Hafna því að afhenda bréf Ríkisendurskoðunar til ráðuneytis

Rík­is­end­ur­skoðun boð­aði fyrir viku síðan að stofn­unin ætl­aði að fylgja eftir stjórn­sýslu­út­tekt sinni á söl­unni á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Sent var bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þar sem óskað var eftir afstöðu þess gagn­vart mál­flutn­ingi Banka­sýsl­unnar á nýlegum þing­nefnd­ar­fundi. Bréfið fæst ekki afhent.

Hafna því að afhenda bréf Ríkisendurskoðunar til ráðuneytis
Óskað eftir afstöðu Guð­mundur Björgvin Helgason er rík­is­end­ur­skoð­andi. Mynd: Ríkisendurskoðun

Rík­is­end­ur­skoðun hefur hafnað því að afhenda Heim­ild­inni bréf sem stofn­unin sendi til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þann 3. júlí síð­ast­lið­inn. Bréfið var sent í kjöl­far þess að Rík­is­end­ur­skoðun boð­aði að stofn­unin myndi fylgja eftir nið­ur­stöðum stjórn­sýslu­út­tektar sinnar á sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars í fyrra, en stjórn­sýslu­út­tektin var birt 14. nóv­em­ber í fyrra.

Í bréf­inu óskaði Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi eftir afstöðu ráðu­neyt­is­ins gagn­vart mál­flutn­ingi Banka­sýslu rík­is­ins á nýlegum fundi með efna­hags- og við­skipta­nefnd. Ástæða þess að óskað var eftir afstöðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins var að orð­spors­á­hætta hefði raun­gerst með athöfnum, yfir­lýs­ingum og athafna­leysi Banka­sýsl­unnar. 

Þar var vísað til þess að Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, sagði meðal ann­ars á fund­inum að hann væri enn þeirrar skoð­unar að hið lok­aða útboð á 22,5 pró­sent hlut …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár