ins þriðja mán­uð­inn í röð með um 25% fylgi en það dróst saman um 2% á milli mán­aða. Flokk­ur­inn hlaut 9,9% atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum. 

Viðreisn á hægri uppleið

Fylgi Við­reisnar hefur verið á hægri upp­leið í könn­unum Maskínu og mælist nú rúm 10% en Píratar mæl­ast með 11%. 

Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn mæld­ust með um 6% fylgi en Sós­í­alistar 4,5%.

Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur sveifl­ast nokkuð síðan gengið var til kosn­inga haustið 2021 en þá fengu flokk­arnir 54,4% atkvæða sam­an­lagt. Lægst mæld­ist fylgi þeirra í júní­mán­uði síð­ast­liðnum: 34,2%, en fylgi flokk­anna hefur ekki náð 40% í könn­unum Maskínu síðan í jan­ú­ar­mán­uði síð­ast­liðnum.

Að óbreyttu eiga næstu kosn­ingar til Alþingis að fara fram árið 2025. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Glæsilegt. Það er von.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Skildi nokkurn undra ?
    Vanhæfasta og spiltasta ríkisÓstjórn allra tíma og þó er af nægu að taka.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár