Lögreglan réð auglýsingastofu til að gera kynningarefni fyrir leiðtogafund

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra varði um 150 þús­und krónum fyrir birt­ingu á kynn­ing­ar­efni á Facebook og Instagram í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins. Aug­lýs­inga­stofan Sahara kom að gerð kynn­ing­ar­efn­is­ins og tók tæp­lega 4,2 millj­ónir fyrir.

Leiðtogafundur
Leið­toga­fundur Við­bún­aður lög­reglu var mjög mik­ill í tengslum við leið­toga­fund­inn sem fór fram í Hörpu í maí. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kostn­aður emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra vegna kynn­ing­ar­efnis í tengslum við leið­toga­fund­inn sem hald­inn var hér á landi í maí nemur að minnsta kosti rúmum 4,3 millj­ónum. Þar vegur þyngst kostn­aður vegna aðkeyptrar þjón­ustu vegna fram­leiðslu á kynn­ing­ar­efni, tæpar 4,2 millj­ónir króna, en sú þjón­usta var keypt af aug­lýs­inga­stof­unni Sahara. Þetta kemur fram í svörum Gunnars Harðar Garð­ars­sonar, frá­far­andi sam­skipta­stjóra rík­is­lög­reglu­stjóra, við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Í svari Gunnars Harðar segir að emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hafi lagt áherslu á að aðkoma lög­reglu í land­inu að leið­toga­fund­inum yrðu gerð góð skil í mynd og máli. 

„Starfs­fólk emb­ætt­is­ins kom að hluta að þeirri heim­ilda­öflun sem fór fram, til að mynda með öflun á myndefni úr drónum emb­ætt­is­ins, með ljós­myndum og gerð mynd­banda um verk­þætti til innri miðl­unar lög­reglu. Þá var kynn­ing­ar­efni vegna umferð­ar­tafa og tak­mark­ana á dróna­flugi í aðdrag­anda fund­ar­ins fram­leitt inn­an­húss hjá lög­reglu. Kostn­aður aðkeyptrar þjón­ustu vegna fram­leiðslu á kynn­ing­ar­efni í formi ljós­mynd­unar, mynd­bands­upp­töku og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár