„Mér leið eins og frelsið hefði verið tekið frá mér“

Í heilt ár gat Þórunn Salka Pét­urs­dóttir ekki sett á sig bláan augn­blý­ant. Hann minnti hana um of á kvöldið sem hún varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Á föstu­dag sendi hún frá sér lag um reynsl­una. Myndin sem fylgir lag­inu sýnir konu sem hefur end­ur­heimt frelsið sitt. Konu með bláan augn­blý­ant. Það er Þórunn sjálf en hún flutti lagið í dag á sam­stöðu­fundi Druslu­göng­unnar.

„Mér leið eins og frelsið hefði verið tekið frá mér“
Skömminni skilað „Mig langar með þessu að minna á að það skiptir engu máli í hverju maður er eða hverju maður klæð­ist eða hvað maður er að gera. Þetta er ekki þér að kenna,“ segir Þórunn um þá ákvörðun að setja á sig bláan augn­blý­ant fyrir mynda­tök­una. Mynd: Ruth Tómasdóttir/Heiðrún Fivelstad

That was the night I lost my freedom,“ raulaði Þórunn Salka Pét­urs­dóttir inn á upp­töku­for­rit í sím­anum sínum. Hún var ein í íbúð­inni sinni í Banda­ríkj­unum þar sem hún var í skipti­námi. Kvöldið áður hafði hún verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi. 

Þetta var árið 2020. Í dag stóð Þórunn á sviði á Aust­ur­velli og flutti lagið „Freedom“, eða „Frelsi“ upp á íslensk­una, fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis og stuðn­ings­fólk þeirra á sam­stöðu­fundi Druslu­göng­unnar.

Línan sem hún raulaði inn á upp­töku­for­ritið, „þetta var kvöldið sem ég missti frelsið mitt,“ varð kjarn­inn í lag­inu, sem hún samdi til þess að vinna úr erf­iðum til­finn­ingum sem kvikn­uðu í kjöl­far þess að brotið var á henni. 

„Planið var aldrei að sýna neinum þetta. Þetta var bara fyrir sjálfa mig,“ segir Þórunn. „Þetta var mín leið til þess að fá útrás fyrir það sem ég var að ganga í gegnum.“

Lagasmíðin eins og …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár