Ætluðu að vísa manni sem á þrjú íslensk börn og íslenska konu úr landi

Manni sem búið hefur á Íslandi í átta ár, er giftur íslenskri konu og á með henni þrjú börn sem öll eru fædd á Íslandi, var tjáð við kom­una til Íslands í morgun að honum yrði vísað úr landi. Fjöl­skyldan er í áfalli eftir með­ferð­ina. „Þeir ætl­uðu bara að vísa honum úr landi með hágrát­andi börn og konu sem var að fá tauga­á­fall,“ segir eig­in­kona manns­ins í sam­tali við Heim­ild­ina.

Ætluðu að vísa manni sem á þrjú íslensk börn og íslenska konu úr landi
Fjöl­skyldan Það var mikið áfall fyrir fjöl­skyld­una að heyra að vísa ætti Nicholas úr landi.

Landamæra­verðir tóku Nicholas Woods afsíðis frá þremur börnum sínum og Ólöfu Helgu Páls­dóttur Woods, eig­in­konu hans, við kom­una á Kefla­vík­ur­flug­völl í morgun. „Það á að vísa honum úr landi,“ segir Ólöf að landamæra­vörður hafi tjáð henni.  

Nicholas, sem er upp­runa­lega frá Kali­forníu í Banda­ríkj­unum, hefur búið hér í átta ár. Ári áður en þau fluttu til Íslands giftu þau Ólöf sig. Þau eiga þrjú börn sem eru öll fædd á Íslandi.

Fjöl­skyldan hafði verið í fríi í Kali­forníu og lagði af stað aftur til Íslands á sunnu­dag. Þau milli­lentu í Kanada og lentu svo á Íslandi snemma í morgun. 

Nicholas er með var­an­legt dval­ar­leyfi hér á landi en það virð­ist ekki hafa fund­ist í tölvu­kerfi landamæra­varð­anna. Það varð til þess að Nicholas var í haldi í fjórar klukku­stundir. Hann var leystur úr haldi um hádeg­is­bil, eftir að hægt var að sýna fram á að hann væri með dval­ar­leyfi.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þekkir til máls­ins og segir að það sýni mik­il­vægi þess að starfs­maður Útlend­inga­stofn­unar sé við vinnu í Leifs­stöð svo hann geti aflað nauð­syn­legra gagna.

„Þrátt fyrir að við séum búin að búa þannig um per­sónu­vernd­ar­lögin að það megi vera upp­lýs­inga­gjöf á milli þá hefur lög­reglan enga mögu­leika utan skrif­stofu­tíma til þess að kanna leyf­is­stöðu fólks,“ segir Helga Vala og ítrekar að lög­regl­unni beri alltaf að gæta með­al­hófs.

Hélt fast í bekkinn og vildi ekki skilja föður sinn eftir

Ólöf segir það hafa verið mikið áfall að heyra að vísa ætti eig­in­manni hennar úr landi. Hún var með 18 mán­aða gamla dóttur sína í fang­inu og sex og átta ára gamla syni sína sér við hlið. 

„Við fengum bara áfall, það voru allir hágrát­andi,“ segir Ólöf. „Við þurfum örugg­lega að fara með þau í áfalla­hjálp, þau eru í algjöru áfalli og losti. Eldri sonur minn hélt fast í bekk og vildi helst ekki skilja pabba sinn eftir.“

Nicholas á fyr­ir­tæki í Grinda­vík­urbæ sem býður upp á þjálfun í amer­ískum fót­bolta. 

„Hann er búinn að borga skatta hérna í átta ár. Hann er búinn að byggja upp amer­ískan fót­bolta hérna og er að vinna mikið með börnum sem hafa ekki passað alveg inn í sam­fé­lagið,“ segir Ólöf. „Hann nær ótrú­lega vel til þeirra og er búinn að byggja þetta því­líkt upp og er að stofna hérna fyr­ir­tæki og íþrótta­fé­lag á Íslandi og þeir ætl­uðu bara að vísa honum úr landi með hágrát­andi börn og konu sem var að fá tauga­á­fall.“

Það eru ein­ungis nokkrar klukku­stundir síðan atvikið átti sér stað en Ólöf segir aðspurð lík­legt að fjöl­skyldan muni leita réttar síns vegna máls­ins. 

„Þetta er eitt­hvað sem þarf að bæta upp fyrir börnin okkar.“

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er ljott mal og Ruddalegar vinnureglur Það er pottþett að Huðlitur er þarna að spila inn i, eg er ekki hissa a þessu miðað við það sem a undan er gengið Flokkurinn fer með Domsmal i landinu Hægri flokkur lengst til hægri, byggður a sömu kenningum og Hitler notaði Rasistar raða þarna rikjum Sjalfstæðisflokkurin er a Krossgötum og klofningur og vðæringar þar, Hann þarf að fara fra. Þarna er Fjölskildu Tvistrað i sundur
    RASMISTI a Islandi er gömul saga og ny. 1951 Gerði Island Herstöðvasamning við BNA
    og Herstöð Amrikana var her til 2006. Fyrir 1970 saust ekki Þeldökkir Hermen a Velinum.
    Þa foru Islendingar að lata að ser kveða hja Sameinuðu Þjoðunm og fordæmdu Aðskilnaðarstefnu i Suður Afriku,, Blöð i USA sögðu þessa stefnu Islands að Banna veru Þeldökra Hermana i herstöð BNA a Islandi, en deyla a Suður Afriku og Kyntatta misretti þar. Það hafði lekið ut að til var Leynisamningur við hlið Herstöðvarsamnings LÖG NO 110 fra 1951 sem Alþingi samþikti sem lög. Islendingar þrættu og sögðu að Þeldökkum Hermönnum væri velkomin vera a Vellinum, Þa foru að koma Þeldökkir Hermen en með Fjölskyldur sinar. Þetta tokum við eftir þa 1975. Eg vann a Vellinum i 30 ar.
    Það sama er að gerast nu. Bara i annari mind RASISMI . Boðskapur Hitlers er i fullu gildi
    Hja Sjalfstæðis flokknum. Kvenar kemur her NOTT HINA LÖNGU HNIFA eins og i Þiskalandi 1935.
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Þetta gerist víða. Dóttir mín var gift bandarískum manni og átti með honum 3 börn. Hann var allan tímann að vinna fyririr bandaríska herinn. Þau höfðu greitt skatta sem hjón í átta ár, hún varð að bíða í 7 mánuði á Íslandi eftir að fá dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Þetta er ömurleg framkoma og ekki í neinum takti sem eðlilegt getur talist. Eru landamæraeftirlit hér mjög langt undir meðalgreind?🤬
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Furðulegt mál. Er maðurinn ekki með íslenska kennitölu fyrst hann er búsettur hér? Sú ætti að vera skráð í þjóðskrá sem og fjölskyldunúmer þeirra allra.
    Og ef tölvukerfið liggur niðri ætti nú að vera hægt að láta eiginkonuna ábygjast hann - eða finna annan ábyrgðarmann, t.d. skyldmenni.
    Það er ómannúðlegt að halda heilli fjölskyldu með lítil börn í gíslingu.
    3
  • Ásta Jensen skrifaði
    Þetta eru greinilega einlæg mistök. Gott að allt fór vel
    0
  • Sigmundur Gretarsson skrifaði
    Það vantar ekki uppbyggileg koment frá Jóni Kristjánssyni og Daníel Frey Jónssyni. Enginn áhugu á málinu bara koma með skæting. Enn þeir um það.
    0
  • Sigmundur Gretarsson skrifaði
    Heimildin er að verða einsog DV. Byrtir allt sem að þeim er rétt og kynna sér ekki staðreyndir. Kemur svo vel fram í þessu máli. Hann hefði ekki verið betri móttökur í Bandaríkjunum ef dvalarleyfið finndist ekki í tölvukerfum þeirra.
    -8
    • Jón Kristjánsson skrifaði
      ??!! Furðulegt komment! Enda greinilega hægri maður!
      1
    • DFJ
      Daníel Freyr Jónsson skrifaði
      Æ, af hverju ferðu ekki og ert hálfviti einhvers staðar annars staðar?
      P.S: birtir.
      0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Hér má fastlega gera ráð fyrir að hörundsliturinn á eiginmanni Ólöafar Helgu Pálsdóttur Woods hafi haft áhrif á framkomu landamæraverðisbjálfana.
    6
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Þetta er óskiljanleg framkoma.
    2
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Er enginn regla á þessu auma skeri?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár