Persónuvernd nær ekki að sinna lögbundnum verkefnum

Þrátt fyrir að starfs­fólki hafi fjölgað mikið á síð­ustu árum er álag á Per­sónu­vernd mikið. „Afgreiðslu­tím­inn hefur verið lengri en okkur líkar,“ segir stað­geng­ill for­stjóra.

Persónuvernd
Per­sónu­vernd Helga Sigríður Þór­halls­dóttir er sviðs­stjóri eft­ir­lits hjá Per­sónu­vernd og stað­geng­ill for­stjóra.

„Per­sónu­vernd er því enn und­ir­mönnuð og hefur því ekki getað sinnt öllum sínum lög­bundnu verk­efnum,“ segir Helga Þór­is­dóttir í for­mála sínum við árs­skýrslu Per­sónu­verndar sem kom nýlega út en Helga er er for­stjóri stofn­un­ar­innar. Eitt af þessum lög­bundnu verk­efnum varðar mál í svoköll­uðu IMI-kerfi sem er sam­ræmt sam­vinnu­kerfi per­sónu­vernd­ar­stofn­ana á EES-svæð­inu. „Hér er um að ræða mál sem gætu varðað mikla hags­muni íslenskra rík­is­borg­ara,“ segir í árs­skýrsl­unni.

Líkt og fjallað var um í byrjun síð­ustu viku lagði Per­sónu­vernd á stórar sektir, þar af tvær sem slógu met. Á mánu­dag var emb­ætti land­læknis sektað um 12 millj­ónir vegna þess að emb­ætti hafði ekki tryggt öryggi raf­rænna heil­brigð­is­upp­lýs­inga. Sektin sló met sem slegið var degi síðar þegar Creditinfo var sektað um tæpar 38 millj­ónir. Í sömu sekt­ar­á­kvörðun og þeirri sem sneri að Creditinfo sektaði Per­sónu­vernd smá­lána­fyr­ir­tækið eCommerce um 7,5 millj­ónir og inn­heimtu­fyr­ir­tækið A.I.C (áður Almenn inn­heimta) um 3,5 millj­ónir.

Stofnunin …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár