1,1 milljarður jarðarbúa býr við fátækt

Samkvæmt nýrri skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna virð­ist sem enn dragi úr fátækt í heim­inum. Gögn frá því eftir heims­far­aldur eru þó af skornum skammti í mörgum löndum. Börn eru um helm­ingur fátækra í heim­inum og gert er ráð fyrir að fátækt meðal barna verði áfram brýnt vanda­mál.

Indland
Indland Samkvæmt nýj­ustu tölum fækk­aði í hópi fátækra í Indlandi um sem nemur rúmum 400 millj­ónum á 15 árum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Þró­un­ar­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Í það minnsta 1,1 millj­arður býr við fátækt í þeim löndum sem ný skýrsla Þró­un­ar­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNDP) um fátækt nær til. Íbúar í þeim 110 löndum sem fjallað er um í skýrsl­unni telja 6,1 millj­arð en íbúar jarð­ar­innar náðu átta millj­örðum seint á síð­asta ári. Samkvæmt skýrsl­unni er helm­ingur fátækra börn eða 566 millj­ónir. 

Fjöldi fátækra jarð­ar­búa hefur dreg­ist saman á und­an­förnum árum en þegar sam­bæri­leg skýrsla var birt fyrir fjórum árum bjuggu 1,3 millj­arðar við fátækt. Fram kemur í nýju skýrsl­unni að í 15 löndum hafi þróun fátæktar ekki haldið í við fólks­fjölgun, þannig að í þeim löndum hafi fjölgað í hópi fátækra þrátt fyrir að hlut­fall fólks sem býr við fátækt hafi lækkað.

Við skýrslu­gerð­ina er stuðst við svo­kall­aða MPI vísi­tölu, sem horfir ekki til tekna fólks heldur margra ann­arra þátta. Þætt­irnir sem horft er til eru nær­ing, barna­dauði, skóla­ganga, orku­gjafar til eld­unar, aðgangur að neyslu­vatni, sal­ern­is­að­staða, aðgengi að raf­magni og hús­næði. 

Horft er til skorts á þessum þáttum við mat á alvar­leika fátæktar, þeim mun meira sem fólk skortir á þessum lista, því alvar­legri er fátæktin. Alvar­leika fátækt­ar­innar er svo komið til skila með kvarða. Þau sem glíma við minnsta fátækt, mæl­ast með 33,3 til 39.9 stig af 100 á kvarð­anum. 

Staðan verst sunnan Sahara

Staðan er einna verst í löndum Afríku sunnan Sahara eyði­merk­ur­innar. Ekki ein­ungis er hlut­fall fátækra þar hærra en ann­ars staðar, heldur búa íbúar á því svæði einnig við alvar­legri fátækt heldur en fólk í öðrum heims­hlutum. Næstum helm­ingur fátækra býr í þeim hluta heims­ins, 534 millj­ónir.

Af þeim 12 millj­ónum sem búa við allra mestu fátækt­ina, þ.e. mæl­ast með 90 til 100 stig á áður­nefndum kvarða, þá búa tíu millj­ónir á þessu svæði.

Nærri tveir þriðju fátækra, eða um 730 millj­ónir, búa í mið­tekju­ríkjum. Þar af leið­andi eru aðgerðir í þessum ríkjum brýnar til þess að draga úr fátækt á heims­vísu að mati skýrslu­höf­unda. Þrátt fyrir að aðeins einn tíundi hluti þeirra sem skýrslan nær til búi í lág­tekju­ríkjum þá búa 35 pró­sent fátækra í þeim. 

Fátækt er almennt meiri í dreif­býli heldur en í þétt­býli. 84 pró­sent fátækra búa í dreif­býli.

Niðurstöðurnar virðast jákvæðar en ný gögn skortir

Fram kemur í skýrsl­unni að nið­ur­stöður hennar séu jákvæðar við fyrstu sýn. Til að mynda hafi dregið úr fátækt til muna í mörgum löndum. Til að mynda bjuggu 415 millj­ónum færri íbúar Indlands við fátækt sam­kvæmt nýj­ustu tölum miðað við 15 árum fyrr. Auk þessi hafi mörgum íbúum Kína og Indónesíu verið lyft upp úr fátækt á nýliðnum árum. Þó kemur fram að þörf sé að upp­færðum gögnum, í mörgum löndum sem fjallað er um í skýrsl­unni hafa ekki borist gögn frá því fyrir heims­far­aldur.

Sé ein­ungis litið til þeirra landa sem hafa skilað gögnum frá árunum eftir heims­far­aldur; Mexíkó, Madaga­skar, Kambódíu, Perú og Nígeríu, sést að þar tókst ágæt­lega til við að halda áfram á sömu braut og áður þegar kemur að því að draga úr fátækt. Verulega fækk­aði í hópi fátækra í Perú, Nígeríu og þá sér­stak­lega Kambódíu en þar lækk­aði hlut­fall fátækra í land­inu úr 36,7 pró­sentum í 16,6 pró­sent frá árinu 2014 til árs­ins 2022. Á þeim tíma helm­ing­að­ist fjöldi fátækra í land­inu, úr 5,6 millj­ónum í 2,8 millj­ónir.

Líkt og áður segir vantar enn nýrri gögn til að fá fyllri mynd af stöðu mála, sér­stak­lega til að varpa ljósi á áhrif far­ald­urs­ins á börn. Fram kemur í til­kynn­ingu UNDP að í yfir helm­ingi landa sem fjallað er um í skýrsl­unni hafi eng­inn mark­tækur munur mælst á fátækt barna milli tíma­bila eða að fátækt þeirra hafi dreg­ist mun hægar saman heldur en hjá full­orðnum. Það gefi til kynna að fátækt meðal barna muni halda áfram að vera brýnt vanda­mál, sér­stak­lega með til­liti til skóla­göngu og vannær­ingar.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár