Segir verðbólgumælingu góðar fréttir en of snemmt sé að hrósa sigri

Árs­verð­bólga mælist nú 7,6 pró­sent og lækkar um 1,3 pró­sentu­stig milli mán­aða. Verð­bólga er enn þrefalt hærri en mark­mið Seðla­bank­ans. Dósent í hag­fræði gerir ekki ráð fyrir að mark­miðið náist í bráð en segir litla hreyf­ingu á neyslu­vísi­tölu góðar fréttir.

Júlí­mæl­ing verð­bólg­unnar er fagn­að­ar­efni í sjálfu sér en það er enn of snemmt að segja til um hvort að stýri­vaxta­lækk­anir séu í kort­unum. Þetta segir Katrín Ólafs­dóttir, dós­ent í hag­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík, en hún bendir á að enn séu verð­bólgu­vænt­ingar háar. 

Það er varla hægt að segja að vísi­tala neyslu­verðs hafi hækkað milli júní og júlí, hækk­unin nam 0,03 pró­sentum sam­kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Árs­verð­bólgan tók stökk niður á við í kjöl­farið og mælist nú 7,6 pró­sent en hún var 8,9 pró­sent í síð­asta mán­uði.

Katrín bendir á að ein helsta ástæðan fyrir skar­pri lækkun árs­verð­bólg­unnar nú sé sú að júlí­mæl­ingin frá því í fyrra dettur út en það var mikil hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs á sama tíma í fyrra. „Fagn­að­ar­efnið núna er það að það er eig­in­lega engin hækkun í júlí, þetta er eig­in­lega óbreytt milli júní og júlí.“

Verðbólgan þrefalt hærri …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár