Kerecis selt til dansks fyrirtækis á 175 milljarða króna – Íslenskir fjárfestar fá stóran hlut í hagnaðinum

Fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar á Ísafirði sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu á lækn­inga­vörum úr þorskroði hefur verið selt fyrir gríð­ar­lega upp­hæð til Coloplast. Stærsti ein­staki eig­and­inn, félag í eigu tveggja íslenskra fjár­festa, fær 22 millj­arða króna í sinn hlut.

Kerecis selt til dansks fyrirtækis á 175 milljarða króna – Íslenskir fjárfestar fá stóran hlut í hagnaðinum
Stofn­and­inn Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son er for­stjóri og stjórn­ar­maður í Kerecis. Mynd: Kerecis

Íslenska líf­tækni­fyr­ir­tækið Kerecis hefur verið keypt á 1,3 millj­arð Banda­ríkja­dala, rúm­lega 175 millj­arða króna. Kaup­and­inn er danska fyr­ir­tækið Coloplast sem ætlar að fjár­magna kaupin með hluta­bréfa­út­gáfu. Hlut­hafar sem hafa yfir að ráða yfir 2/3 af heild­ar­hlutafé félags­ins hafa þegar und­ir­ritað samn­inga um kaup og sölu hluta­fjár­ins og búist er við að aðrir hlut­hafar félags­ins ger­ist aðilar að samn­ingnum á næstu vikum. 

Kerecis, sem er stað­sett á Ísa­firði og sér­hæfir sig í fram­leiðslu á lækn­ing­avörum úr þorskroði, hefur vaxið tölu­vert á síð­ustu miss­erum, en sölu­tekjur þeirra námu tæpum millj­arði króna árið 2019 sam­kvæmt sam­stæðu­reikn­ingi félags­ins. Á síð­asta upp­gjörsári, sem lauk í sept­em­ber í fyrra, voru tekj­urnar hins vegar 10,7 millj­arðar króna.

Stærsti ein­staki eig­andi Kerecis sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi, sem var fyrir árið 2022, er félagið Omega ehf. Það er í eigu Andra Sveins­sonar, stjórn­ar­for­manns Kerecis, og Birgis Más Ragn­ars­sonar fjár­fest­inga­fé­laga hans. Þeir eru þekkt­astir fyrir að hafa verið sam­starfs­menn Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í Novator árum saman. Omega ehf. átti 12,6 pró­sent hlut í Kerecis í sept­em­ber í fyrra og miðað við það fær félagið um 22 millj­arða króna í sinn hlut við söl­una. 

Íslenskt hug­vitKerecis er stað­sett á Ísa­firði og sér­hæfir sig í fram­leiðslu á lækn­ing­a­vörum úr þorskroði.

Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­búrgíska félagið CuraeLab SARL með 11,4 pró­sent eign­ar­hlut og félagið BBL 34 ehf., sem er að mestu í eigu stofn­enda Kerecis, Guð­mundar Fertram Sig­ur­jóns­sonar for­stjóra sem á 37,2 pró­sent hlut, og Birgis Bjarnar Har­alds­sonar, vara­manns í stjórn félags­ins sem á 26,6 pró­sent hlut í BBL 34. ehf. BBL 34 á 11 pró­sent hlut í Kerecis sem ætti að skila því rúm­lega 19 millj­örðum króna.

Aðrir stórir hlut­hafar eru meðal ann­ars hið danska KIRKBI A/S, eig­andi Lego, sem á 6,8 pró­sent hlut og Emerson Collective LLC, í eigu Laurene Powell Jobs, ekkju Steve Jobs, sem á 6,5 pró­sent hlut. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, situr í stjórn Kerecis fyrir hennar hönd. 

Hlut­hafar Kerecis við söl­una eru alls um 400 tals­ins. Auk ofan­greindra eru flestir starfs­menn Kerecis þeirra á meðal ásamt vest­firskum frum­kvöðlum og sprota­fjár­festum.

Á list­anum hér að neðan má sjá yfir­lit yfir tíu stærstu hlut­hafa Kerecis í fyrra­haust, en auk þeirra liggur fyrir að trygg­inga­fé­lögin Sjóvá og VÍS áttu hlut. Þau til­kynntu til Kaup­hallar Íslands um sam­þykkt á fyr­ir­liggj­andi yfir­tökutil­boði í gær­kvöldi.

Í til­kynn­ingu sem send var út vegna kaupanna kemur fram að Kerecis verði rekið sem sjálf­stæð ein­ing innan Coloplast en fær aðgang að innviðum og sölu­neti Coloplast um allan heim. Þannig munu á næstu árum opn­ast mark­aðir fyrir vörur Kerecis í yfir 140 löndum, en hingað til hafa tekj­urnar að stærstum hluta komið frá sölu í Banda­ríkj­unum.

Með sölu á fleiri mörk­uðum mun eft­ir­spurn aukast og störfum fjölga í hátækni­setri Kerecis á Ísafirði, þar sem vör­urnar eru fram­leiddar úr íslensku þorskroði.

Skipulag fyr­ir­tæk­is­ins verður óbreytt og Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, for­stjóri og stofn­andi Kerecis, heldur áfram sem for­stjóri félags­ins.

Hann segir að sinn draumur með stofnun Kerecis hafi verið tví­þættur – að þróa aðferðir til að fækka aflimunum og græða sár, sam­hliða því að efla atvinnu­þróun á Vest­fjörðum. „Hvoru tveggja hefur tek­ist og þessi samn­ingur er sögu­legur, þar sem vest­firskt sprota­fyr­ir­tæki er orðið eitt verð­mætasta félag Íslands­sög­unnar. Sára­roðið hefur gert stór­kost­legt gagn í Banda­ríkj­unum og nú munu marg­falt fleiri sjúk­lingar fá tæki­færi til að nota vör­una um heim allan, auk þess sem fram­leiðslu­um­svif á Ísafirði aukast. Þannig hefur draum­ur­inn ræst.“

Coloplast er alþjóð­legt lækn­inga­vöru­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Kaup­manna­höfn. Á sviði sára­með­höndl­unar hefur fyr­ir­tækið sterka stöðu á mörk­uðum í Evrópu og Asíu, þar sem öfl­ugt sölu­net hefur tryggt því umtals­verða mark­aðs­hlut­deild. Umsvif Coloplast í Banda­ríkj­unum á sviði sára­með­höndl­unar eru hins­vegar hverf­andi en þar hefur Kerecis lagt meg­in­á­herslu á upp­bygg­ingu á öfl­ugu sölu­neti. Með kaup­unum styrkir því Coloplast umsvif sín í Banda­ríkj­unum.

Guð­mundur Fertram segir í til­kynn­ing­unni að einn af horn­steinum samn­ings­ins sé að Kerecis og Coloplast eigi margt sam­eig­in­legt:. „Bæði félögin eru nor­ræn í grunn­inn og stofnuð til að lækna fólk með erf­iða sjúk­dóma og auka lífs­gæði þess. Við deilum bæði gildum og fram­tíð­ar­sýn, en vegum hvort annað upp með ólíku vöru­fram­boði og mark­aðs­svæðum. Saman myndum við sterka heild. Ég er afar bjart­sýnn á fram­haldið.“

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Gengi er valt þar fé er falt
    fagna skaltu í hljóði.
    Hitt varð alltaf hundraðfalt
    sem hjartað galt úr sjóði.
    EB
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLT ER NÚ TIL SÖLU ÞEGAR PENINGARNIR ERU ANNARS VEGAR EINS OG FYRRI DAGINN
    0
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Vona bara að það fari ekki eins og Guggan
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár