Eldgos hafið á Reykjanesskaga

Á vef Veð­ur­stof­unnar segir að eld­gos sé hafið við Litla Hrút. Jörð fór að skjálfa á Reykja­nesskaga þann 4. júlí síð­ast­lið­inn og sér­fræð­ingar voru nokkuð sam­mála um að hrinan væri und­an­fari eld­goss sem nú er hafið. Reykj­ar­mökk­ur­inn sést vel í þeim vef­mynda­vélum sem eru á svæð­inu. Fólk er hvatt til þess að bíða átekta og fylgja fyr­ir­mælum Almanna­varna.

Eldgosið
Eldgosið Kviku­strókar sjást stíga upp úr sprung­unni sem talin er vera um 200 metra löng. Mynd: Veðurstofa Íslands

Eldgos er hafið á Reykja­nesskaga. Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands segir að gosið hafi haf­ist um klukkan 16:40. Eldgosið kemur upp úr lít­illi dæld rétt norður af Litla Hrút og það rýkur úr því til norð­vestur.

Talið er að sprungan sé um 200 metra löng að því er kemur fram á Facebook-síðu Veð­ur­stof­unnar. Sjá má kviku­stróka koma upp úr sprung­unni. Í færsl­unni er fólk hvatt til þess að fara að öllu með gát: „Vís­inda­menn Veð­ur­stof­unnar eru á svæð­inu við mæl­ingar. Gangan að gos­inu er löng og lands­lagið krefj­andi, við hvetjum því fólk til þess að bíða átekta og fylgja fyr­ir­mælum Almanna­varna.“

Reykj­ar­mökk­ur­inn sést glögg­lega í þeim vef­mynda­vélum sem stað­settar eru á svæð­inu.

Reykja­nesskag­innÁ mynd­inni sést hvar kvika vellur nú upp úr jörð­inni. Skammt suð­vestan við nýja eld­gosið er hraun­breiðan úr fyrri gosum.

Þegar Heim­ildin ræddi við Þorvald Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ing, rétt fyrir klukkan fimm var hann hinn róleg­asti. „Ég reikna fast­lega með að þetta sé í grennd við Litla-Hrút, það er mín ágiskun,“ sagði Þor­valdur. 

Þegar hann var spurður að því hvort hann gæti stað­fest það hvort eld­gos væri hafið sagði hann að sér­fræð­ingum í hópi eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hóps Háskóla Íslands sýnd­ist á öllu að svo sé. Hópurinn væri á leið að gos­s­töðv­unum fljót­lega.

Þriðja gosið á þremur árum

Eldgosið sem nú er hafið er það þriðja sem kemur upp á til­tölu­lega litlu svæði á jafn­mörgum árum. Að kvöldi 19. mars 2021 hófst eld­gos í Fagra­dals­fjalli. Þann 18 sept­em­ber það sama ár var kvika hætt að renna úr gígnum en gos­inu var ekki form­lega lýst lokið fyrr en þremur mán­uðum síðar.

Fyrir tæpu ári síðan hófst svo eld­gos í Mer­ar­dölum, þann 3. ágúst 2022. Gosið stóð í um 18 daga.

Jörð skolfið undanfarna daga

Jarð­skjálfta­hrina hófst í norð­aust­an­verðu Fagra­dals­fjalli þann 4. júlí síð­ast­lið­inn með skjálfta upp á 3,6 að stærð sem fannst á Reykja­nesskaga og höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eftir fyrstu nótt hrin­unnar höfðu um 2200 skjálftar mælst, þeirra stærstur var skjálfti upp á 4,8 að stærð.

Stærsti skjálft­inn í hrin­unni reið yfir í gær­kvöldi, 5,2 að stærð. Skjálft­inn fannst víða um land og honum fylgdi grjót­hrun úr Keili.

Vef­mynda­vél RÚV 1
Vef­mynda­vél RÚV 2
Vef­mynda­vél Vísis
Vef­mynda­vél mbl.is

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár