Íbúðir á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,7 prósent að raunvirði

Fram kemur í nýrri skýrslu HMS að raun­verð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í grennd hafi lækkað á síð­asta ári en hækkað ann­ars staðar á lands­byggð. Í skýrsl­unni er þeirri spurn­ingu velt upp hvort íbúar verði orðnir 400 þús­und fyrir lok árs.

Reykjavík
Reykja­vík Raunverð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur lækkað meira und­an­farið ár heldur en ann­ars staðar á land­inu. Und­an­farið ár hefur raun­verð íbúða á lands­byggð­inni hækkað. Mynd: Shutterstock

Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 1,1 pró­sent í júní og hefur raun­verð íbúða lækkað um 5,7 pró­sent miðað við vísi­tölu neyslu­verðs á síð­ustu tólf mán­uðum. Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).

Raun­verðs­lækk­unin var meiri í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í síð­asta mán­uði eða 2,1 pró­sent. Annars staðar á lands­byggð­inni var lækk­unin ekki jafn mikil, þar lækk­aði verð um hálft pró­sent.

Líkt og áður segir nam raun­verðs­lækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 5,7 pró­sent und­an­farið ár. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mælist nú árslækkun á raun­verði íbúða í fyrsta sinn síðan árið 2014. Lækkunin nemur 1,7 pró­sentum. Annars staðar á lands­byggð­inni hefur raun­verð íbúða aftur á móti hækkað und­an­farið ár, um 4,3 pró­sent. Fram kemur í skýrslu HMS að þar hafi hækkun á fast­eigna­verði verið nokkuð minni á árunum 2020-2022 en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess.

Enn lítil hreyfing á markaðnum

Kaup­samn­ingum fjölg­aði lít­il­lega milli maí og apríl …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár