Sakar stjórnvöld um sýndarsamráð við ungt fólk

Á sama tíma og for­sæt­is­ráð­herra segir ungt fólk hafa verið í far­ar­broddi við gerð skýrslu um sjálf­bæra þróun segir full­trúi ung­menna að stjórn­völd hafi átt í sýnd­ar­sam­ráði við ungt fólk við gerð skýrsl­unnar.

Sakar stjórnvöld um sýndarsamráð við ungt fólk
Sam­ráðs­leysi „Ég fæ að fara þarna út sem ung­menna­full­trúi og tala máli unga fólks­ins en hver er þarna til þess að svara gagn­rýn­inni minni?“ segir Rebekka. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Takk for­sæt­is­ráð­herra. Þér hefur mis­tek­ist að tryggja ungu fólki þýð­ing­ar­mikið sæti við borðið,“ mun Rebekka Karls­dóttir, ung­menna­full­trúi á ráð­herra­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun, segja í pontu á fund­inum á þriðju­dag þegar hún stígur þangað upp.

En eng­inn póli­tískt kjör­inn full­trúi verður á fund­inum til þess að svara gagn­rýni hennar eða ann­arra á inn­leið­ingu Íslands á heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ræða Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefur ein­fald­lega verið tekin upp á mynd­skeið sem verður spilað áður en Rebekka heldur sína ræðu.

For­sæt­is­ráðu­neytið segir í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að Katrín hafi „því miður ekki tök á að sinna öllum alþjóð­legum fundum sem henni er boðið á.“ Aftur á móti muni leið­togi Sjálf­bærs Íslands ásamt sendi­nefnd Íslands „gera öllum athuga­semdum skil sem hægt verður að vinna úr í fram­hald­inu.“

Rebekka og Tinna Isebarn, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga, gagn­rýna stjórn­völd harð­lega fyrir meint sýnd­ar­sam­ráð við ungt fólk við gerð land­rýni­skýrslu Íslands …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • APG
    Anna Pálmey Guðmundsdóttir skrifaði
    Hvers vegna er skrúfað fyrir þó maður sé með ásskrift og sé innskáður ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár