Samkeppniseftirlitið slær á fingur Hreyfils

Hreyfli er óheim­ilt að koma í veg fyrir að leigu­bíl­stjórar sem keyra fyrir stöð­ina fái einnig að keyra fyrir Hopp eða aðra aðila sem bjóða upp á leigu­bíla­þjón­ustu. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur áður gert athuga­semdir við starfs­hætti Hreyfils en ljóst er að þær athuga­semdir hafa verið virtar að vettugi.

Samkeppniseftirlitið slær á fingur Hreyfils
Óheimilt bann Bann Hreyfils við því að bíl­stjórar keyri fyrir Hopp er að lík­indum brot á sam­keppn­is­lögum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið tók í dag bráða­birgða­á­kvörðun þar sem bann leigu­bif­reið­ar­stöðv­ar­innar Hreyfils gegn því að bíl­stjórar sem keyri fyrir stöð­ina keyri einnig fyrir Hopp er sögð ólög­mæt. Er Hreyfli gert að láta án tafar af hindr­unum gagn­vart Hoppi og til­greint að senni­lega sé um brot á sam­keppn­is­lögum að ræða.

Frá því að Hopp, sem rekur deili raf­skútu og deili bíla­þjón­ustu, hóf um miðjan júní einnig að bjóða upp á leigu­bíla­þjón­ustu, hefur Hreyfill komið í veg fyrir að leigu­bíl­stjórar sem aka fyrir stöð­ina keyri fyrir Hopp. Reglur í sam­þykktum Hreyfils komu þannig í veg fyrir að félags­menn gætu nýtt sér þjón­ustu ann­arra aðila á mark­aði sem bjóða upp á leigu­bíla­þjón­ustu.

Hreyfill er langstærsta leigu­bíla­stöð lands­ins og hefur verið um ára­bil, þar starfa flestir bíl­stjórar og staða fyr­ir­tæk­is­ins er mun sterk­ari en keppi­nauta þess. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur áður tekið hátt­semi Hreyfils til athug­unar, gagn­vart öðru fyr­ir­tæki, og beindi árið 2020 þeim til­mælum til Hreyfils að láta af sams­konar starfs­háttum og nú er um að ræða. Athugun þessa máls hefur leitt í ljós að Hreyfill hefur virt fyrr­greind til­mæli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að vettugi.

Í bráða­birgða­á­kvörð­un­innni sem tekin var í dag er Hreyfli gert að láta af umræddri hegðun í garð Hopps án tafar og gera nauð­syn­legar breyt­ingar á sam­þykktum sínum svo bíl­stjórum stöðv­ar­innar verði heim­ilt að keyra fyrir aðra aðila.

„Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að umrædd hátt­semi grund­vall­ist hvorki á mál­efna­legum né hlut­lægum for­sendum. Háttsemi Hreyfils sé til þess fallin að hindra inn­komu nýs keppi­nautar á mark­að­inn neyt­endum til tjóns ásamt því að við­halda þeim tak­mörk­unum, gagn­vart meiri­hluta leigu­bif­reiða­stjóra, sem ný lög um leigu­bif­reiða­akstur áttu að upp­ræta,“ segir í til­kynn­ingu á vef eft­ir­lits­ins.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár